Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Page 7

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Page 7
myndast hafa vegna liðinna viðskipta eða atburða. Fjárhæð eignanna ræðst þannig af þeim framtíðartekj- um sem þær geta skapað. Af þessari skilgreiningu má ljóst vera að virðing all- margra eigna byggist á því að þær fái tíma til að skapa þær framtíðartekjur sem þeim var ætlað. Sé rekstrar- forsendan ekki til staðar má ljóst vera að verðmat þess- ara sömu eigna riðlast. Þá þarf að grípa til þess ráðs að koma eignunum í verð með öðrum hætti en upphaflega var ráð fyrir gert t.d. með því að selja þær öðrum aðil- um. Þetta hefur í för með sér kostnað við að selja eign- ina, e.t.v. flytja hana til kaupanda, auk þess sem ýmis tilkostnaður svo sem uppsetningarkostnaður fæst aldrei endurgreiddur í söluverði. Ef um er að ræða sérhæfðar eignir er reynslan yfirleitt sú, að afföllin aukast með sérhæfingunni. Það sem sagt var hér á undan miðast við skipulega upp- lausn þ.e. að rekstrareiningin ráði hraða sölunnar. Missi rekstrareiningin hins vegar stjórn á stöðu mála verða afleiðingarnar mun alvarlegri. Þvinguð upplausn á eignum leiðir nær undantekningalaust til þess að eign- ír seljast undir raun- eða markaðsvirði. Aðrar afleiðing- ar sem má nefna er að skuldbindingar eru ekki greiddar á gjalddaga, sem hefur í för með sér kostnað umfram það sem vænta mátti, birgjar taka að loka á reiknings- viðskipti, erfiðara verður að afla rekstrarvara og hrá- efna sem aftur leiðir til rekstrarörðugleika og loks stöðvunar. Fastur kostnaður heldur hins vegar áfram að falla til og rekstrareiningin kemst í þrot. ÁHRIF ÞESS Á ÁRSREIKNING EF REKSTR- ARFORSENDAN ER EKKI FYRIR HENDI. Athyglisvert er að velta fyrir sér mismuninum á efna- hagsreikningi sem gerður er samkvæmt almennum reikningsskilavenjum þegar rekstrarforsendan er fyrir hendi og sama efnahagsreikningi þegar forsendur áframhaldandi rekstrar eru ekki lengur til staðar. Ég hygg að eftirfarandi dæmi skýri hvar og hvers vegna mismunur getur átt sér stað, en augljóslega eru engar forsendur til alhæfingar á grundvelli þess. EFNAHAGSREIKNINGUR X H/F 31. desember 1987 E I G N I R : MEÐ REKSTRAR- ÁN REKSTRAR- FORSENDU FORSENDU SKÝR. VELTUFJÁRMUNIR: Handbært fé .............. Kr. 50 50 Skammtímakröfur — 1.300 1.050 1) Birgðir - 4.000 3.300 2) Kr. 5.350 4.400 FASTAFJÁRMUNIR: Skuldabréf Kr. 2.000 1.700 3) Varanlegir rekstrarfjármunir - 9.750 7.000 4) Stofnkostnaður - 1.500 0 5) Kr. 13.250 8.700 EIGNIR ALLS Kr. 18.600 13.100 7

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.