Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Page 40
2.3. Það fer eftir ástæðum hverju sinni hversu mikla
aðstoð endurskoðandi veitir viðskiptavini sín-
um, en með sérþekkingu sinni á hann að
tryggja að reikningshaldið fái þar meðferð,
sem hæfir kunnáttumanni á þessu sviði.
3. Grundvallarreglur um gerð reikningsskila
3.1. Reikningsskil skulu gerð í samræmi við lög og
góða reikningsskilavenju.
3.2. Reikningsskilin eru byggð á þeirri forsendu að
félagið geti haldið áfram starfsemi nema annað
sé sérstaklega tekið fram.
3.3. Gerð reikningsskila er byggð á sömu reiknings-
skilaaðgerðum og á síðasta tímabili, nema ann-
að sé sérstaklega tekið fram.
3.4. Eðlileg lotun skal viðhöfð við gerð reiknings-
skila. Með lotun er átt við að gjöldum sé jafnað
á móti tekjum og að rekstrar- og efnahagsliðir,
sem tilheyra reikningstímabilinu, komi fram í
reikningsskilunum.
3.5. Gert er ráð fyrir eðlilegri varkárni við gerð
reikningsskila. í því felst að tekjur séu ekki
færðar nema í samræmi við lög og góða reikn-
ingsskilavenju, eignir séu ekki metnar til hærra
verðs en áframhaldandi rekstur gefur tilefni til
og allar skuldbindingar séu taldar með í reikn-
ingsskilunum.
3.6. í reikningsskilum skal gera grein fyrir þeim að-
ferðum, sem beitt er til að mæla áhrif verð-
bólgu á afkomu og efnahag fyrirtækis.
4. Áritanir endurskoðenda á óendurskoðuð
reikningsskil
4.1. Veiti endurskoðandi aðstoð við gerð óendur-
skoðaðra reikningsskila, skal hann árita þau.
Árita má á sjálf reikningsskilin eða viðfest blað
með upplýsingum um nafn fyrirtækis, reikn-
ingstímabil og hvað reikningsskilin hafa að
geyma.
4.2. I áritun skal koma fram, að reikningsskilin séu
óendurskoðuð.
4.3. Komist endurskoðandi að raun um, að reikn-
ingsskilunum sé verulega ábótavant eða þau
háð óvissu og ekki fæst úr því bætt, skal hann
gera grein fyrir því í áritun.
4.4. Endurskoðandi getur í áritun sinni gert grein
fyrir eðli og umfangi þeirra starfa, sem hann
hefur innt af hendi við gerð reikningsskila.
Janúar 1988.
Dæmi um áritanir á
óendurskoðuð
reikningsskil
Dæmi A
Áritun
Ársreikning þennan árið 19xx fyrir xxx höfum
við gert eftir bókhaldi félagsins, en hann er á x
blaðsíðum og hefur að geyma skýrslu stjórnar,
rekstrarreikning, efnahagsreikning, fjármagns-
streymi og skýringar nr. 1 - x.
Við höfum ekki endurskoðað reikninginn.
Staður, dagsetning.
Dæmi B
Áritun
Ársreikning þennan fyrir xxx höfum við gert
eftir bókhaldi félagsins, en hann er á x blað-
síðum og hefur að geyma skýrslu stjórnar,
rekstrarreikning fyrir árið 19xx og skýringar nr.
1 - x.
Við gerð ársreikningsins höfum við komist að
raun um, að frágangi bókhalds er verulega
ábótavant. Ársreikningurinn getur því verið
rangur í veigamikl um atriðum, þar sem hann
byggir á óáreiðanlegum gögnum.
Við höfum ekki endurskoðað ársreikninginn.
Staður, dagsetning.
Láttu allt eftir svíninu þínu og barninu þínu og vittu til. Pú munt sjá að þú átt úrvals svín en óþekkt barn. „Bill
McKenna."
Þú mundir líklega hafa engar áhyggjur af því hvað fólk heldur um þig ef þú áttar þig á hversu sjaldan það hugsar til
þín. „Mrs. S. Lee.“
Ef engir speglar væru til væri ást við fyrstu sín mun sjaldgæfari. „George W. Linn.
40