Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1991, Qupperneq 4
RITSTJORASPJALL
EINAR H. EINARSSON
löggiltur endurskoðandi
Ágætu lesendur
í tuttugasta og fyrsta árgangi Tímarits löggiltra endurskoðenda er þemað; hluta-
bréfamarkaður og hlutbréfamat. Ritnefnd fékk þrjá af helstu fræðimönnum okkar á
því sviði til að skrifa um þetta efni. Auk þess er grein um meðferð fiskveiðiheimilda í
reikningshaldi, svo og hefðbundið efni um staðla og félagsmál.
Grein Davíðs Björnssonar, MBA, deildarstjóra hjá Landsbréf hf., fjallar um mat á
verðmæti hlutabréfa. Þar fjallar hann um helstu aðferðir sem notaðar eru við slíkt mat
og lýsir síðan með raunverulegu dæmi hvernig slíkt mat fer fram. Sigurður B. Stefáns-
son, hagfræðingur, forstjóri VÍB hf, lýsir mótun íslensks hlutabréfamarkaðar og spáir
í framtíð hans. Friðrik Jóhannsson, löggiltur endurskoðandi, forstjóri Fjárfestingafé-
lags íslands hf, greinir frá þróun hlutabréfaverðs á íslenskum hlutabréfamarkaði og
fjallar um helstu kennitölur sem notaðar eru í hlutabréfaviðskiptum.
Bókun fiskveiðiheimilda í reikningsskilum hefur verið mjög til umræðu nú undan-
farið. Reikningsskilanefnd FLE hefur látið frá sér fara álitsgerð um málið og Þorvarð-
ur Gunnarsson, löggiltur endurskoðandi, flutti erindi, um meðferð kvóta í reiknings-
haldi á ráðstefnu FLE. Grein hans byggir á því erindi.
Af öðru efni blaðsins má nefna þýðingar og umfjöllun um staðla alþjóða reiknings-
skilanefndarinnar, IASC, nr. 1, 4, 13, 16 og 23 sem flutt hefur verið á hádegisverðar-
fundum FLE.
Ritnefnd þakkar öllum sem lagt hafa til efni í blaðið og vonar að lesendur njóti vel.
4