Ráðunautafundur - 14.02.1978, Page 31
325
RAÐUNAUTAFUNDUR 1978
BúreikninRur - Yfirlit eftir mánu6um
Ketill A. Hannesson
Búnaöarfélagi íslands
Búreikningar hafa nú verið gerðir upp í tölvu í 10 ár
og á þeim tíma hafa ekki verið gerðar verulegar breytingar
á uppgjöri til bænda. Eins og nú er háttað, senda 50-60%
bænda inn sjóðreikning, viðskiptareikninga og vinnuskýrslu
mánaðarlega, en aðrir sjaldnar. Fyrsta uppgjör hefur veriö
sent um 20. marz til hægðarauka við framtal. Lokauppgjör
hefur síðan farið fram í apríl til júlí. Samanburðarskýrsla
hefur síðan verið send í júlí.
Á síðasta ári var gerð tilraun til þess að bæta þjón-
ustu Búreikningastofunnar við bændur með því að senda
yfirlit eftir mánuðum á helztu kostnaðar- og tekju liðum.
Meðfylgjandi sýnishorn er frá einu búi og sýnir yfirlit
eftir mánuðum á árinu 1976. f janúar eru útgjöld búsins
235 þúsund kr. en framleiðslutekjur 300 þúsund kr. og
mismunur er 65 þúsund kr. í marz eru útgjöld við búið
300 þúsund kr. en tekjur 670 þúsund kr. og mismunur því
371 þúsund kr. Heimilishald er þann mánuð 137 þúsund kr.
og önnur einkaútgjöld 62 þúsund kr. og skuldir hafa lækkað
um 172 þúsund kr. (eða innistæður aukizt). Hver mánuður
stemmir tölulega séð.
í aftasta dálki eru heildartölur fyrir árið. Þar
kemur fram að framleiðslutekjur ársins eru 8.652 þúsund kr.
og að mestu leyti frá mjólkursölu, en útlagður kostnaður
í peningum 6.594 þúsund kr. og mismunur er kr. 2.057 þús.kr.,
sem fjölskyldan hefur til ráðstöfunar. Hann fjárfestir
fyrir 466 þúsund kr., heimilishald er 1.124 þúsund kr.,
launatekjur utan bús 95 þúsund kr. og önnur einkaútgjöld
376 þúsund kr. (rafmagn, sími, olía til upphitunar Oifl.)
Skuldir hafa lækkað yfir árið um 188 þúsund kr. (mismunur á