Ráðunautafundur - 14.02.1978, Blaðsíða 53
347
Beitartilraunirnar á úthaga eru gerðar á landi með mjög
breytilegu gróðurfari: Gisið og mjög rýrt graslendi(Álftaver),
óframræst og framræst mýri (Kálfholt, Sölvaholt), uppgræddur
melur (Sandá), mosaþemba með kvistgróðri (Auðkúluheiði), fram-
ræst mýri og holtagróður (Mávahlíð), flói og kvistmýri (Hestur),
kjarrlendi með lynggróðri (Kelduhverfi). Þetta eru nokkur af
algengustu gróðurlendum landsins og því fróðlegt að fylgjast
með áhrifum beitar á gróðurfar þeirra. En sá böggull fylgir
skammrifi, að ekkert tilraunasvæðanna, nema helzt flóinn á Hesti
er í gróðurfarslegu jafnvægi, en er meira og minna úr sér gengið
vegna beitarþunga áður en tilraunirnar hófust. Af þessum sökum
gefa tilraunirnar ekki tækifæri til að fylgjast með því, hvaða
áhrif mismunandi beitarþungi hefur á óspillt land. Þær sýna þó
hvort þannig beit leiðir til frekari úrkynjunar, hvort lítil
og hófleg beit leiðir til batnandi gróðurfars, í hverju sú
betrun er fólgin og hversu langan tíma hún tekur, áhrif áburðar
á þessi breytilegu gróðurlendi við mismikla beit o.s.frv.
Aðferð sú, sem notuð er við mælingar á gróðurfari sýnir
tíðni (frekvens) tegundar. í þessu skyni er notaður rammi,
10 x 10 eða 18 x 18 cm að stærð og innan í honum er annar minni
rammi 2x2 eða 4 x 4 cm að stærð. Stærri ramminn (18 x 18/4 x 4)
er yfirleitt notaður á óræktaö og óáborið land þar sem meiri
fjölbreytni er í tegundasamsetningu. Algengustu tegundirnar
( 75% tíðni í stóra ramma) eru skráðar, ef þær koma fyrir innan
minni rammans, en hinar óalgengari innan stærri rammans. Ef
algeng tegund verður sjaldgæfari,t.d. vegna mikillar beitar er
tekið að skrá hana í stóra ramma og öfugt.
Aðferðin, sem dr. Bement er höfundur að, gefur ekki sér-
lega góða mynd af gróðurfari landsins, en hún virðist vera mjög
viðkvæm fyrir breytingum á tíðni tegundar í gróðurlendinu, og
það er meginatriðið í þessum tilraunum.
Hér gefst þess enginn kostur að gera grein fyrir öllum
niðurstöðum þessara mælinga á gróðurfarsbreytingum í tilraununum,
sem gerðar hafa verið árlega síðan 1974 eða 1975 . Uppgjöri þessara
ára er heldur ekki að fullu lokið. En sem dæmi eru teknar niður-