Ráðunautafundur - 13.02.1980, Page 54

Ráðunautafundur - 13.02.1980, Page 54
182 fremur en bílmerki, sem er í tísku betta árið. Nokkrar umræður hafa orðið síðustu mi3seri um hugsan- legan sparnað í húsakosti yfir báfé. Vissulega eru tilraunir Bútæknideildar á bessu sviði allrar virðingar verðar. 1 um- ræðum um húsakost ættum við að hafa í huga að nýtt gripahús er ekki einungis reist til að skýla búpeningnum heldur á það einnig að verða vinnustaður þess fólks sem starfar að búrekstrinum. Á miklu veltur fyrir daglega líðan bóndans og fólks hans hvernig það þjónar þessu hlutverki. É& mun ég víkja að öðrumþætti þeirra þriggja er ég nefndi hér að framan. Þróunhefðbundinna bugreina til betri samkeppnisaðstöðu. Þá er átt við að útflutningsverð afurðanna geti staðið undir framleiðslukostnaði að mestu eða öllu leyti. Þarna kemur sauðfjárrækt helst til greina og ef til vill hrossarækt. Hér er þörf á stóru samstilltu átaki enda er til mikils að vinna. Á það má benda að hvað sem miðaði að markinu, þótt fullur árangur næðist ekki, kæmi það landbnnáðinum og þjóðinni allri að gagni. Hér er nm fjölþætt viðfangsefni að ræða sem er ekki einasta bundið því að draga úr framleiðslukostnaði heldur einnig að koma framleiðslunni í nýjanbúning og þróa nýjar framleiðsluvörur. ímislegt er verlð að prófa á þessu sviði. Hafin er framkvæmd á tilraun með framleiðslu páskalamba fyrir erlendan rnarkað. áhugi ev fyrir að auka verðmæti grófra gæra raeð kynbótum og á liðnu sumri var hafin tilraun með útflutning á horraónum unnum úr blóði fylfullra hryssa. Allt slíkt framtak er lofsvert.

x

Ráðunautafundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ráðunautafundur
https://timarit.is/publication/1260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.