Ráðunautafundur - 12.02.1983, Page 9
- 69
RÁÐUNAUTAFUNDUR 1983.
FÓÐRUN ÁA UM FENGITlMA OG A MIÐJUM VETRI.
Tryggvi Eiríksson
Stefán Sch. Thorsteinsson
Sigurgeir Þorgeirsson
Rannsóknastofnun landbúnaóarins.
Inngangur.
Efni þessa erindis er aó mestu leiti úr erindi, sem flutt
var á ráóstefnu Búf járræktarsambands Evrópu EAAP í ágúst 1982
("Some asnects of INDOOR-FEEDING of Icelandic Ewes During Wint-
er"). Flest talnagildi eru þau sömu svo og skýringamyndir.
Fyrsti hluti af framangreindu erindi fjallaói almennt um
fóóur og fóðrun (fóðrunartima og fóóurnotkun) á Islandi.
Þessum hluta er alveg sleppt hér, en teknir fyrir meginkaflar
erindisins sem fjölluðu um; i fyrsta lagi fóðrun og fóóurstyrk
áa fyrir og um fengitimann, i öóru lagi um fóðrun á mióhluta
meðgöngutimans. Teknar eru flestar innlendar rannsóknir, sem
fjalla beint um þetta efni, en upptalning þó engan veginn tæm-
andi.
Nokkrar nýjar niðurstöóur komu fram, eóa höfðu a.m.k.
ekki birst fyrr. Þótti ástæóa að kynna þessar niðurstöður á
þessum vettvangi.
Fóðrun fyrir og um fengitima.
1 fjölda rannsókna hefur verið sýnt fram á jákvætt sam-
hengi milli ástands og lifþunga áa við fang og fósturfjölda
og frjósemi ( Gerring 1954; Coop 1965; Gunn et.al. 1969,1972;
Russel et.al. 1969; Rattray 1977; Morley 1978; Aðalsteinsson
1979). Það er vel þekkt að mikil fóðrun, venjulega skilgreint
sem fengieldi, eykur frjósemi hjá sauófé.
Nokkrar rannsóknir hafa verió gerðar til að varpa ljósi
á áhrif lengdar og styrks fengieldis á frjósemina.
Hérlendis birtust fyrstu tilraunaniðurstöður um þetta efni