Ráðunautafundur - 12.02.1983, Blaðsíða 22
82
og fóðurgildi kögglanna reyndist að jafnaði 33% lægra en í
fóðurblöndunni, skv. efnagreiningum. Át bornu ánna er vegió
meðaltal af inni- og útifóórun. A innistöóu eftir buró, sem
var að jafnaði 4-5 dagar, var heyát ánna ekki nákvæmlega metió
en áætlaó jafnt í alla flokka, 1.80 kg/á/dag. Þetta er sama
magn og mælst hefur i bornar tvílembur á Hesti i sex ára
tilraunum (Stefán Sch. Thorsteinsson, 1975). Eftir aó ærnar
voru látnar út á tún var þeim gefin taða eftir þvi hve vel
þær átu upp.
Meðalát (kg/á/dag) á túni öll árin var 0.56 kg i 1. fl.,
0.57 kg i 2. fl., 0.43 kg í 3.fl. og 0.49 kg i 4.fl. Erfitt
er að skýra hversvegna heyátió var minnst i 3.fl., einmitt
þeim flokki, sem mesta hafói þörfina, enda kemur þaó fram á
afurðunum. Má geta þess til, aó þar kunni aó vera um bæti-
efnaskort, próteinskort eða steinefnaskort að ræóa, en lystar-
leysi ánna i þessum flokki var áberandi.
2. Þungi og holdafar ánna.
Meóalþungi, þungabreytingar, holdastig og holdabreytingar
öll árin, eru sýnd í töflu 3 og linuriti 1, en í vióauka-
tufluLii 3-6 eftir flokkum oy ái'uin. Ærnar voru uiisþungar eftir
árum við fyrstu haustvigtun, léttastar haustið 1979 63.3 kg,
þyngstar haustið 1380, 66.1 kq. Fvrri tvö árin voru ærnar
nær jafnar að bunaa oa holdum 1. des., er tilraunaskeiðið
hófst eins og 1. október, en 3. áriö léttust þær þetta tíma-
bil um 2.3 kg. Þetta ár þyngdust ærnar þá um 2.3 kg i október
en léttust um 4.6 kg í nóvember og lögóu samtímis af sem nam
0.36 holdastigum. Þetta haust voru þvi ærnar léttastar og
magrastar er tilraunafóðrun hófst. Enginn raunhæfur munur
var á þunga eða holdastigum milli flokka fyrr en i janúar-
vigtun, eftir fengieldi. Þá voru töðuflokkarnir þyngstir,
en ærnar i graskögglaflokknum léttastar. Þessi aukni þungi
töóuflokkanna umfram hina mun þó stafa af meiri kviðfylli,
sem sest á því, að þessir flokkar bættu minna við holdastig
sín en hinir. Frá 5. janúar til 18. marz þyngdust ærnar i
öllum flokkum en minna i heyflokknum en hinum. Holdastig
stóðu í stað á þessu tímabili, sem sýnir, að ærnar hafa verið