Ráðunautafundur - 12.02.1983, Side 18
78
RAÐUNAUTAFUNDUR 1983
TAÐA, FÓÐURBLANDA OG GRASKÖGGLAR.
AHRIF A ÞRIF OG AFURÐIR SAUÐFJAR.
Sigurgeir Þorgeirsson
Stefán Scheving Thorsteinsson
og
Halldór Pálsson
Rannsóknastofnun landbúnaöarins
Inngangur ■
A síðustu árum hefur veriö lögö mikil áhersla á að fram-
leiöa búfjárafuröir sem mest af innlendu fóðri, sérstaklega
þó sauöfjárafurðir og helst á heimaöfluóu fóðri, þ.e. tööu,
votri eóa þurri. Síöustu áratugina jókst kjarnfóðurnotkun mjög
i fóöri sauðfjár, aö nokkru sem afleióing af hámarksafurða-
stefnunni. Samkvæmt búreikningum siðasta áratugar nam kjarn-
fóöurkostnaður tæpum þriðjungi af breytilegum kostnaði pr.
kind á búreikningabúunum. Við núverandi skilyrði landbúnaðar
er höfuðnauðsyn að lækka tilkostnað. Tilgangur þeirrar til-
raunar, sem hér er lýst er að varpa ljósi á hvort og hversu
mikió hægt er að draga úr kjarnfóðurgjöf handa sauðfé, án
þess að það komi fram i afurðatjóni, ef nægilegt magn af töðu
er fyrir hendi. Ennfremur, hvort graskögglar geti komið í
stað fóðurblöndu, þegar gefið er sama magn af hvorutveggja,
en áóur var komið fram (Stefán Sch. Thorsteinsson og Pétur
Sigtryggsson 1978), aó hver FE i graskögglum gaf jafngóða
raun til dilkakjötsframleiðslu og FE í fóðurblöndu.
Rannsóknarefni og aðferðir.
Tilraunin var framkvæmd á Hesti, hófst haustið 1979 og
stóð i þrjú ár. I henni voru ár hvert 200 ær á aldrinum
þriggja til átta vetra. Þeim var skipt i fjóra flokka, 50 í