Ráðunautafundur - 12.02.1983, Page 33
93
fyllilega til jafns vió fóóurblöndu-ærnar og 11,0% meira en
át grasköggla-ánna, i FE talið. Þetta er erfitt að útskýra,
en eftirtalin fjögur atriði koma til greina sem hugsanlegar
skýringar.
1) Aó taðan sé ofmetin, gæði eða magn. Hvaó gæðin varðar,
þá er mat þeirra byggt á miklum fjölda sýna, og breyti-
leiki þeirra lítill innan hvers fóðrunartímabils. Varð-
andi magnið skal tekið fram, að slæðingur var nánast
enginn hjá 1. og 4. flokki, sem fengu 1 kg/á/dag, en kom
fyrir hjá töðu-ánum, þótt í litlu mæli væri.
2) Taóan var öll árin fyrir neðan meðallag í hráprótein-
innihaldi, og er víst, aó próteinþörf var ekki fullnægt
í töðuflokkunum síöustu 3-4 vikurnar fyrir burð. Þótt
ærnar í flokkum 1 og 4 hafi ekki étið meira hráprótein
á dag þennan tíma, má ætla, að prótein-nýting beirra hafi
verið mun meiri.
3) Ætla má, að orkunýting kjarnfóóurflokkanna hafi verið
betri en tööuflokkanna.
4) Ekki er hægt að útiloka steinefna- eóa snefilefnaskort
í töðunni.
Að síðustu skal gerð nokkur grein fyrir fóðurkostnaði
pr framleitt kg kjöts eftir tilraunaflokkum. 1 þeim saman-
burði er reiknað með sömu frjósemi, 1.76 lömb/á, og vanhöldum
í öllum flokkum, Þar sem ekki var um raunhæfan flokkamun
aó ræða á þessum þáttum. Fóðurkostnaður er byggður á meðal-
talstölum frá Búreikningastofu landbúnaðarins fyrir árið 1981
sem eru 1.40 kr/kg af heyi, 2.12 kr/kg af graskögglum og
3.17 kr/kg af fóðurblöndu. Séu þessar tölur lagóar til
grundvallar, verður fóðurkostnaóur sem hér segir:
1. flokkur: 352 83 kr/á
2. -•<- : 389 95 -
3. -n- : 360 10 -
4. — I. — : 404 50 -
Hlutfallslegur fóðurkostnaður pr kg dilkakjöts verður þá
eftirfarandi: 1. flokkur: 94
2. - - 107
3. - » - 100
4. - •■ - 106