Ráðunautafundur - 12.02.1983, Page 34
94
Graskögglaflokkurinn kemur hagstæöast út úr þessum samanburói
en hafa ber ríkt í huga, að önnur hlutföll kjarnfóðurs í
heildarfóðrinu kynnu að gefa aóra útkomu. I bessu sambandi
má einnig geta þess, aó rannsóknir Stefáns Aðalsteinssonar
o.fl. (1981), bentu til, andstætt því, sem hér kom fram, að
ná mætti fullum afurðum með heygjöf einni saman, en í þeim
tilraunum hófst eldi heyflokksánna fyrr að haustinu og var
umtalsvert meira fram yfir fengitíó, en i þessari tilraun,
en svipað síðari hluta vetrar, fram að burói. Enn er mörgum
spurningum ósvaraó varóandi fóörun sauðfjár, og er brýnt að
leita á næstunni frekari svara vió því, hvernig fóörun verði
hagaó á hagkvæmastan hátt við musmunandi aöstæður.
Heimildir■
Stefán Aóalsteinsson o.fl. 1981. Tilraunir með fóórun áa á
heyi án kjarnfóóurs. Ráóunautafundur 1981: bls 237.
Stefán Sch. Thorsteinsson 1975. Fóórun áa eftir burð. Ráóu
nautafundur 1975.
Stefán Sch Thorsteinsson og Pétur Sigtryggsson 1978. Saman-
burðartilraun með þrjár tegundir af fóóurbæti og töðu-
gjöf eingöngu handa ám. Ráðunautafundur 1978: bls 308