Ráðunautafundur - 12.02.1983, Blaðsíða 58
118
Aðeins hvolpar sem hafa eðlilega vaxtargetu og feldþroska
má flokka til lífs .
Bein flokkun
Flokkunin fer fram þegar feldur dýranna er full þroskaður,
sem er venjulega dagana 20.okt. til 20. nóv.
Við beinu flokkunina er eingöngu stuðst við feldeiginleika
og stærð dýrsins, þar sem óbeina flokkunin hefur farið fram áður.
Trúnaðarmaður Búnaðarfélags fslands sem flokkar væntanleg söludýr
að haustinu, gerir auk beinu flokkunarinnar kröfur til þess að sjá
fylgikort dýrsins, óski hann þess.
1. Að dýrið sé fætt fyrir 5. júní
2. Að móðirin hafi komið upp minnst 6-7 hvolpum við fráfærur
3. Að dýrið sé vel þroskað og vegi' minnst (læður 7,0-7,5 kg
högnar 8,0-8,5 kg)
Við beina flokkun sé gefin einkunn fyrir:
1. Stærð (best vigt í kg)
2. Lit (svart til hvítt)
3. Skinngæði (vindhár, undirhár og þéttlei' i)
4. Hreinleiki (blár tónn í undirull)
5. Gallar (mislit, ullarkend, langhára lauskar o.frv.)
Til þess að geta flokkað dýrin vandlega er nauðsynlegt að
hafa góða dagsbirtu eða rafljós. Mælt er með að flokka dýrin ávallt
við sömu aðstæður og er þá best að nota rafljós 2x65 watta flúor-
perur með lit er svarar til PHILIPS fluorljósa nr. 55.
Við flokkunina er þörf á að hafa gott aðstoðarfólk til að
bera dýrin að, svo ekki þurfi að færa sig frá flokkunarljósinu.
Flokkunin er talin vera mikilvægasta starfið á loðdýx^abúinu
og þrátt fyrir að hún þarf að ganga hratt fyrir sig, verður að gæta
þess að verkið sé leyst samviskulsamlega af hendi.
1 listanum hér á eftir er sýndur fjöldi flokkaðra unglæðna
haustið 1982 ásamt meðalþunga á högnum og læðum á viðkomandi
refabúum.