Svava - 01.07.1898, Side 25
EKU J)AD FORLÖG, nENDING, HAJIINGJAjEDA HVAD? 21
ekki líkt varið með syndina? Er nokkurt l’ullkomið frelsi
til fyrir einstaklinginn, ef almenningur er ekki frjáls?
2sTú, jæ-ja; hér virðist þó vera snertur af siðferði hjá
náttúruöflunum—eins og reyndar oftar. Það er ekki svo
lítið af réttlæti og kærleiha í sólskini og regni, í sagga-
lofti mýranna og hreina liá-fjallaloftinu. En þau vinna
mest í almennings þnrfir. Þau taka einstaklinginn alls
ekki til greina. Drepsóttin hrifsar, ef til vill, á hurt
,‘liina tíu réttlátu* í borginni en snertir ekki tíu forhert-
ustu glæpamenuina, sem þar eiga heima. Saga og spurn-
ingar Jobs er endurtekiu hjá sérhverri kynslóð, um
heiin allan.
En alt fyrir það, er líf þetta býsna flókið, og ekki
svo auðvelt að aðgreiua þræðina. Eru það mín eigin
verk, eða nábúá minna, forfeðra og annara, er leiða yfir
mig þá hamingju eða óhamiugju, sem mynda lífið niitt?
Hver getur greint þessa þræði, jafnvel í sínu eigin lífi?
Ogerlegt er, að fallast á kenning Búddha-trúar-
manna, eður þá guðspekinganna. Hún er alt of þröng.
Alt er þar lög; alt ákvarðað fyrir fram. Afleiðingar af
tilveru minni, áður en ég fæddist, fylgja inér nú. Þar af
leiðir, að líf mitt nú er að eins reikningsfræðileg útkoma
(summa) af verkum mínum í fvrri tilveru miuni.