Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Side 2
Helgarblað 13.–16. maí 20162 Fréttir
S HELGASON
- Steinsmiðja síðan 1953
Opnunartími
Mán - fim 9:00 -18:00
Föstudaga 9:00 - 17:00
Laugardaga 10:00 -14:00
Sími: 557 6677
Netfang: shelgason@shelgason.is
www.shelgason.is
25% afsláttur af öllum
granít legsteinum út maí
K
affiunnendur hafa ekki farið
varhluta af því að verð á
kaffihúsum hefur hækkað
á undanförnum misserum.
Athugun DV leiðir í ljós að
verðið á tveimur vinsælum kaffi-
drykkjum hjá kaffirisunum tveimur,
Kaffitári og Tei og kaffi, hefur hækk-
að um allt að 26 prósent á aðeins
tveimur árum. Hækkanirnar eru
langt umfram verðlagsbreytingar á
tímabilinu.
Mikil hækkun milli kannana
DV gerði ítarlega verðkönnun á fjöl-
mörgum kaffihúsum í Reykjavík í lok
maí árið 2014 þar sem verð á vin-
sælum drykkjum var skoðað. Meðal
annars verð á latte og cappuccino hjá
Kaffitári og Tei og kaffi. DV endur-
tók verðkönnunina í febrúar 2015 þar
sem í ljós kom 10–15 prósenta verð-
hækkun á drykkjunum tveimur hjá
þessum tveimur umsvifamestu kaffi-
keðjum landsins. Nú rúmu ári síðar
hafa kaffibollarnir enn hækkað í verði.
Ríflega 20% hækkun
Í maí 2014 kostaði latte 495 krónur hjá
Tei og kaffi en kostar í dag 595 krónur.
Þetta er hækkun um 20 prósent, eða
100 krónur. Bolli af cappuccino kostaði
á sama tíma 475 krónur en 585 krónur
í dag og hefur því hækkað um 23 pró-
sent, eða 110 krónur.
Fyrir tveimur árum kostaði latte
500 krónur hjá Kaffitári en 630 krónur
í dag, það gerir hækkun upp á 26 pró-
sent eða 130 krónur. Cappuccino kost-
aði 470 krónur en er nú á 580 krónur og
hefur því hækkað um 23 prósent, eða
110 krónur.
Þetta segja þau um hækkanir
Forsvarsmenn fyrirtækjanna hafa gef-
ið þær skýringar á hækkunum milli
áranna 2014 og 2015 að þær megi
rekja til hærri rekstrar-, launa- og hrá-
efniskostnaðar sem og breytinga sem
urðu á virðisaukaskattþrepunum í
ársbyrjun 2015. Sem leiddu til að verð
til neytenda var hækkað. DV leitaði
skýringa hjá keðjunum á hækkunum
sem orðið hafa síðan þá.
Halldór Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri kaffihúsa hjá Tei og kaffi,
segir að verðhækkanir í vor hafi kom-
ið til vegna launahækkana í ársbyrjun,
auk þess sem verð á aðföngum frá öðr-
um fyrirtækjum hafi hækkað vegna
kjarasamninganna. Hann bendir
einnig á að skömmu eftir könnun DV í
maí 2014 hafi hækkun verið í pípunum
sem og varð, í júní 2014. Hækkun sem
beðið hafði verið með í tvö ár.
„Einnig má taka fram að við drógum
hækkun okkar vegna virðisaukaskatt-
hækkana úr 7% í 11% á nokkrum
drykkjum til baka í byrjun árs 2015.“
Sólrún Björk Guðmundsdóttir,
markaðs- og rekstrarstjóri Kaffitárs,
segir að verð á umræddum kaffidrykkj-
um hafi hækkað um fimm prósent í
apríl síðastliðnum, frá því sem var í maí
2015. Þá hafi launakostnaður kaffihúsa
aukist verulega frá því í janúar í fyrra
auk þess sem hækkun á leigu og að-
föngum sé aðalástæðan fyrir hækkun
á kaffidrykkjum í apríl síðastliðnum. n
Kaffibolli hækkað
um rúmlega 20%
Vinsælir drykkir hækkað langt umfram verðlag hjá risunum tveimur
2014
2016
Te og kaffi Verð í maí 2014 Febrúar 2015 Verð í dag Hækkun frá 2014
Latte 495 kr. 555 kr. 595 kr. 20%
Cappuccino 475 kr. 545 kr. 585 kr. 23%
Kaffitár Verð í maí 2014 Febrúar 2015 Verð í dag Hækkun frá 2014
Latte 500 kr. 550 kr. 630 kr. 26%
Cappuccino 470 kr. 520 kr. 580 kr. 23%
Svona hefur verðið hækkaðSigurður Mikael Jónssonmikael@dv.is
Vill breyta
þingsköpum
Forsetaefnið Guðni Th. Jóhann-
esson vill að þingsköpum verði
breytt þannig að lokað verði fyrir
að hægt sé að misnota umræður
um fundarstjórn forseta. „Þetta er
til í öðrum ríkjum en er misnotað á
Íslandi og nær hvergi annars stað-
ar. Þess vegna horfir almenningur
í landinu á þingið og hugsar „Hvað
er þetta fólk að gera?““ Hann seg-
ir að minnihlutinn komi í veg fyrir
að meirihlutinn ráði með málþófi.
„Svona vinnubrögð getum við ekki
liðið,“ sagði Guðni í viðtali í Bítinu
á Bylgjunni. Hann telur að málið
sé þess eðlis að forseti geti beitt sér
með beinum hætti til að fá þessu
breytt.
Svipað og
fyrir hrun
Meira er brotið á réttindum launa-
fólks núna en fyrir einum til tveim-
ur áratugum. Þetta er mat Gissurar
Péturssonar, forstjóra Vinnumála-
stofnunar. Hann var gestur í
morgunútvarpi Rásar 2 á fimmtu-
dag og sagði að verstu dæmin væri
að finna þegar útlendir atvinnu-
rekendur réðu samlanda sína í
vinnu. Hann sagði að aðstæður nú
væru svipaðar og á árunum fyrir
hrun. Gífurleg eftirspurn væri eftir
fólki. „Hugsanlega standa menn
frammi fyrir einhverjum verksamn-
ingum sem þeir eru búnir að skuld-
binda sig til að vinna en fá ekki fólk
og þá er farin stysta leið.“ Hvatinn
til að fara á svig við lög og reglur sé
ef til vill meiri en hann var áður.