Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Blaðsíða 28
Helgarblað 13.–16. maí 201628 Skrýtið Sakamál E inu sinni var, og er kannski enn, lögreglumaður í Mil­ waukee í Bandaríkjunum. Sá heitir Elfred Schultz, en var aldrei kallaður annað en Fred. Fred hafði verið kvæntur konu að nafni Christine, hjónabandið ekki gengið upp og þau á endanum skilið, eins og gengur og gerist. Fred gekk síðar, á Valentínusardag 1981 nánar til tekið, í hjónaband með Lawrenciu Bembenek. Hin nýja brúður hafði á sínum tíma einnig unnið fyrir lög­ regluna í Milwaukee, en verið rekin í september 1980. Í kjölfar brottrekstr­ arins höfðaði Lawrencia mál á hend­ ur lögregluembættinu á grundvelli kynferðislegrar mismununar en það mál verður ekki reifað hér. Lawrencia vann síðar um stutt skeið við uppvörtun í Playboy­klúbbi í borginni Lake Geneva í Wisconsin. Grímuklæddur í grænum stakk Að þessum formála loknum er ráð að snúa sér að atburðum 28. maí 1981. Að kvöldi þess dags var Christine, fyrrverandi eiginkona Freds, myrt á heimili sínu í Milwaukee. Synir hennar tveir, Sean, 11 ára, og Shann­ on, 7 ára, voru á heimilinu þegar Christine var ráðinn bani. Synir Christine lýstu morðingja móður sinnar sem grímuklædd­ um karlmanni í svörtum skóm og grænum hermannastakk. Í upp­ hafi beindust sjónir lögreglunnar að Fred, en hann hafði fjarvistarsönnun fyrir umrætt kvöld sem fékkst stað­ fest. Lawrencia handtekin En lögreglan hélt sig nærri ranni Freds og Lawrenciu og svo fór að Lawrencia var handtekin. Lögreglan taldi ekki loku fyrir það skotið að Lawrencia hefði viljað Christine feiga, enda þurfti Fred mánaðarlega að reiða fram 363 Bandaríkjadali í framfærslueyri fyrir Christine auk 330 dala í meðlag. Var það mat lög­ reglunnar að Lawrenciu hefði þótt því fé betur varið í hana sjálfa en þá fyrrverandi. Ákæruvaldið staðhæfði við rétt­ arhöldin að eingöngu Lawrencia hefði í senn haft ástæðu, tækifæri og getu til að fremja ódæðið. Hún hefði auk þess glímt við fjárhagslega örð­ ugleika, sem studdi kenningar lög­ reglunnar. Til að bæta gráu ofan á svart var morðvopnið eign Freds, skamm­ byssa sem var skráð á hann prívat og persónulega en ekki vinnuvopn hans. Fangelsisflótti Sean, eldri sonur Christine, fullyrti að það hefði ekki verið Lawrencia sem hann sá myrða móður sína. En Lawrencia hafði enga fjarvistar­ sönnun og hvað sem öllu öðru leið fékk hún lífstíðardóm í mars 1982 sem hún afplánaði í Taycheedah­ betrunarfanglesinu í Wisconsin. Lawrencia áfrýjaði dómnum í þrígang án árangurs, en til tíð­ inda dró 15. júlí 1990. Með að­ stoð nýs kærasta, Dominic „Nick“ Gugliatto, bróður samfanga síns, tókst Lawrenciu að flýja úr fangels­ inu. Skötuhjúin fóru til Thunder Bay í Ontario í Kanada en voru gripin þar glóðvolg þremur mánuðum síðar. Flóttinn varð tilefni bóka og kvik­ mynda og, síðast en ekki síst, slag­ orðs stuðningsmanna Lawrenciu „Run Bambi Run“ – hlauptu Bambi, hlauptu. Frelsi og fár Lawrencia lagði þó ekki árar í bát og, eins undarlegt og það kann að virð­ ast, fékk hún ný réttarhöld í kjöl­ far flóttans. Lyktir þeirra réttarhalda urðu að Lawrencia var sek fundin um manndráp og refsingin ákveðin sá tími sem hún hafði þá þegar af­ plánað. Lawrencia varð frjáls kona í nóvember 1992. Lawrencia skrifaði bók um reynslu sína, Woman on Trial, en líf hennar varð aldrei samt. Hún glímdi við lagaleg og persónuleg vanda­ mál; var handtekin fyrir að hafa marijúana í fórum sínum og lýsti sig gjaldþrota. Hún smitaðist af lifrar­ bólgu C og glímdi við fleiri heilsu­ tengd vandamál. Árið 2002 var tekinn af henni annar fótleggurinn, fyrir neðan hné, eftir að hún féll, eða stökk, út um glugga á þriðju hæð húss. Lawrencia Bembenek andaðist 20. nóvember 2010. Banamein hennar var lifrar­ og nýrnabilun. Eftirmáli Þess er vert að geta að Lawrencia hélt ávallt fram sakleysi sínu og full­ yrti að lögreglan hefði gert mistök varðandi ýmis mikilvæg sönnunar­ gögn. Einnig dró eitt lykilvitna ákæruvaldsins, Judy Zess, framburð sinn til baka og sagðist hafa ver­ ið beitt þrýstingi. Stuðningsmenn Lawrenciu fullyrtu einnig að hún hefði verið skotspónn lögreglunnar í Milwaukee vegna þess að hún hafði verið lykilvitni í alríkisrannsókn á spillingu innan lögreglunnar. Nokkur áhorfsmál Sumir viðruðu þá skoðun að Fred hefði sjálfur skipulagt morðið á Christine og fengið einhvern til að framkvæma það. Sem mögulegur morðingi var nefndur til sögunn­ ar Frederick Horenberger, atvinnu­ glæpamaður sem hafði unnið með Fred um skeið. Frederick var fyrrver­ andi kærasti áðurnefndrar Jude Zess og hafði, dulbúinn, nokkrum vikum fyrir morðið á Christine barið Judy til óbóta. Frederick fékk síðar tíu ára dóm fyrir það. Samkvæmt nokkrum eiðsvörn­ um yfirlýsingum, sem komu í ljós eftir að Lawrencia var sakfelld, gum­ aði Frederick sig af því, við samfanga sína, að hafa myrt Christine. Opin­ berlega neitaði Frederick nokkurri aðild að morðinu og hélt sig við þá fullyrðingu þar til hann framdi sjálfs­ morð 1991. n Fyrsti dagur Lawrenciu í réttarsal, 1981 Í ein- kennisklæðum öryggisvarðar við Marquette- háskólann. Hlauptu Bambi, hlauptu Margir sýndu Lawrenciu stuðning eftir að hún flúði úr fangelsinu. „Sean, eldri sonur Christine, fullyrti að það hefði ekki verið Lawrencia sem hann sá myrða móður sína. Hlauptu Bambi, hlauptu n Lawrencia fékk dóm fyrir að myrða Christine n Hélt ávallt fram sakleysi sínu Nick og Lawrencia Dominic kynntist Lawrenciu þegar hann heimsótti systur sína í fangelsið. Retor Fræðsla - Hlíðasmára 8, Kópavogi - Sími: 519 4800 - www.retor.is Íslensku- kennsla fyrir erlent starfsafl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.