Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Side 28
Helgarblað 13.–16. maí 201628 Skrýtið Sakamál
E
inu sinni var, og er kannski
enn, lögreglumaður í Mil
waukee í Bandaríkjunum.
Sá heitir Elfred Schultz, en
var aldrei kallaður annað en
Fred.
Fred hafði verið kvæntur konu að
nafni Christine, hjónabandið ekki
gengið upp og þau á endanum skilið,
eins og gengur og gerist. Fred gekk
síðar, á Valentínusardag 1981 nánar
til tekið, í hjónaband með Lawrenciu
Bembenek. Hin nýja brúður hafði á
sínum tíma einnig unnið fyrir lög
regluna í Milwaukee, en verið rekin í
september 1980. Í kjölfar brottrekstr
arins höfðaði Lawrencia mál á hend
ur lögregluembættinu á grundvelli
kynferðislegrar mismununar en það
mál verður ekki reifað hér.
Lawrencia vann síðar um stutt
skeið við uppvörtun í Playboyklúbbi
í borginni Lake Geneva í Wisconsin.
Grímuklæddur í grænum stakk
Að þessum formála loknum er ráð að
snúa sér að atburðum 28. maí 1981.
Að kvöldi þess dags var Christine,
fyrrverandi eiginkona Freds, myrt
á heimili sínu í Milwaukee. Synir
hennar tveir, Sean, 11 ára, og Shann
on, 7 ára, voru á heimilinu þegar
Christine var ráðinn bani.
Synir Christine lýstu morðingja
móður sinnar sem grímuklædd
um karlmanni í svörtum skóm og
grænum hermannastakk. Í upp
hafi beindust sjónir lögreglunnar að
Fred, en hann hafði fjarvistarsönnun
fyrir umrætt kvöld sem fékkst stað
fest.
Lawrencia handtekin
En lögreglan hélt sig nærri ranni
Freds og Lawrenciu og svo fór að
Lawrencia var handtekin. Lögreglan
taldi ekki loku fyrir það skotið að
Lawrencia hefði viljað Christine
feiga, enda þurfti Fred mánaðarlega
að reiða fram 363 Bandaríkjadali í
framfærslueyri fyrir Christine auk
330 dala í meðlag. Var það mat lög
reglunnar að Lawrenciu hefði þótt
því fé betur varið í hana sjálfa en þá
fyrrverandi.
Ákæruvaldið staðhæfði við rétt
arhöldin að eingöngu Lawrencia
hefði í senn haft ástæðu, tækifæri og
getu til að fremja ódæðið. Hún hefði
auk þess glímt við fjárhagslega örð
ugleika, sem studdi kenningar lög
reglunnar.
Til að bæta gráu ofan á svart var
morðvopnið eign Freds, skamm
byssa sem var skráð á hann prívat
og persónulega en ekki vinnuvopn
hans.
Fangelsisflótti
Sean, eldri sonur Christine, fullyrti
að það hefði ekki verið Lawrencia
sem hann sá myrða móður sína.
En Lawrencia hafði enga fjarvistar
sönnun og hvað sem öllu öðru leið
fékk hún lífstíðardóm í mars 1982
sem hún afplánaði í Taycheedah
betrunarfanglesinu í Wisconsin.
Lawrencia áfrýjaði dómnum
í þrígang án árangurs, en til tíð
inda dró 15. júlí 1990. Með að
stoð nýs kærasta, Dominic „Nick“
Gugliatto, bróður samfanga síns,
tókst Lawrenciu að flýja úr fangels
inu. Skötuhjúin fóru til Thunder Bay
í Ontario í Kanada en voru gripin þar
glóðvolg þremur mánuðum síðar.
Flóttinn varð tilefni bóka og kvik
mynda og, síðast en ekki síst, slag
orðs stuðningsmanna Lawrenciu
„Run Bambi Run“ – hlauptu Bambi,
hlauptu.
Frelsi og fár
Lawrencia lagði þó ekki árar í bát og,
eins undarlegt og það kann að virð
ast, fékk hún ný réttarhöld í kjöl
far flóttans. Lyktir þeirra réttarhalda
urðu að Lawrencia var sek fundin
um manndráp og refsingin ákveðin
sá tími sem hún hafði þá þegar af
plánað. Lawrencia varð frjáls kona í
nóvember 1992.
Lawrencia skrifaði bók um
reynslu sína, Woman on Trial, en líf
hennar varð aldrei samt. Hún glímdi
við lagaleg og persónuleg vanda
mál; var handtekin fyrir að hafa
marijúana í fórum sínum og lýsti sig
gjaldþrota. Hún smitaðist af lifrar
bólgu C og glímdi við fleiri heilsu
tengd vandamál.
Árið 2002 var tekinn af henni
annar fótleggurinn, fyrir neðan hné,
eftir að hún féll, eða stökk, út um
glugga á þriðju hæð húss. Lawrencia
Bembenek andaðist 20. nóvember
2010. Banamein hennar var lifrar og
nýrnabilun.
Eftirmáli
Þess er vert að geta að Lawrencia
hélt ávallt fram sakleysi sínu og full
yrti að lögreglan hefði gert mistök
varðandi ýmis mikilvæg sönnunar
gögn. Einnig dró eitt lykilvitna
ákæruvaldsins, Judy Zess, framburð
sinn til baka og sagðist hafa ver
ið beitt þrýstingi. Stuðningsmenn
Lawrenciu fullyrtu einnig að hún
hefði verið skotspónn lögreglunnar í
Milwaukee vegna þess að hún hafði
verið lykilvitni í alríkisrannsókn á
spillingu innan lögreglunnar.
Nokkur áhorfsmál
Sumir viðruðu þá skoðun að Fred
hefði sjálfur skipulagt morðið á
Christine og fengið einhvern til að
framkvæma það. Sem mögulegur
morðingi var nefndur til sögunn
ar Frederick Horenberger, atvinnu
glæpamaður sem hafði unnið með
Fred um skeið. Frederick var fyrrver
andi kærasti áðurnefndrar Jude Zess
og hafði, dulbúinn, nokkrum vikum
fyrir morðið á Christine barið Judy
til óbóta. Frederick fékk síðar tíu ára
dóm fyrir það.
Samkvæmt nokkrum eiðsvörn
um yfirlýsingum, sem komu í ljós
eftir að Lawrencia var sakfelld, gum
aði Frederick sig af því, við samfanga
sína, að hafa myrt Christine. Opin
berlega neitaði Frederick nokkurri
aðild að morðinu og hélt sig við þá
fullyrðingu þar til hann framdi sjálfs
morð 1991. n
Fyrsti dagur
Lawrenciu
í réttarsal,
1981 Í ein-
kennisklæðum
öryggisvarðar
við Marquette-
háskólann.
Hlauptu Bambi, hlauptu Margir sýndu
Lawrenciu stuðning eftir að hún flúði úr
fangelsinu.
„Sean,
eldri
sonur Christine, fullyrti
að það hefði ekki verið
Lawrencia sem hann sá
myrða móður sína.
Hlauptu
Bambi,
hlauptu
n Lawrencia fékk dóm fyrir að myrða
Christine n Hélt ávallt fram sakleysi sínu
Nick og Lawrencia Dominic
kynntist Lawrenciu þegar hann
heimsótti systur sína í fangelsið.
Retor Fræðsla - Hlíðasmára 8, Kópavogi - Sími: 519 4800 - www.retor.is
Íslensku-
kennsla
fyrir erlent
starfsafl