Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Side 30
Helgarblað 13.–16. maí 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
30 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson
Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Aflandseyjan RÚV
Fjölmiðlar greindu frá því í vik-
unni að Páll Magnússon, fyrr-
verandi útvarpsstjóri, hefði
fengið starfslokasamning upp á
rúmar 22 milljónir króna þegar
hann lét af störfum hjá RÚV.
Þetta vissu allir enda upplýsti
DV um þetta í janúar í fyrra. Hitt
sem enginn veit og RÚV heldur
leyndarhulu yfir, er hvaða aðrir
framkvæmdastjórar fengu millj-
óna starfslokasamninga. Þar ríkir
leyndarhjúpur aflandseyjanna
áfram.
Uppgjöf
Samfylk-
ingarinnar
Magnús Orri
Schram hefur
lagt til að Sam-
fylkingin verði
lögð niður og nýr flokkur stofn-
aður. Magnús Orri hefur, eins
og kunnugt er, boðið sig fram til
forystu í Samfylkingunni og það
hlýtur að teljast einsdæmi að for-
mannskandídat leggi til að flokk-
urinn sem hann er í framboði
fyrir verði hreinlega lagður niður.
Uppgjöf Samfylkingarinnar er al-
gjör ef þessi málstaður Magnús-
ar Orra nær hljómgrunni á næsta
landsfundi. En kannski hefur
samfylkingarfólk ekkert lengur
til að berjast fyrir og er tilbúið í
uppgjöf. E
inar Kárason ritar grein í helg-
arblað DV (6.–9. maí) undir
heitinu „Sannleikurinn um höf-
und Njálu“ og undirtitill í sviga,
„Þetta er einfaldara en margir halda“.
Ég veit ekki með sannleikann en
málið er fráleitt einfalt. Í sannleika sagt
hef ég beðið þess að einhver legði orð
í belg en verð víst að gera það sjálfur.
Ég sagðist ekki vita með sannleik-
ann og átti við að ég hef ekki hug-
mynd um hver skrifaði Njálu en
Einar er sannfærður um að það hafi
verið Sturla Þórðarson lögsögumaður
(1224–1280), sá hinn sami og skrif-
aði „Sturlungubók“. Í umræddri grein
nefnir hann helst máli sínu til stuðn-
ings hina þrískiptu uppbyggingu
Sturlungubókar og Njálu og ég veit
að hann hefur áður bent á ýmislegt
smálegt sem sameiginlegt er báðum
sögunum og hann nefnir ekki en kallar
það hliðstæður og enduróma sem telja
má í hundruðum. Ég veit ekki hvort sá
fjöldi er réttur.
En hver var Sturla og hver er þessi
Sturlungubók?
Sturlungubók sem Einar nefnir svo er
gróft sagt sá hluti Sturlungu sem gerist
á árunum frá ca 1220 til loka þjóðveld-
isins, 1264. Fræðimenn“ greinir á um
hve mikilvirkur rithöfundur Sturla var.
Það er hafið yfir vafa að hann skrifaði
Landnámabók (Sturlubók) og hon-
um hafa verið eignuð Kristnisaga, Ís-
lendingasaga (Sturlungubók) og af
sumum Hænsna-Þórissaga. Menn
hafa deilt um hve mikið hann reit af
Sturlungubók. Björn M. Ólsen, einn
mesti Sturlungufræðingur okkar í
samanlagðri kristni, taldi til dæmis að
hann hafi ekkert skrifað af henni eftir
Örlygsstaðabardaga og Ásgeir Jakobs-
son taldi að ekkert á árunum 1242 til
1252 væri eftir hann. Rökstuðningur
beggja er afar sannfærandi og varla
fram hjá honum horft. Fleiri hafa skrif-
að um hlutdeild hans í verkinu og sýn-
ist sitt hverjum.
Gleymum því ekki að Sturlunga í
heild sinni er varðveitt sem safnrit þar
sem steypt er saman nokkrum sam-
tímasögum og þar á meðal Sturlungu-
bókinni. Efni þeirra er hlutað sundur í
tímaröð, sumt fellt niður og einhverju
bætt við af ritara. Gleymum því heldur
ekki að Sturla var ekki viðriðinn marga
af atburðunum sem frá er greint í Sturl-
ungubók. Hann var ekki í brennunni
á Flugumýri og kom ekkert nálægt
hefndinni þótt hann væri á vissan hátt
málsaðili. Hafi hann skrifað um þetta
allt má hann hafa haft góða heimildar-
menn úr innsta kjarna allra fylkinga og
ætta. Fleiri en einn og fleiri en tvo.
Það er því aðeins Landnámabók
(Sturlubók) sem með vissu er rituð
af Sturlu Þórðarsyni. Í þeirri bók er
kjarninn ættartölur og það er líka tals-
vert af ættartölum í Njálu. Það skondna
er að sömu ættartölur eru öðruvísi í
Njálu en í Landnámabók og ólíklegt að
Sturla hafi haft af þeim sitthvora útgáf-
una í bókum sínum. Hafi hann skrifað
Kristnisögu eru þar líka mótsagnir við
kristniþátt Njálu sem bendir til þess
að þar fari sitt hvor höfundurinn. Það
er hins vegar rétt hjá Einari að það
eru hliðstæður og endurómar milli
þessara tveggja sagna en það bara á
við svo margar sögur. Höfundar Ís-
lendingasagna þáðu hver af öðrum og
stóðu á öxlum hver annars. Við vitum
líka að höfundar á öllum tímum sækja
efni til samtímans, það sem þeir þekkja
af eigin reynslu eða þekkingar sem
þeir hafa aflað sér og höfundur Njálu
er engin undantekning. Flugumýrar-
brenna og Lönguhlíðarbrenna eru
greinilega fyrir myndir höfundarins að
Njálsbrennu.
Það er hins vegar ekki alls kostar
rétt hjá Einari að Njála sé þrískipt.
Hún er eiginlega fjórskipt því hún
hefst á forleik vestur í Dölum og Njálu-
höfundur er ekki kunnugur á þeim
slóðum. Á það hafa margir fræðimenn
bent, fyrst sjálfur Árni Magnússon sem
þar var upprunninn. Sturla Þórðarson
var gagnkunnugur í Dölum, bjó þar
stærstan part lífs síns og hefði trúlega
aldrei gert sig sekan um þær missagnir
og staðþekkingarvillur, landfræðilegar
og sagnfræðilegar, sem þar koma fram.
Þær verða ekki raktar hér.
Það má af ofanskráðu sjá að ég er
ekki endilega sammála Einari og vona
að ég hafi rökstutt að málið er ekkert
einfalt. Ég endurtek að ég veit ekkert
um sannleikann en hafi Sturla Þórðar-
son lögsögumaður skrifað Njálu þá
skyldi það fara leynt. n
Þetta er
vorboði
Bubbi Morthens tónlistarmaður sá fyrsta laxinn í Laxá í Kjós í gær. – DV
Pólitískur ólgusjór
S
taðan í íslenskum stjórnmál-
um er hreint út sagt illlæsileg.
Byrjum á stöðumati á flokk-
unum.
Framsókn tók á sig brotsjó og for-
manninn tók út. Maður fyrir borð.
Það er ekki endilega það versta sem
gat komið fyrir. Það var farið að kenna
þreytu í garð Sigmundar Davíðs.
Brotthvarf hans gefur flokknum tæki-
færi til endurnýjunar. Fylgið er hins
vegar hrunið og flokkurinn stendur
frammi fyrir þeirri hættu að fara und-
ir lífsmark, sem er fimm prósent.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk líka
á sig brotsjó. Þar tók engan út. Allir
hanga á dekkinu, laskaðir og marð-
ir og virðast vera að jafna sig. Í viðtali
í DV í fyrra sagði formaður flokksins,
Bjarni Benediktsson, að flokkurinn
þyrfti að uppfæra sig. Það hefur
lítið bólað á því. Enn er þó tæki-
færi til þess. Einstaka nátttröll sem
hafa steinrunnið í flokknum ættu að
þekkja sinn vitjunartíma. En flokk-
urinn sækir á í skoðanakönnunum og
mælist nú með mest fylgi allra flokka.
Samfylkingin er sjúklingur, varla
með lífsmarki, svo vitnað sé í orð frá-
farandi formanns. Í viðtali í dag við
Kolbrúnu Bergþórsdóttur fer Árni
Páll yfir stöðuna. Hann segir í raun að
flokkurinn sé handónýtur og endur-
nýja þurfi upp í rjáfur. Það verður
ekki og vængbrotin Samfylking mun
ekki hefja sig til flugs. Raunar hefur
formannsefni tilkynnt að hann telji
nauðsynlegt að leggja flokkinn niður
og byrja upp á nýtt.
Vinstri græn hafa verið að taka
flugið. Þar er einkar geðþekkur og
alþýðlegur formaður á fleti og þjóð-
in kann að samsama sig Katrínu
Jakobsdóttur. VG er einn af þremur
flokkum sem er að mælast af þeirri
stærðargráðu að skipta máli.
Björt framtíð er það ekki lengur
Píratar eru ekki lattelepjandi
lopatreflar í Reykjavík. Þeir eru Ís-
lendingar um allt land sem eru ósátt-
ir við stöðuna. Eins og sjá má glögg-
lega í fréttaskýringu í DV í dag eru
Píratar á siglingu og hafa forystu í öll-
um kjördæmum. Sá byr er þó hverf-
ull og sjóræningjaskipið gæti hæg-
lega setið fast í tempraða beltinu.
Það veit þó enginn og ólíkindatólin
gætu hæglega fengið það brautar-
gengi sem þjóðin er sífellt að lofa.
Aðrir og óstofnaðir flokkar gætu
gert usla. En eins og staðan er í dag,
og sérstaklega ef horft er til skoðana-
könnunar Fréttablaðsins sem birtist
í gær, þá eru líkur á að tveir af þrem-
ur flokkum myndi næstu ríkisstjórn;
Sjálfstæðisflokkur, Píratar og Vinstri
græn.
Ríkisstjórnin mun njóta góðra
verka í kosningunum, en áralangur
glundroði frá hruni mun verða vatn á
myllu breytinga. Átökin um kjósend-
ur munu fara fram á miðjunni. Sam-
fylkingin brenndi sig á því að fara of
langt til vinstri. Árni Páll hefur áttað
sig á þessu en það gæti verið of seint
að ætla að endurheimta það fylgi. Á
móti kemur að margoft hefur sann-
ast undanfarnar vikur að vika er sem
eilífð í pólitík. n
allar gerðir
skreytinga
Kransar, krossar,
hjörtu og kistu-
skreytingar
Smáralind - S: 578 5075 - www.bjarkarblom.iS
Persónuleg og
fagleg þjónust
a
Ég veit ekki hvers vegna
hann tók hana frá mér
Julia, dóttir Nadezdu Eddu Tarasova, sem var myrt á Akranesi í apríl af sambýlismanni sínum. – mbl.is
Nýja starfið
leggst vel í mig
Lúðvík Geirsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, hefur verið ráðinn hafnarstjóri bæjarins. – Vísir
„Píratar eru ekki
lattelepjandi
lopatreflar í Reykjavík.
Leiðari
Eggert Skúlason
eggert@dv.is
„Ég er ekki endilega
sammála Einari og
vona að ég hafi rökstutt
að málið er ekkert einfalt.
Höfundur Njálu – flókið mál
Helgi Indriðason
Tannlæknir
Kjallari