Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Page 32
Helgarblað 13.–16. maí 201632 Fólk Viðtal
Mekka íssins
Erum í miðbæ
Hveragerðis
Ís í vél, 4 tegundir | Kúluís
Pinnaís | Krap | Bragðarefur
Ísfrappó | Sælgæti | Franskar
Samlokur | Gos | Snakk
Bland í poka | Pylsur | Kaffi
Opnunartími
mán-fim 10 - 21 / fös 10 - 22
lau 12 - 22 og sun 12 - 21 Breiðamörk 10, Hveragerði
Árni Páll Árnason lætur senn af
formennsku í Samfylkingunni. Í viðtali
ræðir hann um stöðu Samfylkingarinnar
og hina mikilvægu baráttu um miðju-
fylgið og lýsir því hvernig honum finnst
að jafnaðarmannaflokkur eigi að vera.
Óbærileg staða
Á
rni Páll Árnason hefur
ákveðið að gefa ekki kost á
sér til endurkjörs sem for
maður Samfylkingarinnar,
en hann hafði áður lýst yfir
framboði. Ákvörðun hans kom því
á óvart. Framtíð hans innan Sam
fylkingarinnar er óráðin og hann
íhugar stöðu sína. Árni er fyrst
spurður hvort hann ætli að vera
áfram í Samfylkingunni og hvort
hann ætli að bjóða sig fram til þings
fyrir flokkinn.
„Ég hætti ekki að vera jafnaðar
maður. Svo lengi sem Samfylk
ingin talar fyrir jafnaðarstefnu þá
er hún minn flokkur,“ segir Árni
Páll. „Næstu skref ætla ég að hugsa
í rólegheitum í sumar. Ég er með
fullt af hugmyndum og mig langar
til að finna þeim farveg. Ef það er
eftirspurn eftir því í kjördæmi mínu
þá get ég vel hugsað mér að gefa
kost á mér aftur.“
Hættirðu við formannsfram
boðið vegna þess að þú taldi víst að
þú myndir tapa?
„Nei. Ég vissi að ég gæti tapað en
ég sannfærðist um það á þessum
vikum sem ég kannaði stöðuna að
ég gæti líka unnið. Ég hafði lengi
verið tilbúinn að tapa en ég var
ekki tilbúinn að vinna ef áfram
yrði erfitt að fá starfsfrið. Mér leið
mjög illa sem formaður flokksins
allt frá síðasta landsfundi og fram
á vetur þegar ég sendi flokksmönn
um bréf þar sem ég fjallaði opin
skátt um það sem mér fyndist að
Samfylkingin yrði að gera ætlaði
hún að ná árangri. En þá sagði ég
líka að ég gæti ekki hugsað mér að
halda áfram ef ekkert myndi breyt
ast. Eftir að ég sendi bréfið var eins
og létt væri blýkápu af herðum mér.
Mér fannst ég aftur geta um frjálst
höfuð strokið í þessu embætti og
geta sagt það sem mér bjó í brjósti.
En þegar ég dró framboð mitt til
baka þá var það vegna þess að ég
vildi ekki ganga aftur inn í það hlut
verk að bera ábyrgð á sundruðum
hópi. Þá var betri tilhugsun að stíga
til hliðar og leyfa öðrum að spreyta
sig á því að ná aftur samstöðunni
og laða fylgið aftur til flokksins.“
Virðingarleysi við félaga
Er einhver í þingflokki Samfylk
ingarinnar sem þú hefur getað treyst
eða treystir þér? Nefndu mér ein
hvern.
„Ég ætla ekki að gefa félögum
mínum einkunn, en það hefur ekki
farið framhjá neinum að ásýnd
flokksins hefur ekki verið samhent.
Ég á einhverja sök á því og ætla ekki
að kasta ábyrgðinni alfarið á aðra.
En frá síðasta landsfundi var staða
mín algjörlega óbærileg og það
hafði áhrif jafnt innan þingflokks
ins sem almennt innan flokksins.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is