Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Síða 33
Helgarblað 13.–16. maí 2016 Fólk Viðtal 33
Fiskur er okkar fag
- Staður með alvöru útsýni
Opið allt árið, virka daga,
um helgar og á hátíðisdögum
Kaffi Duus v/ Smábátahöfnina í Keflavík - Aðeins 5 mínútur frá Leifstöð, lítið við í leiðinni • Sími: 421 7080 • duus@duus.is • Opið frá kl. 10:30 - 23:00 alla daga
Allt það besta í íslenskri og indverskri matargerð
Ég held að skortur á tiltrú á flokkinn
síðustu misseri skýrist allra helst af
þessari sundruðu ásýnd.
Það gekk mjög vel hjá okkur á
fyrri hluta kjörtímabilsins. Við sner
um hratt við stöðunni og tvöfölduð
um meðalfylgið í landinu frá því sem
það var í þingkosningunum árið
áður. Í könnunum í framhaldinu
fórum við í 20–23 prósent fylgi á
landsvísu. En frá og með síðasta
landsfundi súnkaði fylgið og okkur
hefur gengið erfiðlega að finna takt
inn á nýjan leik. Það hefur veikt mig
og alveg örugglega dregið úr tiltrú á
mér innan flokks, innan þingflokks
og annars staðar. Þess vegna var það
markmið mitt að koma málum svo
fyrir að það gæti farið fram allsherj
aratkvæðagreiðsla þannig að flokks
menn fengju tækifæri til þess að
kjósa formann beinni kosningu og
það gerist núna.“
Hvernig var fyrir þig að koma inn
á þingflokksfund og sitja á móti fólki
sem þú vissir að vildi losna við þig?
„Í mannlegu samfélagi sjáum við
alltaf einhverja flokkadrætti. Sam
starfið í þingflokknum hefur oft
gengið með ágætum en það var mér
mjög mikið áfall að fá fyrirvaralaust
mótframboð á síðasta landsfundi án
þess að nokkur umræða hefði verið
um það í flokknum að formennska
mín væri vandamál.“
Hafði engin umræða um
óánægju með þig farið fram í þing-
flokknum?
„Nei. Hjá okkur var einhver
áherslumunur eins og alltaf er í
stjórnmálum, en ekkert sem rétt
lætti fyrirvaralaust mótframboð.
Það kom mér í opna skjöldu að sjá
forystufólk sem ég hafði fundað
með reglulega og aldrei tjáð við mig
ágreining standa allt í einu að mót
framboði gegn mér.
Lykillinn að lýðræðislegri fjölda
hreyfingu er að ræða hlutina opin
skátt og koma framan að fólki og
rökræða. Ömurlegustu tímarnir í
gamla Alþýðubandalaginu voru
þegar fundir drógust fram á nótt og
maður þorði ekki heim að sofa því
þeir sem lengst sátu tóku þá fund
inn yfir og fóru að álykta í allar áttir
í nafni hans og berja á félögum sín
um fjarstöddum. Aðalkostur Sam
fylkingarinnar var að við ákváðum
að standa saman um lausn sem
allir gætu sætt sig við og virða ólík
sjónar mið. Þessi atburðarás fól í sér
fráhvarf frá þessari stefnu og hafði
ekki góð áhrif á flokkinn og það held
ég að allir hafi séð í eftirleiknum.
Það snýst ekkert um mig eða mína
persónu, heldur þessi vinnubrögð
og virðingarleysi gagnvart öðrum
félögum. Flokksmenn úti á landi
tóku þessu fyrirvaralausa mótfram
boði til dæmis mjög illa því þeir voru
búnir að ráðstafa tíma sínum miðað
við boðaða dagskrá landsfundarins
og gátu ekki gert ráðstafanir til að
koma á landsfundinn. Þetta fólk
upplifði að það hefði verið svipt at
kvæðisrétti sínum. Það er mikilvægt
að við komum í veg fyrir að atburða
rás eins og þessi endurtaki sig. Hún
var engum til góðs.“
Vill vera í Samfylkingunni
Skortir Samfylkinguna ekki ein-
hverja sérstöðu, er hún ekki að verða
of keimlík öðrum flokkum?
„Ég held að Samfylkingin hafi
mikla sérstöðu, en ekki nýtt hana
með nægilega skýrum hætti. Við
höfum stefnu sem hefur virkað
betur en nokkuð annað síðustu 100
árin og við höfum sýnt einstakan ár
angur þegar okkur hefur verið treyst
fyrir ábyrgðarhlutverki, eins og hér í
kjölfar hruns. Samfylkingin stóð að
öllum mikilvægustu ákvörðunum
og stóð oft ein gegn allra handa lýð
skrumi og töfralausnum. Ef þú kýst
Samfylkinguna ertu því að kjósa fólk
með reynslu. Það er okkar að útskýra
fyrir fólki að við skiljum þau mistök
sem við höfum gert á fyrri tíð og höf
um lært af þeim. Við eigum líka að
byggja á því besta úr glímunni við
hrunið, þegar við áttum mikil og ár
angursrík samskipti og rökræður við
verkalýðshreyfinguna, atvinnulífið
og við fjölbreyttan hóp fólks.“
Heldurðu að þú gætir átt samleið
með Viðreisn?
„Það er margt í stefnu þeirra sem
er samhljóma stefnu Samfylkingar
innar, en Viðreisn er ekki jafnaðar
flokkur. Þrátt fyrir það er í raun
meiri munur á stefnu Samfylkingar
innar og Vinstri grænna, en á stefnu
Samfylkingarinnar og Viðreisnar og
það er örugglega hægt að eiga gott
samstarf og samhljóm með Við
reisn sem umbótaafli eins og hinum
flokkunum sem við störfum með í
stjórnarandstöðunni í dag. Það á að
efla sjálfstraust Samfylkingarinnar
og verða henni hvatning til góðra
verka að sjá að Píratar, Björt fram
tíð og nú Viðreisn tefla fram stefnu
sem er að flestu leyti í samhljómi við
stefnu Samfylkingarinnar.“
Gætirðu hugsað þér að ganga úr
Samfylkingunni og í Viðreisn?
„Nei, ég vil vera í Samfylkingunni
og ég vil vera í jafnaðarmannaflokki
sem hefur metnað til að vera þessi
stóri flokkur sem rúmar ólík sjónar
mið, treystir sér til að byggja sig upp
sem fjöldahreyfingu, er tilbúinn að
vinna með verkalýðshreyfingunni,
tekur sér stöðu í miðju samfélags
ins og setur sér að vera málsvari
ólíkra hópa í samfélaginu. Stóra
spurningin sem Samfylkingin þarf
að svara skýrt á næsta landsfundi
er hvort hún sé tilbúin að vera jafn
aðarflokkur sem endurreisir sam
bandið við verkalýðshreyfinguna
og umfaðmar aðrar hreyfingar sem
vilja breyta samfélaginu til góðs.
Það er grafalvarlegt ef ekki er til
flokkur sem lítur á það sem hlut
verk sitt að standa fyrir samfélags
baráttu með verkalýðshreyfingunni
og leggja upp sameiginleg mark
mið með henni. Ég finn áhuga á
því í verkalýðshreyfingunni að til sé
alvöru jafnaðarmannaflokkur.“
Steikt útlegging Egils
Hefur Samfylkingin ekki færst of
mikið til vinstri í stað þess að höfða
til miðjunnar?
„Egill Helgason skrifaði ný
lega pistil og segir að það að ég tali
um miðjuna sýni að ég sé ekki jafn
aðarmaður. Ég hef aldrei séð jafn
steikta útleggingu á nokkrum hlut.
Jafnaðar flokkar leggja sig alltaf fram
um að ná miðjufylginu, því ef þeir
taka sér stöðu úti á vinstri kanti og
skilja miðjufylgið eftir fyrir aðra þá
komast þeir ekki til áhrifa. Í skil
greiningu sænskra jafnaðarmanna á
framtíðarflokknum er talað um flokk
sem taki sér stöðu í miðju samfé
lagsins. Ástæðan er einfaldlega sú að
ef menn ætla að stjórna landinu og
leiða meirihlutastjórn verða þeir að
geta átt samtal við ólíka hópa í sam
félaginu en geta ekki úthrópað þessa
eða hina. Víðtækt bandalag um sam
félagsbætur er forsenda árangurs í
efnahagsstefnunni. Ef það hins vegar
gerist, eins og hefur gerst núna, að
alltof margir á vinstri kanti stjórn
málanna tala niður samstarf og heil
brigða rökræðu milli ólíkra hópa, þá
skilja þeir eftir stóran hóp fólks sem
ekki finnur sig í þeirra hópi.
Jafnaðarflokkur eins og Samfylk
ingin á að styðjast við hugmynda
fræði en líka að hafa metnað til að
tala við fólk á forsendum þess sjálfs.
Ef við nálgumst ekki fólk sem ekki kýs
okkur í dag, þá komumst við ekkert
áfram. Og ef það á að þurfa að sam
þykkja fyrirfram allt sem við erum
sammála um, þá komumst við held
ur ekkert áfram. Ég hef alla tíð fundið
mikinn stuðning við þessi sjónarmið
sem ég hef sett fram um frjálslyndan,
opinn flokk í miðju samfélagsins
innan Samfylkingarinnar. Ég fékk
yfirburðakjör í formannskjöri fyrir
þessum sjónarmiðum fyrir þrem
ur árum og skynja að þau eiga enn
sterkan hljómgrunn.“
Ert þú búinn að ákveða hvern þú
ætlar að kjósa í formannskjöri?
„Mér finnst að fráfarandi
formaður flokksins eigi að sýna
flokksmönnum þá virðingu að skipta
sér ekki af því kjöri.“
Finnst þér líklegt að Samfylkingin
rétti úr kútnum við það eitt að skipta
um formann?
„Nei. Viðsnúningurinn þarf líka
að snúast um endurnýjun á vinnu
brögðum og nálgun. Kosning nýs
formanns getur verið hluti af því,
sem og endurnýjun í forystusveit og
þingliði. Ef þessi flokkur hefur metn
að til þess að vera ekki aukahjól í
stjórnmálum heldur leiða ríkisstjórn
þá verðum við að geta náð til breiðs
hóps fólks með ólíkar skoðanir en
sama markmið. Það mun VG ekki
gera, það munu Píratar heldur ekki
gera til fulls. Þetta þarf Samfylkingin
að geta gert og á ekki að skilja þetta
Ábyrgð „Ég mun ekki
finna mig í því hlutverki
að vera fyrrverandi
formaður í þingflokki og
grafa undan eftirmanni
mínum.“
Þörf á endurnýjun „Ég
held að það sé hollt að það
verði umtalsverð endurnýj-
un í hópi frambjóðenda til
Alþingis.“ Myndir Sigtryggur Ari
„Það kom
mér í opna
skjöldu að sjá
forystufólk sem
ég hafði fundað
með reglulega
og aldrei tjáð við
mig ágreining
standa allt í einu
að mótframboði
gegn mér
Óbærileg staða