Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Blaðsíða 34
Helgarblað 13.–16. maí 201634 Fólk Viðtal
hlutverk eftir fyrir aðra að grípa.
Ég finn á fólki að því finnst við gera
margt vel og er sátt við margt sem
við höfum talað fyrir. Ég hef fundið
jákvæð viðbrögð þegar við höfum
talað um að halda framhaldsskólun
um opnum fyrir fólki yfir 25 ára aldri,
þegar við börð umst fyrir því að aldr
aðir og öryrkjar fengju kjarabætur
með sama hætti og launamenn og
svo framvegis. Samfylkingunni hefur
tekist best þegar hún hefur rætt um
framtíðina, um velferðarmál og lífs
kjaramál venjulegs fólks.
Núna skiptir mestu máli fyrir okk
ur að tala um húsnæðismál, jöfn
tækifæri til náms, hagsmuni barna
fjölskyldna og heilbrigðisþjónustu.
Kosningarnar eiga af okkar hálfu
að snúast um samfélag þar sem all
ir sitja við sama borð. Um lífskjör
og velferð og þær mikilvægu grund
vallarbreytingar sem þarf að gera í
viðskiptalífi þannig að allir fái tæki
færi og útvaldir menn hætti að
auðgast á viðskiptum með annarra
manna fé. Jafnaðarmenn hafa um
áratugi verið einu boðberar frjálsrar
samkeppni og þess að verðleikar en
ekki ættgöfgi eigi að ráða gengi fólks
í samfélaginu. Reynsla síðustu miss
era sýnir okkur svart á hvítu mikil
vægi þess að halda þeirri baráttu
áfram. Við eigum líka að stilla leik
reglur viðskiptalífsins þannig af að
við setjum alvöru verðmætasköpun
í öndvegi, ekki bólugróða örfáa
einstaklinga á kostnað hinna.
Ég held að það sé hollt að það
verði umtalsverð endurnýjun í hópi
frambjóðenda til Alþingis. Þeir sem
bjóða sig fram þurfa að stimpla sig
og flokkinn inn með þeim hætti að
enginn efist um að þarna sé komin
sveit sem sé tilbúin að tala við fólkið
í landinu um það sem máli skiptir og
fá fylgi alls þorra fólks sem vill breyta
samfélaginu og jafna leikinn. Það er
óþarfi að skilja allt það fólk eftir fyrir
Viðreisn og Bjarta framtíð.“
Plan B alltaf verið til
Mig langar til að fara aftur í tímann.
Segðu mér í einlægni, hvernig voru
samskipti ykkar Jóhönnu Sigurðar-
dóttur? Hún ýtti þér út úr ríkisstjórn,
var mikil togstreita á milli ykkar?
„Í einlægni get ég sagt að sam
skipti okkar Jóhönnu voru alltaf góð.
Hún treysti mér fyrir félagsmála
ráðuneytinu og þar með glímunni
við niðurskurð og atvinnuleysi og
flutti mig síðan í efnahags og við
skiptaráðuneytið til að eiga þar við
flókin og erfið mál. Við vorum ekki
alltaf sammála, sérstaklega ekki
undir lokin þegar kom að ólíkri sýn
á það hvernig ætti að haga efnahags
stjórninni. Svo fór ég út úr ríkisstjórn
og hún skýrði það þannig að verið
væri að fækka ráðherrum. Það fór
síðan ekkert framhjá mér þegar ég
var í formannsframboði að ég naut
ekki stuðnings hennar.
Ég tók svo við sem formaður rétt
fyrir kosningar og sat ekki í ríkis
stjórn. Það var ófær staða, enda nýtt
ist stjórnarsamstarfið flokknum lítið
sem ekkert til að leggja upp mál í
aðdraganda kosninga. Áherslumál
ríkis stjórnarinnar síðustu vikurnar
voru þvert á móti til þess fallin að
valda vandræðum í baklandinu,
eins og gerð fríverslunarsamnings
við Kína. Og um sumar umdeildar
ákvarðanir ríkisstjórnarinnar las ég
í blöðum, en á sama tíma var ég að
leiða kosningabaráttu flokksins og
átti að sækja fram. Dæmi um það
var ákvörðun um að koma á nýju
greiðslufyrirkomulagi varðandi lyf
nokkrum dögum eftir kosningar. Í
dag eru flestir sammála um að nýja
greiðslukerfið hafi verið gott skref,
en á þessum tíma skapaði þetta eðli
lega mikinn ótta meðal viðkvæmasta
kjósendahóps okkar, eldri borgara og
öryrkja. Við áttum fullt í fangi með að
útskýra breytingarnar og fá atkvæði
þeirra. Ríkisstjórnin var því að taka
ákvarðanir sem nýttust ekki endilega
til að auka fylgi við flokkinn.“
Getur ekki verið að Samfylkingin
hafi of lengi einblínt á aðild að
Evrópusambandinu sem töfralausn?
Það var eins og hún væri ekki með
Plan B og nú er enginn lengur að tala
um þetta helsta áhugamál hennar,
aðild að Evrópusambandinu. Það
er enginn áhugi á því meðal lands-
manna.
„Áhuginn er fyrir hendi og það
sést á nýju framboði sem leggur
mikla áherslu á samninga við ESB,
en hann sveiflast í takt við efnahags
ástandið. Alvöru flokkur getur ekki
sveiflast með tíðarandanum. Við
höfum alltaf haft Plan B og sem efna
hagsráðherra lagði ég upp það plan
hvernig við næðum efnahagslegum
stöðugleika án aðildar að nýjum
gjaldmiðli og ég hef engan séð mót
mæla því með rökum. Það kallar til
langframa á meiri aga í ríkisútgjöld
um, meiri og hraðari niðurgreiðslu
opinberra skulda, hærra innlent
vaxtastig og þar af leiðandi minna
fé til velferðarþjónustu, heilbrigð
ismála og menntamála. Það er fær
leið, en hún mun skaða samkeppnis
stöðu okkar til langframa. Vandinn
við umræðuna er að allir hinir flokk
arnir hafa ekkert Plan A. Á meðan
erum við enn í höftum og aðstöðu
munurinn milli þeirra sem mega og
geta notað aðra gjaldmiðla og þeirra
sem geta það ekki fer stöðugt vax
andi. Ungt fólk greiðir tvöfalt hærri
fjármagnskostnað fyrir íbúðakaup
en í grannlöndunum og alþjóðlega
samkeppnishæf fyrirtæki vaxa utan
Íslands. Ef við höfum áhyggjur af
landflótta vegna lágra launa, fárra
þekkingarstarfa og hás húsnæðis
kostnaðar getum við ekki neitað að
hugsa um einu haldbæru lausnina.“
Óttast um miðjufylgið
Aftur til dagsins í dag. Finnst þér
fýsilegur kostur að Samfylkingin fari
í einhvers konar kosningabandalag
við stjórnarandstöðuflokkana?
„Mér finnst allavega að þessir
flokkar eigi að stilla saman strengi
og lofa þjóðinni því að ef þeir fái
meirihluta þá muni þeir vinna
saman eftir kosningar. Ég óttast
hins vegar að miðjufylgið fari aftur
til stjórnarflokkanna á meðan við í
Samfylkingunni búum ekki til trú
verðugan valkost. Það er mikið í húfi
að Samfylkingin nái vopnum sínum
og stöðvi flæðið yfir til stjórnar
flokkanna og tryggi meirihluta um
bótasinnaðra afla eftir kosningar.“
Magnús Orri Schram hefur
komið með þá hugmynd að leggja
Samfylkinguna niður og ný stjórn-
málahreyfing verði stofnuð – hvað
finnst þér um þá hugmynd?
„Ég vil ekki stíga inn í baráttu
formannsefna um hugmyndir um
leiðina áfram. Ég skil hugmyndina
um að fylkja fólki saman og um
hana var Samfylkingin stofnuð. Ég
hef viljað líta svo á að þetta væri
viðvarandi verkefni sem Samfylk
ingin ætti að leggja höfuðáherslu á
alla daga – að samfylkja ávallt með
öllum umbótaöflum.“
Ef þú heldur áfram á þingi, finnst
þér það þá vera þægileg hugsun að
sitja í þingflokki með nýjum for-
manni, manneskju sem vildi losna
við þig úr þeim stól?
„Ég mun ekki finna mig í því hlut
verki að vera fyrrverandi formað
ur í þingflokki og grafa undan eftir
manni mínum. Það fylgir því ábyrgð
að vera fyrrverandi formaður og
maður þarf að vanda sig í því hlut
verki. Það eru alltof mörg dæmi um
að fyrrverandi formenn stjórnmála
flokka séu helsti vandi sitjandi for
manns og óþarfi að bæta á það.
Ég sé mig ekki fyrir mér sem
eilífan augnakarl á þingi. Ég hef
hugmyndir, vil tala og berjast fyrir
þeim og er tilbúinn að gera það svo
lengi sem ég finn hljómgrunn fyrir
því að ég sé að gera gagn. Ég held að
framtíðin muni ráðast af mati á því.
Svo lengi sem Samfylkingin vill vera
jafnaðarmannaflokkur sem tekur
sér stöðu í miðju samfélagsins og
sættir sig ekki við að afhenda hægri
öflunum frumkvæðið og lykil stöðu í
samfélaginu þá á ég heima þar.“
En ef hún vill það ekki, gætirðu
þá hugsað þér aðrar pólitískar
vistar verur, annan flokk?
„Samfylkingin á að verða sterkur
og fjölmennur jafnaðarmanna
flokkur þannig að formaður hennar
standi ekki frammi fyrir spurning
um um það hvort hann eigi að fara
í aðra flokka vegna þess að fólk sé
farið að efast um að Samfylkingin
sé alvöru jafnaðarflokkur. Það að
ég fái þessa spurningu á að vera
flokksfólki áhyggjuefni og hvetja
okkur öll til dáða. Samfylkingin
verður að sýna að hún sé tilbúin
til samstarfs. Annars breytist hún í
smáflokk.
Ég gekk til liðs við Samfylk
inguna vegna þess að ég heillaðist
af þeirri hugmynd að hún væri
alvöru valkostur fyrir allan þann
fjölda fólks sem vill ekki aðhyllast
einn smáflokkinn umfram annan
og vill skapa jákvætt og uppbyggi
legt samfélag þar sem væru jöfn
tækifæri og frjáls samkeppni.
Meðan Samfylkingin gegnir þessu
hlutverki þá er hún að mæta
væntingum mínum.“ n
„Egill
Helgason
skrifaði nýlega
pistil og segir
að það að ég tali
um miðjuna sýni
að ég sé ekki
jafnaðarmaður.
Ég hef aldrei
séð jafn steikta
útleggingu á
nokkrum hlut.
Framtíðin „Ég hef hug-
myndir, vil tala og berjast
fyrir þeim og er tilbúinn að
gera það svo lengi sem ég
finn hljómgrunn fyrir því að
ég sé að gera gagn.“
Eyravegi 23, Selfossi - S: 555 1314 - ha@hannyrdabudin.is
Póst-sendum um allt land
Allt til hanny
rða160 garnt
egundir