Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Page 36
Helgarblað 13.–16. maí 201636 Fólk Viðtal
Fótbolti er bara lífið, ég þekki ekkert annað,“ segir Gary Martin sem er búinn að vera atvinnumaður í fótbolta
síðan hann var 16 ára gamall. Líklega líf sem mörg ung, fótboltasjúk íslensk ungmenni gætu hugsað sér. Gary er
núna 25 ára og hefur spilað á Íslandi síðustu sex árin. Ragnheiður Eiríksdóttir, blaðakona DV, settist niður með
Gary á kaffihúsi í miðborginni og varð mikils vísari um feril hans, fótboltann, já og ást hans á villiköttum.
„Hrokinn var
vandamál“
G
ary er fæddur og uppalinn
í smábænum Darlington
í Durham-sýslu, norðar-
lega á Englandi. Þar bjó
hann ásamt foreldrum
og systkinum þar til fótboltaferill-
inn hófst hjá Middlesbrough þegar
hann varð 16 ára. „Markmið mitt
var alltaf að lifa á fótbolta og komast
eins hátt og hægt er. Þegar ég var að
alast upp voru milljón aðrir strákar
með nákvæmlega sama draum. En
ég var heppinn og komst inn í ung-
liðaprógramm hjá Middlesbrough,
sem þýddi líka að ég hélt ekki áfram
í skóla.“
Velgengni og hroki
Gary segist hafa verið hrokafullur
á þessum árum. „Mér gekk vel og
kannski steig mér það dálítið til
höfuðs. Lífið í Middlesbrough var
rólegt og ekki mikið fjör, en heima
í Darlington voru vinir mínir. Þeir
hegðuðu sér ekki mjög gáfulega,
djömmuðu að minnsta kosti mikið,
nokkuð sem ég gat ekki leyft mér
vegna boltans. Ég þurfti að passa að
vera alltaf í toppformi. En þegar ég
kom heim að hitta þá var freistandi
að skreppa á klúbbana. Það fréttist
og ég fékk viðvörun. Svo gerðist það
aftur, þá voru mér settir afarkostir.“
Þessi hegðun var óásættanleg
að mati stjórnenda fótboltaliðsins
og Gary fékk val um að hætta í ung-
liðaprógramminu, eða flytja til
Middlesbrough, þar sem hægt væri
að hafa betra auga með honum.
„Ég fór í vist til Wendy sem var rit-
ari félagsins. Hún var ótrúlega góð
við mig, ég var með herbergi hjá
henni og hún eldaði ofan í mig og
passaði upp á mig. Ef ég hefði ekki
gert þetta hefði ég aldrei komið til
Íslands, svo ég er henni ótrúlega
þakklátur. Það er erfiðast í heimi
að segja nei við vini sína. En ég gat
ekki leyft mér það sama og þeir, gat
ekki hangið á barnum með þeim.
Wendy var besta manneskja sem
ég hefði getað lent hjá.“
Wendy kom til bjargar
Gary bjó í tvö ár hjá Wendy, en
hann fékk framlengdan samning
við félagið og var ári lengur í ung-
liðaprógramminu. „Eftir það hafði
ég ekkert val, ég varð að komast
áfram í fótboltanum. Jafnaldrar
mínir voru komnir langt fram úr
mér í námi og ég átti eiginlega ekki
afturkvæmt – ég varð að fá vinnu
við fótbolta.“ Þegar þarna var komið
sögu var búið að skipta um yfir-
stjórn hjá félaginu og Gary átti erfitt
uppdráttar. „Hrokinn var vanda-
mál hjá mér. Ég hagaði mér illa í
leik og foreldrar mínir hefðu ekki
orðið ánægðir með hegðun mína.
Þarna var ég lánaður til Ungverja-
lands og skömmu seinna var ég
svo heppinn að fá tilboð frá ÍA á Ís-
landi.“ Þegar tilboðið barst var Gary
19 ára, atvinnulaus og peninga-
laus. Hann hafði farið til reynslu til
Hartleypool, en loforð um samning
gengu ekki eftir.
Smá misskilningur í upphafi
Gary var því fljótur að þekkjast boð-
ið og flutti til Íslands sumarið 2010.
„Mér fannst þetta svo frábær staður,
enda kom ég hingað í fyrsta sinn að
sumri og hafði ekki minnstu hug-
mynd um hvernig veturinn væri
á þessari eyju lengst norður í hafi.
Seinna komst ég að því hvað vet-
urinn reynir á geðheilsuna, en
núna lít ég bara á það sem hluta
vinnunnar.“ Hann sér þó ekki eftir
því að hafa ákveðið að ganga til liðs
við ÍA, og hlær þegar hann útskýrir
fyrir blaðakonu að hann hafi aðeins
misskilið leiktíma fyrirkomulagið í
upphafi. „Ég hélt að tímabilið byrj-
aði í janúar, eins og úti, og lagði mig
brjálæðislega fram í öllum leikjun-
um sem liðið spilaði hvort sem það
voru æfingaleikir eða æfingamót.
Hérna var ég algjörlega óþekktur
og þurfti að sanna mig. Ég kom
sem sagt inn með látum og skor-
aði 30 mörk í 24 fyrstu leikjunum
mínum á Íslandi. Ég hélt að hver
einasti leikur hefði þýðingu og tók
allt mjög alvarlega.“
Þetta varð að vonum til þess að
fólk fór að taka eftir þessum mikla
markaskorara sem allt í einu var
mættur upp á Skaga. „Það var fínt
á Akranesi en mig langaði lengra, í
sterk lið eins og KR eða FH. Ég var
lánaður til Danmerkur en það gekk
ekki vel. Ég var ungur og hrokafull-
ur og hafði skorað mörk í hverjum
einasta leik á Íslandi. Ég hélt að það
yrði eins að spila úti, en það var það
alls ekki. Það er gott og nauðsyn-
legt að hafa sjálfstraust í boltanum
en hrokinn getur eyðilagt fyrir
manni.“ Um mitt sumar 2012 var
Gary seldur til KR. Þar spilaði hann
fyrstu tvö árin undir stjórn Rúnars
Kristinssonar þjálfara. „Það var
langbesta tímabilið mitt til þessa.
Mér fannst frábært að vinna með
Rúnari, enda vann ég með honum
tvo titla, og bæði silfur- og gullskó.“
Stóra KR-málið
Fótboltaáhugafólk hefur velt vöng-
um yfir því hvað gerðist eiginlega
þegar Rúnar hætti sem þjálfari
KR og Bjarni Guðjónsson tók við í
október 2014. „Hann hraktist eigin-
lega frá KR. Af hverju var hann ekki
notaður meira, hann sem var alltaf
að skora?“ sagði fótbolta fróður
vinur blaðamanns þegar fréttist að
viðtal við Gary væri á döfinni.
„Bjarni er einn besti leikmaður
sem ég hef spilað á móti, en mér
kom alls ekki saman við hann sem
þjálfara. Hann gaf mér ekki ábyrgð-
ina sem ég vildi og trúði ekki nægi-
lega á mig. Við erum báðir sterkir
persónuleikar og áttum bara ekki
skap saman. Ég var búinn að sanna
mig rækilega, en hann sá hlutina
öðruvísi en ég.“ Gary meiddist
alvarlega á hné snemma á leik-
tímabilinu 2015 í leik KR á móti
Fylki, þann 21. maí, og varð það
ekki til að bæta stöðu hans hjá
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
„Jafnaldrar
mínir voru
komnir langt fram úr
mér í námi og ég átti
eiginlega ekki
afturkvæmt
Kattavinur Markaskoraranum líður mjög vel á Íslandi.
Sérmerktu
persónulegu
gjafavörurnar
ALLT MERKILEGT
GarðatorG 3, Garðabæ - S: 555 3569 - Sala@alltmerkileGt.iS - alltmerkileGt.iS - Sala@alltmerkileGt.iS
Pantaðu í netversluninni
Hægt er að fá bæði sent heim
eða sækja í nýju versluninni okkar!
Allt
merkilegt
10 árA