Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Side 37
Helgarblað 13.–16. maí 2016 Fólk Viðtal 37
Á betri stað Gary Martin upplifði meiri ró og slökun en hann hafði áður gert, þegar hann
varð í fyrsta skipti fyrir meiðslum. Það var í maí í fyrra. myndir sigtryggur ar„Þegar ég hitti
Milos, þjálfara
liðsins, vissi hann
meira um mig en ég
sjálfur.
liðinu. „Ég man að ég sparkaði í
boltann, og fann eitthvað gefa sig
í hnénu. Ég ætlaði að hlaupa þetta
af mér, eins og maður gerir oft-
ast í leik, en það var alls ekki rétt
ákvörðun. Ég komst í færi til að
skora en gat ekki skotið, þá lagðist
ég niður því hnéð var að drepa mig.
Ég hafði aldrei áður lent í meiðsl-
um og þetta var mikið reiðarslag,
ég trúði þessu ekki. Tímasetn-
ingin var líka ömurleg, leiktímabil-
ið nýbyrjað og ég þurfti að sanna
mig fyrir nýjum þjálfara. Það liðu
næstum tveir mánuðir þar til ég
var búinn að jafna mig og kominn
í keppnisform.
Á þessum tíma lærði ég þó
meira um sjálfan mig og um fót-
bolta en nokkru sinni áður. Ég fór í
mikla lægð, enda snýst allt mitt líf
um fótbolta og allt í einu gat ég ekki
spilað. Flestir leikmenn á Íslandi
eru í vinnu líka, og fyrir mörgum er
vinnan númer eitt. Þetta er það sem
gerir fótboltann á Íslandi svo frá-
bæran, menn hafa eitthvað annað
líka og þú þarft eitthvað annað.“
Lífið er meira en fótbolti
Gary vissi hreinlega ekki hvað
hann átti að gera. Núna talar hann
samt um meiðslin af fallegu þakk-
læti. „Ég fékk ekki að spila og ég er
vanur að vilja spila hvern einasta
leik og verð ómögulegur ef ég fæ
ekki að gera það. Þetta ástand kom
út í þunglyndi og ég upplifði lægsta
punkt lífs míns. Að vakna með til-
finningu um að ég myndi aldrei
spila aftur var skelfilegt. Kærastan
mín þurfti að þola mig gegnum
þetta tímabil sem var alls ekki auð-
velt. Eftir að hafa spilað 100 leiki
í röð og setið kannski þrisvar á
bekknum var ömurlegt að geta ekki
verið með. Ég varð að einbeita mér
að batanum en þegar upp er staðið
náði ég meiri slökun og ró í hugann
á þessum tíma en ég man eftir að
hafa nokkru sinni upplifað. Það er
svo miklu meira en fótbolti í lífinu.“
nýir tímar – nýtt lið
Gary er nýgenginn til liðs við
Víking. Sú ákvörðun var honum
alls ekki erfið. „Ég var alveg rólegur
í fyrra hjá KR, enda var ég samn-
ingsbundinn, þó svo að ég fengi
ekki mikið að spila. Í lok ársins sett-
ist ég niður til að skoða málin og
þegar ég heyrði af áhuga Víkings
vissi ég strax að ég vildi fara. Þegar
ég hitti Milos, þjálfara liðsins, vissi
hann meira um mig en ég sjálfur
og planið hans fyrir liðið var mjög
áhugavert. Þegar ég skrifaði undir
fékk ég mjög sterkt á tilfinninguna
að þótt ég hefði talað við öll hin
SÉRSMÍÐAÐIR ÍSLENSKIR GLUGGAR
Gluggagerðin | Súðarvogi 3-5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is
Fallegir að innan sem utan
Vandaðir
gluggar sem hannaðir
eru til að þola
íslenska veðráttu
Gluggagerðin framleiðir fyrsta flokks tréglugga og hurðir þar
sem saman fer fallegt útlit, góð ending og vandaður frágangur.