Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Blaðsíða 38
Helgarblað 13.–16. maí 201638 Fólk Viðtal
Það er fleira en fótboltinn sem bindur
Gary við Ísland. Hann er trúlofaður Guð
rúnu Dögg Rúnarsdóttur og þau ætla að
ganga í hjónaband á næsta ári. Barneignir
eru á dagskrá, en núna eru það heimilis
kettirnir sem eiga hug unga parsins. Hann
segir meira að segja að kettirnir séu ein
ástæða þess að hann verði tregur til að
yfirgefa Ísland í bráð.
„Við eigum tvo ketti sem komu úr
Kattholti og svo björguðum við einum
villiketti. Hann fékk að borða hjá okkur í
hálft ár, en við máttum ekki snerta hann.
Þetta var stór köttur, borðaði mikið, og
leit alltaf út eins og hann hefði verið í
slag, líklega réð hann yfir köttunum í
hverfinu. Hann var alveg brjálaður, alltaf
urrandi, greip matinn sem við skildum
eftir handa honum og þaut svo burt.
Eina nóttina, þegar stormur var við það
að skella á, kom hann inn um gluggann
okkar og lagðist örmagna á gólfið. Það var
greinilegt að hann var algjörlega búinn
að vera. Þetta var í fyrsta sinn sem við
snertum hann og við sáum að það blæddi
úr einum fæti. Við fórum með hann á
dýraspítala og útlitið var svart. Hann var
svo svakalega villtur að dýralæknirinn sá
ekki annan kost í stöðunni en að svæfa
hann.
Við gátum ekki hugsað okkur það og
greiddum um 200 þúsund krónur fyrir
meðferðina sem hann þurfti.
Þegar við komum heim fékk hann
sérherbergi fyrir sig, þar jafnaði hann sig
og við læddumst inn með mat handa
honum. Smám saman byrjaði hann að
treysta okkur, fór að þola snertingu, lærði
að leika sér og lærði að mala. Baldur er
besti köttur í heimi og uppáhaldið mitt.
Að bjarga honum er það besta sem ég hef
gert í lífinu. Það kostaði sitt en ég sé svo
sannarlega ekki eftir peningunum. Þetta
er samt allt kærustunni minni að þakka,
enginn nema hún hefði látið sér detta
þetta í hug. Hún er frábær og hefur kennt
mér mikið – ég hefði ekki gert þetta fyrir
þremur árum.“
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
SKIPTU UM GLER Í SUMAR
Nú í maí er tilvalið að nýta tækifærið og endurnýja gamlar rúður því við
bjóðum 30-40% afslátt. Kíktu í heimsókn í Mörkina og skoðaðu okkar
fjölbreytta vöruúrval.
Við hlökkum til að taka á móti þér og veita góða þjónustu.
GLERBORG
Mörkinni 4
565 0000
glerborg@glerborg.is
glerborg.is
Við erum sérfræðingar
í gluggum og gleri
VORTILBOÐ
ÚT MAÍ
30-40%
AFSLÁTTUR
Kötturinn Baldur
Villikötturinn sem Gary og Guðrún björguðu
liðin hefði Víkingur alltaf orðið fyrir
valinu. Ég hefði getað verið áfram
hjá KR, en við Bjarni virkuðum bara
ekki saman og þetta var rétti tíminn
til að komast burtu.
Staðan er þó allt önn-
ur núna fyrir Gary sem
leikmann. Víking-
ur er ekki topplið
eins og KR, þar
sem gert er ráð
fyrir sigri í hverj-
um leik. „Hjá
KR ertu einn af
mörgum, þar
eru kannski 12–
13 mjög góðir
leikmenn hverju
sinni, en ekki nema
5–6 hjá Víkingi. Margir
leikmenn Víkings eru
vanmetnir að mínu mati og
fólk gerir sér ekki endilega grein
fyrir styrknum sem er möguleg-
ur. Enginn býst við því að Víkingur
vinni alla leiki og það er eiginlega
betra. Leicester sýndi okkur nýlega
að það er allt hægt og Víkingur gæti
komið á óvart.“
Trú og væntingar
Gary tekur hlutverk sitt sem leið-
togi í liðinu alvarlega. „Ég er reynd-
ur leikmaður og mér hefur gengið
vel og félagar mínir líta upp til mín.
Þeir keyptu mig og ábyrgð mín
er mikil. Þess vegna set ég mikla
pressu á sjálfan mig. Ef Víkingur
kemst í topp 3 og mín spilamennska
hjálpar er ég sáttur. Ég þarf ekki að
vinna gullskóinn.“
Það er greinilegt að Gary lítur
björtum augum á framtíðina, þó
að síðasta ár hafi verið erfitt fyrir
hann. „Ég trúi því að árangur snúist
að miklu leyti um trú og væntingar.
Ég meiddist í fyrrasumar og gerði
þess vegna ráð fyrir að leiktímabil-
ið yrði slæmt, það rættist auðvitað.
Ég var ekki hamingjusamur í fyrra,
en staðan er öll önnur núna.“
Alvöru naglar á Íslandi
En skyldi hugurinn ekkert leita út
fyrir strendur Íslands, eins og al-
gengt er hjá fótboltahetjum? Er Ís-
land nógu mikið útland fyrir
Gary Martin?
„Mér líður mjög
vel í atvinnu-
mennsku hér.
Liðsfélagar mínir
eru jarðbundnir
og auðmjúkir.
Hér er algeng-
ast að menn
vinni sína vinnu
frá 9–5 og mæti
svo á æfingu. Þetta
eru alvöru naglar og
ég ber mikla virðingu
fyrir þeim. Á Englandi er
kannski æfing á morgnana, svo
er farið heim og hangið og fæst-
ir mennta sig. Þar snýst málið um
peninga og atvinnumenn líta oft
niður á aðra. Hér eru venjulegir og
harðduglegir gæjar að spila og ég
fíla það miklu betur. Það getur al-
veg verið að ég fari út, ef rétta til-
boðið býðst á réttum tíma. En ég
mun ekki fara bara til að fara. Ég er
25 ára í dag, í betra formi en nokkru
sinni fyrr, og á kannski tíu ár eftir í
fótbolta. Mig langar að vinna titla
og fara svo út þegar tíminn er réttur.
Svo vil ég læra eitthvað og ætla að
byrja á íslenskunni næsta vetur.“ n
„Hér eru venju-
legir og harð-
duglegir gæjar að
spila og ég fíla það
miklu betur