Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Qupperneq 41
Helgarblað 13.–16. maí 2016 Sport 41
Áfangar
6. júlí 2011 – 16 ára gamall
leikur Hjörtur sinn fyrsta
deildaleik með Fylki í
meistaraflokki.
20. júní 2012 – Skrifar
undir atvinnumanna-
samning við hollenska
stórliðið PSV Eindhoven.
19. ágúst 2013 – Spilar
sinn fyrsta deildaleik í
atvinnumennsku með
varaliði PSV á móti
FC Oss í hollensku b-
deildinni.
31. janúar 2016 – Leikur
sinn fyrsta landsleik gegn
Bandaríkjunum í 3-2 tapi.
16. febrúar 2016 – Lánaður
til sænska félagsins IFK
Gautaborg sem leikur í efstu
deild.
2. maí 2016 – Spilar sinn
fyrsta leik í Allsvenskan gegn
Gefle í 6-2 sigri.
9. maí 2016 – Valinn í landsliðs-
hóp Íslands sem fer í fyrsta skipti
í lokakeppni Evrópumótsins.
Nytjamarkaður
Grensásvegi 14, bakhúsi
Útsala
og auðvitað
prúttsala
17. til 21. maí
Opið alla dagana frá
kl. 11 til 6 síðdegis.
og Norðurbrún 2
„Ég ætla mér að verða
framtíðarmaður“
V
arnarmaðurinn ungi,
Hjörtur Hermannsson,
sat spenntur við tölv-
una og horfði á beina
útsendingu frá blaða-
mannafundi Lars Lagerbäck og
Heimis Hallgrímssonar, til að kom-
ast að því hvort hann væri á leiðinni
á EM eða ekki. Hann segir í sam-
tali við DV að hann hafi upplifað
mikla gleði þegar hann sá mynd af
sér birtast á skjánum en einnig vott
af óraunveruleikatilfinningu. „Ég
trúði þessu varla í alvöru.“
Hann hafði þó lítinn tíma til að
jafna sig á fréttunum. Þegar nafn
hans kom upp voru tíu mínútur
þar til hann átti að vera mættur til
undirbúnings leiks Gautaborgar
og Djurgarden í sænsku úrvals-
deildinni – leiks sem hann lék frá
fyrstu mínútu og vann.
Fékk símtal á föstudeginum
Árbæingurinn er yngsti leikmað-
urinn sem fer fyrir Íslands hönd á
EM í Frakklandi. Hann er fæddur
árið 1995 og er tveimur árum yngri
en þeir þrír sem næstir eru honum
í aldri. Hjörtur segir að hann hafi
verið jafn vel búinn undir að fá þær
fréttir að hann yrði ekki í hópnum,
eins og þær fréttir að hann yrði á
meðal þátttakenda. „Ég fékk sím-
tal frá Heimi á föstudeginum þar
sem við ræddum stöðuna,“ segir
Hjörtur en hann er að stíga upp úr
nárameiðslum sem hann varð fyr-
ir gegn Grikkjum; sem var fyrsti a-
landsleikurinn hans í byrjunarliði.
Hann fékk ekkert að vita í því sam-
tali en segist hafa fundið á sér að
möguleikinn væri raunverulegur.
Hann segist hafa bundið vonir við
að aldurinn hjálpaði honum – að
þjálfararnir myndu í aðra röndina
horfa til framtíðar við valið á leik-
mannahópnum. Á hinn bóginn
vissi hann að hann væri að keppa
við frábæra knattspyrnumenn.
Hjörtur er, ásamt því að vera
yngstur, sá leikmaður í hópnum
sem hefur leikið fæsta a-lands-
leiki. Hjörtur setur það ekki fyrir
sig. Hann hafi spilað marga lands-
leiki fyrir yngri landsliðin og þar
með nokkrum leikmönnum sem
eru í EM-hópnum. Hann þekki aðra
leikmenn frá tíma sínum í Hollandi,
auk þess sem hann hafi í nokkur
skipti verið í a-landsliðshópnum.
Frá Fylki til PSV
„Ég er appelsínugulur í húð og hár,“
segir Hjörtur um æskuárin í boltan-
um. Með Fylki æfði hann til 17 ára
aldurs, þegar hann samdi við PSV
í Hollandi. Þar hefur hann verið
síðustu þrjú til fjögur árin. „PSV er
frábær klúbbur og það var gott að
komast til þeirra og þróa minn leik.
Ég er enn samningsbundinn þeim,“
segir Hjörtur sem hefur undan-
farin ár leikið með varaliði PSV í
næstefstu deild í Hollandi.
Það rann upp fyrir honum í haust
að eitthvað væri í það enn að hann
kæmist í aðallið PSV. Hann vissi af
áhuga nokkurra liða og óskaði eft-
ir því að fá að fara á lán. Gautaborg
varð fyrir valinu en um er að ræða
einn stærsta klúbbinn í Svíþjóð –
sem er iðulega í baráttu um titilinn.
Hjörtur hefur verið í byrjunarliðinu
í undanförnum tveimur leikjum en
hann meiddist í nára í leik Íslands
og Grikklands í mars. Þau meiðsli
settu strik í reikninginn en Hjörtur
segist hafa fengið að spila alla leik-
ina hjá Gautaborg þegar hann hef-
ur verið heill heilsu.
Hjálmar pabbinn í hópnum
Hann er afar ánægður með vista-
skiptin og segir gott að komast
í deild þar sem gerðar eru kröf-
ur til liðsins. „Stuðningsmennirn-
ir eru fljótir að láta í sér heyra ef
ekki gengur vel.“ Hann segir að hjá
liðinu sé mikil samkeppni en félag-
ið hafi verið óheppið hvað meiðsli
varðar. Hjálmar Jónsson, sem leik-
ið hefur með Gautaborg í árar-
aðir, hefur verið meiddur en þeir
Hjörtur leika báðir sem miðverðir.
Þeir náðu nokkrum leikjum saman
áður en Hjálmar meiddist. „Hann
er búinn að vera í 15 ár hjá Gauta-
borg og það er merkilegt, hvar sem
er í heiminum. Hann er faðir hóps-
ins og þekkir þetta út og inn. Það
er gott að leita til hans með spurn-
ingar, auk þess sem hann er frábær
knattspyrnumaður,“ segir Hjörtur.
„Ég hef metnað til þess“
Hann segist ekki gera sér neinar
væntingar persónulega um fram-
gang á EM. Hann setji alltaf
hag liðsins ofar eigin hag.
„En ef ég get hjálpað liðinu
á vellinum þá væri það frá-
bært. Ég tek öllum hlut-
verkum sem mér eru
ætluð. Við ætlum að
skrifa söguna og erum
hvergi nærri hættir.“
Hann segist fyrst og
fremst vera ánægð-
ur með að fá að taka
þátt í þessu ævin-
týri, enda hafi hann
mikinn áhuga á því
að verða fastamað-
ur í landsliðinu.
„Ég hef metnað
til þess. Von-
andi munum við
endurtaka þetta. Þá
get ég kannski miðl-
að einhverju af þessari
reynslu sem ég mun öðl-
ast. Ég ætla mér – von-
andi – að verða fram-
tíðarmaður og þá mun
þetta hjálpa.“ n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
n Hjörtur Hermannsson verður yngsti leikmaður Íslands á EM n Leikur með einu besta liði Svíþjóðar
Reyndur landsliðsmaður Hjörtur á að baki 55 landsleiki með yngri landsliðum Íslands.
„Við ætlum að
skrifa söguna og
erum hvergi nærri hættir.
Í leik með Gautaborg Hjörtur er að ná
sér á strik eftir meiðsli sem hann varð fyrir
í landsleik.
Spenntur
Hjörtur
tekur hverju
því hlutverki
sem honum
verður falið
á EM fagn-
andi.
n Boleyn Ground kvaddur n Reid í hóp þeirra sem skoruðu kveðjumörkin á frægum leikvöngum