Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Síða 50
Helgarblað 13.–16. maí 201650 Menning
Líkamleg og hugvíkkandi Listahátíð
n Þrítugasta Listahátíð í Reykjavík n Pólitík líkamans í forgrunni n Hanna Styrmisdóttir stýrir hátíðinni í fjórða sinn
U
m næstu helgi hefst Lista-
hátíð í Reykjavík í þrítug-
asta sinn. Fjölmargir stórir
viðburðir og frumsýningar
fara fram og heimsþekktir
listamenn sýna listir sínar á þeim
rúmlega tveimur vikum sem hátíð-
in stendur, 21. maí til 5. júní.
Hátíðin í ár ber yfirskriftina
„Síðari hluti“ því annað árið í röð
er unnið að því að rétta hluta lista-
kvenna á hátíðinni. Þó að þær séu
sjálfstæðar mynda hátíðirnar í fyrra
og í ár eins konar heild og hlutarn-
ir tveir marka á sama tíma þáttaskil
í sögu Listahátíðar, en ákveðið hef-
ur verið að hún verði aftur að tvíær-
ingi – eins og hún var frá stofnun
árið 1970 til 2005.
DV spjallaði við Hönnu Styrm-
isdóttur, listrænan stjórnanda há-
tíðarinnar, og spurði hana um há-
tíðina í ár, um jafnrétti í listum,
um hvort Listahátíð eigi ennþá er-
indi við íslenskt menningarlíf og
hennar eigin framtíð eftir fjögur ár
í starfinu.
Síðari hluti kvennaársins
Margar helstu menningarstofnanir
landsins notuðu tækifærið í fyrra,
á hundrað ára kosningaafmæli ís-
lenskra kvenna, og einbeittu sér
sérstaklega að list kvenna. Þegar
rýnt var í tölur yfir listakonur sem
höfðu komið fram á Listahátíð í
Reykjavík á árunum 1970 til 2012
varð ljóst að verulega hallaði á
þær: í myndlistinni voru konur 30%
þátttakenda, í heimstónlist voru
þær 40% og aðeins 9% á popptón-
listarsviðinu (í bókmenntum var
reyndar óvenjulega mikið jafnræði
með kynjunum þar sem konur voru
55% þátttakenda).
„Við vildum nota þetta tækifæri
til að breyta áherslum hátíðarinnar,“
útskýrir Hanna Styrmisdóttir.
„Hlutur kvenna á henni hefur
ekki verið jafn góður og karla og við
vildum nota þetta tækifæri til að
byrja að snúa því við. En við vildum
ekki bara lyfta konum upp í eitt ár
og fara svo aftur í sama farið,“ seg-
ir hún. Því var ákveðið að tileinka
konum hátíðina tvö ár í röð í þeirri
von að jafnvægið yrði smám saman
meira.
„En þetta er sjálfstætt framhald.
Hver hátíð er algjörlega sitt eigið
fyrirbæri,“ segir Hanna.
Tónninn á hátíðinni í ár er
þannig kannski ekki jafn herskár
og í fyrra, þegar femíníski lista-
hópurinn Guerilla Girls vakti máls
á bágri stöðu kvenna í íslenskum
kvikmyndaiðnaði í opnunargjörn-
ingi hátíðarinnar, en listakonur
eru þó sérstaklega áberandi á há-
tíðinni.
Hanna nefnir til dæmis Terri
Lyne Carrington, fyrstu konuna til
að hljóta Grammy-verðlaunin fyr-
ir instrumental-djassplötu, en hún
hefur fengið til liðs við sig nokkrar
af færustu djasslistakonum heims
og munu þær koma fram á tón-
leikum í Hörpu. Þá sýnir belgíska
myndlistarkonan Berlinde de Bru-
yckere teikningar og skúlptúra í
Listasafni Íslands, UR_, ný ópera
eftir Önnu Þorvaldsdóttur verð-
ur frumsýnd, auk nokkurra nýrra
listasýninga eftir íslenskar mynd-
listarkonur.
Líkaminn í forgrunni
Það er þó ekki síður í umfjöllun-
arefnum verka á hátíðinni sem
ákveðin pólitísk afstaða er falin.
„Þegar ég fór að vinna þessa há-
tíð fór ég að hugsa æ meira um
mannslíkamann – líkamann sem
grunninn að öllum okkar hug-
myndum um frelsi og mann-
réttindi,“ segir Hanna og bendir á
hvernig mörg verkanna á hátíðinni
í ár noti líkamann þannig sem vett-
vang pólitískra vangavelta.
Hvort sem það er nauðgun
Lucreciu sem er eitt meginatriðið
í verki G.F. Händels sem Sigríð-
ur Ósk Kristjánsdóttir syngur brot
úr, spurningar um heilann og góð-
mennsku í dansverkinu Play með
Shantölu Shivalingappa og Sidi
Larbi Cherkaoui, líkamlegir skúlp-
túrar Berlinde de Bruyckere eða
áherslan á dansinn sem er sérstak-
lega áberandi á hátíðinni í ár.
Einn stærsti viðburður hátíð-
arinnar verður flutningur San
Francisco-ballettsins á verkum
Helga Tómassonar, en á hinum
enda dansrófsins verður götudans-
hópurinn FlexN. „Það er eiginlega
ekki hægt að sýna meiri breidd
í dansinum á einni hátíð,“ segir
Hanna
Hún bendir einnig á hvernig
hinn einstaki dansstíll Flexing, sem
verður sýndur í opnunarverki há-
tíðarinnar, hefur á undanförnum
árum öðlast aukið pólitískt vægi í
huga Flex-frumkvöðulsins Reggie
Roc. Eftir morð lögreglu á ungum
bandarískum blökkumönnum og
uppgang mannréttindahreyfingar-
innar Black Lives Matter hefur
hann séð hvernig flexing getur ver-
ið valdeflandi og hjálpað ungu fólki
að tjá og túlka persónulega upplif-
un sína, meðal annars af rasisma
og fátækt.
Mér fannst opnunaratriðið
einmitt vera vel til fundið vegna
hinnar miklu grósku sem er í götu-
dansi á Íslandi í dag, meðal annars
hjá ungum Íslendingum sem eru af
erlendu bergi brotnir.
„Já, það skiptir svo miklu máli
að sjá lífsreynslu sína og upplif-
un endurspeglaða í menningunni.
Ég hugsaði mikið um þetta í
fyrra í tengslum við höfundar-
verk kvenna og þá ritskoðun sem
þær hafa orðið fyrir. Ég hef heyrt
margar konur tala um að þær hafi
misst áhugann á að sækja menn-
ingarviðburði af því að þær sáu
ekki reynslu sína endurspeglaða í
verkunum. Ungt fólk þarf líka að
sjá reynslu sína endurspeglaða í
hátíð eins og Listahátíð.“
Þverfagleg sveitahátíð
Hanna segir að sýningar á verkum
Helga Tómassonar rími einnig við
annað markmið hátíðarinnar í ár,
en það er að líta til baka yfir farinn
veg, nú þegar Listahátíð í Reykjavík
er haldin í þrítugasta skipti.
Hún var haldin í fyrsta skipti
árið 1970 en meðal hvatamanna að
stofnun hennar voru hljómsveitar-
stjórinn Vladimir Ashkenazy og Ivar
Eskeland, forstjóri Norræna hússins.
Á þeim tíma var mjög lítið um að
vera í íslensku menningarlífi, það
voru algjörar undantekningar ef er-
lendir listamenn komu til landsins
og engar reglulegar lista- og menn-
ingarhátíðir haldnar í borginni. Há-
tíðin gerði sér því far um að sinna
öllum listformum, en það segir
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
„Mér sýnist
þetta hafa gerst,
þegar framboðið hefur
aukist á síðustu árum
hefur breiddin samt alltaf
verið að minnka.
Mynd SiGtryGGur Ari
Vill stuðla að frumsköpun Hanna
Styrmisdóttir, listrænn stjórnandi, segir
mikilvægt að skerpa á áherslum Listahátíðar
í Reykjavík, meðal annars með því leggja
áherslu á frumsýningar og frumflutning,
panta verk og gefa listamönnum tækifæri til
að þróa verk yfir lengri tíma. Mynd SiGtryGGur Ari
Poolborð með
borðtennisborði
Ásamt
því sem
þarf til
að sPila
Pool
verð:
75.514 kr.
180x90 cm.
Pingpong.is - Suðurlandsbraut 10, Reykjavík - Sími 568 3920 & 897 1715