Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Blaðsíða 51
Helgarblað 13.–16. maí 2016 Menning 51
Líkamleg og hugvíkkandi Listahátíð
n Þrítugasta Listahátíð í Reykjavík n Pólitík líkamans í forgrunni n Hanna Styrmisdóttir stýrir hátíðinni í fjórða sinn
Hanna vera einkenni á smábæja- og
sveitahátíðum á meðan borgarhá-
tíðir séu yfirleitt sérhæfðari.
„Hátíðin varð að vera þverfagleg
því hér var ekkert annað í gangi. En
það hefur gert að verkum að hátíð-
in sker sig mjög mikið úr. Það eru
nokkrar hátíðir þverfaglegar á svip-
aðan hátt og Listahátíð en slíkar
hátíðir hafa þá einhverja ákveðna
áherslu og skýran fókus,“ segir
Hanna.
„Ég hef mest horft til Manchester
International Festival sem einbeit-
ir sér að nýjum verkum: hún hef-
ur frumkvæði að því að panta verk,
frumsýna verk og leiða saman lista-
menn úr ólíkum og oft óvæntum átt-
um. Þar sem þetta er áherslan er fólk
lítið að velta fyrir sér hvort eitthvað
heitir myndlist, sviðslist eða tónlist.“
Framboðið eykst en breiddin
minnkar
Á þeim 46 árum sem hátíðin hefur
verið haldin hefur umhverfið gjör-
breyst. Framboðið af menningar-
viðburðum hefur aukist ævintýra-
lega, sérstaklega frá og með árinu
2000 þegar Reykjavík varð ein af
menningarborgum Evrópu. Árið
2005 var ákveðið að gera hátíðina
árlega, þar sem annað hvert ár yrði
einblínt á myndlist með stórum
alþjóðlegum myndlistarsýning-
um. En af ýmsum ástæðum, meðal
annars vegna kostnaðar og minni
tekjumöguleika, rann þetta fyrir-
komulag fljótt út í sandinn.
Mikilvægi og stærð Listahátíð-
ar hefur verið umtalsvert minni
undanfarinn áratug en lengi fram-
an af. Eðli málsins samkvæmt hef-
ur ekki verið hægt að halda úti jafn
veglegri dagskrá þegar hátíðin er
haldin árlega, auk þess sem fram-
lög til hátíðarinnar hafa minnkað
og á sama tíma hafa glæsilegir list-
viðburðir orðið daglegt brauð fyr-
ir Íslendinga. En þó að framboðið
í Reykjavík hafi aukist stórkostlega
segir Hanna það ekki endilega hafa
skilað sér í stórum metnaðarfullum
listsýningum á borð við þær sem
Listahátíð hefur staðið fyrir – með-
al annars vegna niðurskurðar til
liststofnana.
„Niðurskurður hjá söfnunum
hefur haft þær afleiðingar að þau
hafa ekki lengur sama möguleika á
að koma með stórar erlendar sýn-
ingar af hinum alþjóðlega mynd-
listarvettvangi til landsins. Sýn-
ingar- og tryggingakostnaður getur
verið gígantískur. Það er því stöð-
ugur þrýstingur á menningarstofn-
anir að setja á dagskrá metsölusýn-
ingar á kostnað sýninga, viðburða
eða tónleika sem kafa dýpra. En
þegar þetta gerist þrengist sjón-
arhorn okkar á listina smám saman,
og það er í sjálfu sér mjög alvarlegt.
Mér sýnist þetta hafa gerst, þegar
framboðið hefur aukist á síðustu
árum hefur breiddin samt alltaf ver-
ið að minnka,“ segir Hanna og bend-
ir á að nauðsynlegt sé að vinna að
skýrari stefnumótun í kjölfar þeirr-
ar sprengingar sem orðið hefur í
menningarframboði á síðustu árum.
Verður aftur tvíæringur
Undir lok síðasta árs var tilkynnt
að Listahátíð í Reykjavík yrði aft-
ur að tvíæringi. Þannig verður há-
tíðin haldin næst árið 2018. Hanna
telur þetta vera skref í rétta átt til að
styrkja hátíðina á ný, bæði listrænt
og rekstrarlega, og hefja hana yfir
hið daglega flæði menningarvið-
burða. „Það er mjög erfitt að gera
hátíð af sama umfangi þegar hún er
haldin á hverju ári, og það er í raun
ekkert samfélag sem getur meðtekið
svo risavaxið fyrirbæri á hverju ári.“
En þú álítur sem sagt að hátíðin
sé ekki bara barn síns tíma, að hún
geti enn leikið mikilvægt hlutverk í
íslensku menningarlífi?
„Já, en þá þyrfti hún helst að verða
sjálfstæðari. Hugmyndin er að Lista-
hátíð starfi með öllum menningar-
stofnunum í landinu. Það getur ver-
ið mjög gefandi og frjótt samstarf, en
þegar sverfur að getur það orðið til
þess að dagskrá Listahátíðar endur-
spegli fyrst og fremst það sem er á
dagskrá samstarfsstofnana hennar
hverju sinni,“ segir Hanna.
„Hlutverk Listahátíðar í stór-
um samstarfsverkefnum hefur oft
fyrst og fremst verið að fjármagna
og kynna. Mér hefur hins vegar þótt
mikilvægt að hátíðin sé meiri ger-
andi. En hvort sem hún er gerandi,
hefur frumkvæði að hlutunum eða
er fyrst og fremst í því hlutverki að
leiða saman, fjármagna og kynna,
hefur fjárhagslegt bolmagn hennar
mikið að segja,“ segir hún.
Hanna segist telja að hátíðin eigi
hins vegar að einbeita sér að nýjum
verkum, frumsýningum og alþjóð-
legum samstarfsverkefnum sem
gera listamönnum kleift að vinna
að og sýna stærri verk á hátíðinni.
Þá leggur Hanna áherslu á hversu
mikilvægt hlutverk hátíðin hafi leik-
ið í kynna fyrir Íslendingum erlenda
listamenn og menningarstrauma
sem þeir hefðu aldrei annars
kynnst. „Hún hefur verið svo hug-
víkkandi og stækkað sjóndeildar-
hringinn svo mikið,“ segir hún.
Fjögurra ára ráðningartíma
Hönnu sem listræns stjórnanda
hátíðarinnar lýkur eftir hátíðina í ár
og samkvæmt reglum hátíðarinnar
mun starfið verða auglýst. Hún seg-
ist hins vegar ekki hafa gert upp við
sig hvort hún muni sækja um aft-
ur. „Ég er ekki enn búin að gera það
upp við mig. En mér þætti mjög
áhugavert að stýra tvíæringi,“ segir
Hanna. n
„Það skiptir svo
miklu máli að sjá
lífsreynslu sína og upp-
lifun endurspeglaðar í
menningunni.
Inni- og
útilýsing
Sími: 565 8911 & 867 8911 - www.ledljos.com - ludviksson@ludviksson.com
Led sparar
80-92% orku
Ledljós
Ludviksson ehf