Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Qupperneq 53
Helgarblað 13.–16. maí 2016 Menning 53
Heilunarskóli &
ýmis námskeið
Sími
517
4290
Erum á
Facebook
Gleði - Friður - Hamingja
Nýjaland
nyjaland@gmail.com • www.nyjaland.is
Karamella og perur Súkkulaði og ferskjur Vanilla og kókos
Bragðgóð grísk jógúrt að vestan
Líkamlegir skúlptúrar
Berlinde de Bruyckere sýnir í Listasafni Íslands
Í Listasafni Íslands verða í fyrsta skipti á Íslandi sýnd verk eftir hina heimsþekktu belgísku
listakonu Berlinde de Bruyckere en hún sló í gegn á Feneyjatvíæringnum 2003. Á sýningunni
verða þrír skúlptúrar og teikningar frá síðustu fimmtán árum.
Í verkum sínum sem vísa á margan hátt aftur í málverk flæmska skólans og þýskra endur-
reisnarmálara skapar de Bruyckere afmyndaðar fígúrur úr vaxi, feldi og hárum – ýmist
mann- eða dýrslegar. Verurnar eru líkamlegar, viðkvæmar, ljóðrænar en á sama tíma
óþægilegar og óhugnanlegar.
„Í verkum sínum notar hún til dæmis hrossaskinn sem fellur til við matvælaframleiðslu.
Maður kemst ekki þægilega hjá því að horfast í augu við hlutina,“ segir Hanna Styrmisdóttir,
listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík
Einn skúlptúranna sem verða settir upp í Listasafni Íslands hefur aldrei áður verið sýndur
opin berlega, en hann hafði verið seldur á kaupstefnu árið 2002, skömmu eftir að de
Bruyckere kláraði hann. Kaupandinn lét nafns síns ekki getið og því vissi listakonan ekki hver
átti verkið fyrr en hún rakst á það kvöld eitt í matarboði ekki alls fyrir löngu.
Hátindar Helga
San Francisco-ballettinn
Hinn heimsþekkti dansari, danshöfundur og -stjórnandi, Helgi Tómasson, snýr aftur til
Íslands með San Francisco-ballettinn.
Helgi hefur verið listrænn stjórnandi þessa elsta og eins stærsta dansflokks Bandaríkjanna í
þrjá áratugi. Á Listahátíð mun ballettinn sýna valda kafla úr mörgum af bestu verkum sínum
við meðleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborgarsal Hörpu. Þó að ballettinn hafi þrisvar
sinnum sýnt á landinu er þetta í fyrsta skipti sem hann gerir það við lifandi tónlist.
Undir stjórn Helga á síðustu þremur áratugum hefur ballettinn hlotið almenna viðurkenn-
ingu sem einn fremsti ballettflokkur heims. Hann er þekktur fyrir víðfeðma efnisskrá,
óvenjumikla breidd og hæfni dansaranna og listræna sýn sem hefur sett ný viðmið í hinum
alþjóðlega ballettheimi.
Á efnisskránni verður meðal annars verk eftir Helga sjálfan við tónlist eftir Tchaikovsky. Þá
verða sýnd verk eftir breska danshöfundinn Christopher Wheeldon við tónlist eftir Bosso og
Vivaldi, og verk eftir Rússann Alexei Ratmansky við tónlist Shostakovich.
Í leit að upp-
runanum
Óperan UR_ eftir Önnu
Þorvaldsdóttur
UR_, fyrsta ópera Önnu Þorvaldsdóttur tón-
skálds verður frumflutt á Íslandi á Listahátíð
í Reykjavík. Anna er rísandi stjarna í heimi
klassískrar tónlistar og í verkinu býður hún
áhorfendum í íhugult ferðalag um óræða
veröld í tíma og rúmi þar sem hugleiðingum um
leit að uppruna og tengingu við rætur sjálfsins
er velt upp.
Þorleifur Örn Arnarsson leikstýrir verkinu en
uppsetningin hér á landi er unnin í samstarfi við
Íslensku óperuna. Verkið er afrakstur tveggja
ára vinnu og samstarfs fjölmargra stofnana á
Grænlandi, í Noregi, Þýskalandi og á Íslandi.