Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Page 54
Helgarblað 13.–16. maí 201654 Menning
Glæsibær · Sími: 571 0977 · Opið 10-18 · www.deluxe.is
Fjölbreyttar vörur og úrval meðferða
Maí tilboð - 20% afsláttur af öllum vax meðferðum
“Hér er æðislegt tilboð frá æðislegum stelpum”.
Dýrleg
lesning
Í
slensk klassík er kiljuritröð sem
Forlagið hefur gefið út á síðustu
árum. Eins og heitið ber með sér
samanstendur ritröðin af endur-
útgáfu á íslenskum öndvegis-
verkum. Það ber að fagna þessari
útgáfu því mikilvægt er að nýjar
kynslóðir hafi greiðan aðgang að
því besta sem skrifað hefur verið á
íslensku.
Sverrir Kristjánsson sagn-
fræðingur var sannarlega ritfær
maður og það svo mjög að hrein
unun er að lesa skrif hans. Sverrir
var annar höfunda Íslenskra örlaga-
þátta sem komu út á árunum 1964–
1973 en hinn var Tómas Guð-
mundsson skáld. Úrval af þáttum
Sverris er nú komið út í ritröðinni
Íslensk klassík og er það mikið
fagnaðarefni því hér er á ferð dýrleg
lesning. Það er vel við hæfi að ann-
álaður stílisti Guðmundur Andri
Thorsson skrifi formála bókarinnar
þar sem hann fjallar um Sverri á
afar fallegan og næman hátt.
Þættirnir í þessari bók eru tíu
og Sverrir kemur víða við, segir frá
þekktum mönnum eins og Hall-
grími Péturssyni, Bólu- Hjálmari
og Bjarna Thorarensen en fjallar
einnig um óþekktari einstaklinga
og áhrifamesti þátturinn er senni-
lega sá sem fjallar um örlög niður-
setnings á 20. öld. Þættirnir eru frá-
bærlega vel stílaðir, frásagnargáfa
Sverris er mikil og smitandi og hann
hefur einstakt lag á að sviðsetja at-
burði og lesa inn í huga persóna
þannig að lesandinn trúir því að
einmitt þannig hafi þetta verið.
Dæmi um þetta er þegar höfundur
segir að ugg hafi sett að Ragnheiði
Brynjólfsdóttur þegar hún las sálm-
inn Um dauðans
óvissan tíma eftir
Hallgrím Péturs-
son í fyrsta sinn og
orðin hafi hljóm-
að eins og feigðar-
spá fyrir eyrum
hennar. Glímu
Bólu-Hjálmars við
drauginn Skottu
er lýst á svo magn-
aðan hátt að les-
andinn getur ekki
annað en trúað
hverju orði í frá-
sögninni meðan
hann les, þrátt fyr-
ir að allt sé þar með
miklum ólíkindum.
Þeir sem eru ná-
kvæmastir kunna
að finna að þeim
skáldlegu tilþrifum
sem Sverrir sýnir
svo oft og halda því fram að þau
séu ekki yfirveguð sagnfræði en lík-
legt er að allflestir lesendur heillist
einmitt sérstaklega af þeim hæfi-
lega höfundar að gæða frásögn sína
skáldlegri spennu.
Í þættinum um Bjarna
Thorarensen er sagt frá manni sem
var í meira lagi refsiglaður. Sverrir
hefur sérstakt lag á að skapa sam-
úð með þeim persónum sem hann
skrifar um en þessi þáttur sker sig
frá öðrum þáttum
bókarinnar að
því leyti að nær
ómögulegt er að
hafa samúð með
aðalpersónunni
svo harðlynd og
ofstækisfull er
hún. Í þættinum
Köld eru ómag-
ans kjör þar sem
sagt er frá hinum
unga Páli Júlíusi
og óblíðum
örlögum hans er
samúð lesand-
ans alfarið með
hinni ólánsömu
aðalpersónu og
hætt er við að
einhverjir kom-
ist við.
Örlagaþættir
Sverris Kristjánssonar
svíkja engan. Það er ekki hægt að
mæla nógsamlega með þessari
bók. Lesið og njótið. Það er
varla hægt að upplifa Íslands-
söguna á skemmtilegri hátt en í
örlagaþáttum Sverris Kristjáns-
sonar. Maður hreinlega uppveðrast
og endurnærist. n
Stílisti skrifar um stílista „Það er vel við hæfi að annálaður stílisti Guðmundur Andri Thorsson skrifi formála bókarinnar.“ Mynd Sigtryggur Ari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Bækur
Örlagaþættir
Höfundur: Sverrir Kristjánsson
Útgefandi: Forlagið
468 bls.
„Örlagaþættir
Sverris Kristjáns-
sonar svíkja engan. Það
er ekki hægt að mæla
nógsamlega með
þessari bók.
Guðrúnartúni 4,
105 reykjavík
Sími: 533 3999
www.betraGrip.iS
Opið
virka
daga frá
kl. 8–17
gæða
dekk á
góðu
verði