Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Síða 63
Helgarblað 13.–16. maí 2016 Lífsstíll 63
… komdu þá við hjá okkur
Ertu á leið í flug?
Hafnargötu 62, KEflavíK / pöntunarsími 421 4457
Hádegis-tilboð alla daga
n Núvitund í golfi og ýmsu öðru n Meira jafnvægi n Fleiri ánægjustundir
Á
sdís Olsen hefur verið
iðin að undanförnu við að
kenna Íslendingum mind
fulness (gjörhygli/núvit
und). Hún er háskóla
kennari, fjölmiðlakona og rekur
Mindfulness miðstöðina, sem býð
ur upp á alls konar námskeið, fyrir
lestra og vinnusmiðjur um efnið,
bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Við náðum tali af Ásdísi og feng
um að heyra allan sannleikann um
núvitund og hvernig iðkun þess
getur auðgað lífið.
„Núvitund er eitt þeirra ráða
sem fólk er í auknum mæli að
nota til að ráða við streitu og hraða
nútímans,“ segir Ásdís, „með
ástundun styrkjast þau svæði heil
ans sem hafa að gera með vellíðan
og hamingju. Samkvæmt nýjum
rannsóknum verða marktækar
breytingar á heilastarfseminni eftir
aðeins 8 vikur af ástundun. Við
getum í raun búið til nýjar tauga
tengingar og styrkt „hamingju
svæðin“ í heilanum. Þannig næst
meiri yfirvegun og einbeiting, öfl
ugri sköpun, betra minni og skarp
ari hugsun.“ Ásdís segir alla geta
stundað núvitund og að nokkrar
mínútur á dag geti gert gæfumun
inn fyrir marga.
Haus í holu
Það nýjasta sem er í boði hjá Ás
dísi er „mindful“golf – námskeiðið
Haus í holu – fyrir þá sem stunda
golf og vilja taka iðkunina á annað
stig. „Allir sem stunda þá íþrótt sér
til skemmtunar og afþreyingar vita
hvað einbeiting og skýr hugur skiptir
miklu máli. Ég er nýkomin frá Spáni
þar sem ég kenndi „mindful“ golf og
er sannfærð að núvitund getur auk
ið ánægju og árangur golfara til að
stunda þessa frábæru íþrótt.“
Það dylst fáum að núvitund er
mikið í umræðunni og sumir hafa talað
um tískufyrirbæri. „Málið er að núvit
und virkar. Fyrir marga er þetta svar
ið við hlutum sem eru okkur til trafala
í daglegu lífi, eins og kvíða, streitu
og áhyggjum. Við náum hugarró og
sjálfsvitund og verðum hæfari til að
njóta og upplifa að vera til.“
Líf með meðvitund
Er hægt að gera allt í núvitundargír
– elda, ryksuga og stunda kynlíf? „Já,
það er meira varið í allt með með
vitund. Núvitund býður þessa með
vitund um það sem er að gerast á
meðan það er að gerast. Við fáum
tækifæri til að upplifa í hæstu hæð
um. Ég get vel hugsað mér að vera
með hugann annars staðar þegar
ég er að ryksuga – að blasta tón
list og fíla hana. En við viljum síður
missa af upplifuninni af kynlífi. Með
núvitund lærum við að tengja við
skynfærin, við aukum næmi okkar
og fáum tækifæri til að njóta til fulls.“
Þeir sem stunda núvitund ná,
að sögn Ásdísar, betri tengingu
við sjálfa sig og aðra. „Fólk verður
flinkara við að lifa í núinu og nálg
ast sín viðfangsefni út frá forsend
um sjálfsvinsemdar og jákvæðrar
afstöðu. Árangurinn er í rauninni
ótrúlega fljótur að skila sér. Sem
dæmi um það hef ég verið með
stjórnendanámskeið í því sem
kallast Mindful Leadership ásamt
dr. Þórði Víkingi Friðgeirssyni. Þar
mælum við árangur og breytingar.
Á aðeins 14 dögum mælist allt að 40
prósent betri árangur á sumum svið
um, til dæmis við að ná valdi á kvíða
og streitu og auka einbeitingu.“
Fleiri ánægjustundir
En skyldi Ásdís sjálf alltaf vera í sjúk
lega góðu jafnvægi? Hún hlær dátt og
svarar svo: „Já, ég á miklu fleiri ánægju
stundir og læt fólk síður fara í taugarn
ar á mér. Ég tala um líf mitt fyrir og eftir
að ég kynntist núvitund. Það er miklu
skemmtilegra að lifa núna.“
Fyrir utan núvitundarnámskeiðið
Haus í holu, sem Ásdís er með í boði
þessa dagana, er ýmislegt annað á
döfinni. „Það er svo margt á döfinni
að það er spurning hvar skal byrja.
Í fyrsta lagi er ég með núvitundar
námskeið fyrir almenning. Þessi
námskeið hafa verið gífurlega vin
sæl í mörg ár og verða áfram á dag
skránni. Svo fer meiri og meiri tími
í fyrirtækjanámskeiðin okkar Þórðar
Víkings. Þar tökum við fyrirtæki og
skipulagsheildir fyrir og freistum
þess að bæta skipulag, starfsvenjur
og árangur í anda núvitundar og nú
tíma stjórnunarhátta.“ n
Ásdís Olsen
Brautryðjandi á
Íslandi í kennslu
núvitundar.
Mynd Sigtryggur Ari
Stuð á vellinum Ásdís (t.v.) ásamt hressum kylfingum.
ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Haus í Holu
„Fólk
verður
flinkara við að
lifa í núinu