Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Side 15
Helgarblað 14.–17. október 2016 Fréttir 15
Hreinsun
á kjólum
1.600 kr.
Opið
Virka daga
08:30-18:00
laugardaga
11:00-13:00
Hringbraut 119 - Einnig móttaka á 3.hæð í Kringlunni
hjá Listasaum - Sími: 562 7740 - Erum á Facebook
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Súrdeigsbrauðin
okkar eru alvöru
u Heilkorna
u 100% spelt
u Sykurlaus
u Gerlaus
u Olíulaus
Reyfarakennt útgerðarævintýri
við strendur Afríku endaði illa
andskotinn og vildi ekki gefa eftir. Ég
hélt fyrst sjálfur að þetta væri einung
is formsatriði vegna þess að þetta var
falsað, en það tók nú samt rúmlega
ár, hátt í eitt og hálft, að losa þetta og
þá var það einfaldlega orðið of seint.
Skipin lágu þarna í þennan tíma og
það varð á endanum samkomulag
að við myndum selja skipin.“ Björg
vin segir að peningarnir hafi runnið
til Landsbankans sem var eini kröfu
hafinn í þrotabúið.
Veiðar sagðar ósiðlegar
Líkt og DV fjallaði ítarlega um fyrir
nokkrum árum þá hafa íslensk fyrir
tæki, á borð við Samherja, stundað
umdeildar veiðar á makríl og sardínu
undan ströndum VesturSahara. Í
umfjöllun DV hefur meðal annars
verið vísað til gagnrýni samtakanna
WSRW, Western Sahara Resource
Watch, sem kallað hefur veiðar ís
lenskra fyrirtækja og annarra ólög
legar og ósiðlegar. Samtökin voru
með Sæblóm ehf. á lista yfir fyrirtæki
sem stunduðu það sem þau litu á
sem ólögmæta starfsemi á svæðinu.
Evrópuþjóðir sakaðar um
rányrkju
Ríkisstjórnin í Marokkó hefur ráðið
yfir VesturSahara í nærri 40 ár, allt
frá árinu 1975. Þá ákvað spænska
ríkisstjórnin að hverfa frá landsvæð
inu sem hafði verið spænsk nýlenda
um árabil. Deilt hefur verið um yfir
ráð á landsvæðinu síðan og telja
heimamenn, sem eru um 500 þús
und og kallast Sahrawimenn, að
stjórn Marokkó eigi ekki réttmætt
tilkall til svæðisins. Stjórn frelsis
hreyfingarinnar Polisario er í út
legð og berst fyrir sjálfstæði svæð
isins frá Marokkó. Veiðarnar fara
þó fram á grundvelli samninga sem
Evrópusambandið hefur gert við
yfir völd í ríkjunum á vesturströnd
Afríku. Þessir samningar hafa verið
gagnrýndir, meðal annars innan
ESB, og sagði spænski þingmaður
inn Paul Romeva að veiðarnar væru
ein tegund af nýrri nýlendustefnu (e.
neocolonialism) þar sem Evrópu
búar fái leyfi til að stunda „rányrkju.“
Tvískinnungur
Guðni Th. Jóhannesson, núver
andi forseti, sagnfræðingur og einn
fremsti sérfræðingur landsins um
þorskastríðin, sagði eitt sinn í sam
tali við DV að veiðar Íslendinga við
strendur VesturAfríku væru há
mark tvískinnungsins í sögulegu
samhengi. „Í allri okkar baráttu fyrir
verndun fiskimiðanna var rauði
þráðurinn sá að strandríkið skyldi
hafa fullan rétt á auðlindunum und
an ströndum þess.“ En hagnaðurinn
af veiðunum fer ekki til viðkomandi
lands heldur fyrirtækjanna. Að
spurður um þetta hafnar Björg
vin því að um rányrkju hafi verið að
ræða. Heimamenn hafi notið góðs af
starfsemi félagsins um árabil.
Hafnar ásökunum um rányrkju
„Það var engin rányrkja,“ segir Björg
vin spurður út í gagnrýnina. „Það var
allur afli unninn í landi þarna. Við
sköffuðum 800 manns vinnu þegar
við vorum þarna en því miður fór
þetta ekki eins og það átti að fara.
Ég var margoft beðinn um að koma
þangað aftur en ég kærði mig ekki
um að vinna í svona umhverfi. Þetta
hefði alveg getað gengið upp ef rétt
arkerfi og annað hefði verið í lagi
þarna úti.“ n
fór í þrot n „Það var engin rányrkja“
Björgvin Ólafsson Hákarll ehf., sem áður
hét Bp skip Afríka, var úrskurðað gjaldþrota
í fyrra en skiptum lauk í síðasta mánuði.
Afríkuútgerðin endaði illa eftir reyfara-
kennda atburðarás.
„Þeir sáu gull ein-
hvers staðar úti í
horni og vildu fá allt sjálfir.
Rannsókn á tölvuinnbroti hætt
Sigmundur segist líklega hafa fengið veiruna Poison Ivy Backdoor
S
igmundur Davíð Gunn
laugsson, fyrrverandi for
sætisráðherra og þingmað
ur Framsóknarflokksins,
birti í gær, fimmtudag, bréf
frá Ríkislögreglustjóra þar sem stað
fest er að rannsókn á meintu inn
broti í tölvu forsætisráðherrans
fyrrverandi hafi verið hætt. Í Face
bookfærslu Sigmundar segir að
tölvupóstur sem honum var sendur
hafi líklega innihaldið tölvuveiruna
„Poison Ivy Backdoor“.
Að sögn Sigmundar eru einkenni
veirunnar að hún opnar bakdyr inn
á „tölvu viðkomandi fyrir aðgengi
árásaraðila að tölvunni“. Veiran
fannst ekki í tölvunni en Sigmundur
segir að í gögnum sem hann hafi
fengið í krafti upplýsingalaga sé
tekið fram að algengt sé með slík
ar veirur að árásaraðilinn hreinsi til
eftir sjálfan sig að lokinni aðgerð.
Ríkislögreglustjóri kallaði eftir
upplýsingum um hið meinta inn
brot í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar
um fullyrðingar Sigmundar um að
það hefði átt sér stað. Rekstrarfélag
Stjórnarráðs Íslands skoðaði tölv
una og komst að því að engin stað
fest merki væru um innbrot. Niður
staða Ríkislögreglustjóra um að
hætta rannsókninni byggir á athug
un rekstrarfélagsins en í henni segir
að eyða eigi öllum gögnum á innra
drifi tölvunnar og tryggja að upplýs
ingar sem varða öryggi ríkisins hafi
ekki komist í hendur óviðkomandi
aðila. n ritstjorn@dv.is
Birti bréfið Sigmundur
segir hóp fólks hafa
talið það hlutverk sitt
að reyna að gera flest
það sem hann segir
ótrúverðugt.
Mynd SigTryggur Ari
Klökkur Vilhjálmur
Beygði af í ræðustól þegar hann kvaddi þingið
Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, klökknaði og virtist beygja af í ræðustól Alþingis á fimmtu
dag þar sem hann virtist vera að
kveðja þingmannsstarfið.
Sagðist Vilhjálmur stoltur af þeim
þremur og hálfa ári sem hann hefði
þjónað á Alþingi en hann væri ekki
viss um að hann fengi annað tæki
færi til þess. Því þakkaði hann kjós
endum fyrir sig. „Þegar ég geng hér
út við lok þingfundar geri ég það
í auðmýkt og lotningu. Takk fyrir,“
sagði Vilhjálmur með grátstafinn í
kverkunum.
Vilhjálmur lenti í fjórða sæti í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suð
vesturkjördæmi í lok september.
Niðurstaða prófkjörsins var mjög
umdeild sökum þess að karlar röð
uðust í efstu fjögur sætin. Þótti ótækt
að bjóða fram svo einsleitan lista og
varð niðurstaðan sú að Bryndísi Har
aldsdóttur var skotið inn í 2. sæti á
listanum. Við það færðist Vilhjálmur
niður í það fimmta og þrátt fyrir að
kjördæmið sé hið fjölmennasta á
landinu, með þrettán þingmenn, má
telja afar ólíklegt að Vilhjálmur nái
kjöri. n
freyr@eyjan.is
Vilhjálmur klökkur Vilhjálmur Bjarna-
son beygði af í ræðustól Alþingis í dag þegar
hann kvaddi þingið.