Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Síða 16
Helgarblað 14.–17. október 201616 Fréttir Erlent
S HELGASON
- Steinsmiðja síðan 1953
Opnunartími
Mán - fim 9:00 -18:00
Föstudaga 9:00 - 17:00
Laugardaga 10:00 -14:00
Sími: 557 6677
Netfang: shelgason@shelgason.is
www.shelgason.is
Sunnudaginn 16. október
verður safnaramarkaður í
Síðumúla 17 (2. hæð)
kl. 13 - 16
Mynt • Seðlar • Minnispeningar
Barmmerki • Smáprent • Frímerki
Póstkort o.fl.
Sala • Kaup • Skipti
MYNTSAFNARAFÉLAG
ÍSLANDS
Safnaramarkaður
www.mynt.is
sunnudagur
16. okt.
Í S L A N D S
•
M
Y
N
T S
A F N
A R A F É
L
A
G
•
Konungurinn sem
ríkt hafði lengst
allra kveður
n Vellauðugur, virtur, dáður og dýrkaður í Taílandi n Bhumibol Adulyadej látinn, 88 ára að aldri
B
humibol Adulyadej, konung-
ur Taílands, lést á fimmtudag
88 ára að aldri. Bhumibol
var þaulsætnasti konung-
borni þjóðhöfðingi í heim-
inum eftir 70 ár í konungsstól. Hann
var elskaður og dáður alla tíð af þjóð
sinni og var hann orðinn goðumlík-
ur maður í hugum allra Taílendinga.
Hann hafði glímt við veikindi síðast-
liðin ár. Það er Elísabet Bretlands-
drottning sem nú hefur setið lengst
allra konungborinna, en hún tók við
völdum árið 1952 eða fyrir 64 árum.
Þegar Bhumibol var upp á
sitt besta gat þessi grannvaxni,
lágróma maður kveðið valdarán og
uppreisnir í kútinn með nokkrum vel
völdum orðum eða bendingum. Svo
valdamikill var hann. DV tók saman
nokkrar vel valdar staðreyndir um
þennan dáðasta son Taílands sem
þjóðin syrgir nú svo sárt. Úttektin
byggir á upplýsingum frá Reuters-
fréttastofunni. n
Fæddur í Bandaríkjunum
Bhumibol fæddist 5. desember 1928 í Cambridge, Massachusetts í Bandaríkjunum. Hann
var annar sonur Mahidol prins sem var í læknanámi við hinn virta Harvard-háskóla á
þessum tíma.
Fjölskyldan
Bhumibol kvæntist Sirikit Kitiyakara þann 28. apríl árið 1950. Saman áttu hjónin þrjár
dætur og son, krónprinsinn Maha Vajiralongkorn sem fæddist árið 1952. Hann var fyrsti
karlkyns erfinginn til að fæðast ríkjandi konungi í 59 ár.
18 ára til valda
Bhumibol komst til valda þegar hann
var 18 ára gamall eftir að eldri bróðir
hans lést eftir byssuskot. Dauði hans
var aldrei upplýstur. Bhumibol frestaði
krýningu sinni til 1950 til að geta lokið
námi í Sviss. Á þeim tíma var herstjórn
við völd í Taílandi og framtíð konung-
dæmisins fjarri því tryggð.
Faðir þjóðar
Í hugum margra var Bhumibol hálfguð
og álitinn landsfaðir, dýrkaður og dáður.
Það hjálpaði reyndar til að það er ekki
aðeins litið hornauga að gagnrýna kon-
unginn og konungsfjölskylduna heldur
er það hreinlega bannað með lögum. Því
keppast verslanir, veitingahús, heimili
og raunar allir sem vettlingi geta valdið
við að prýða híbýli sín með myndum af
konungnum.
Virtur og
valdamikill
Í Taílandi er þingbundin konungsstjórn
en hversu dáð konungsfjölskyldan er
gerir það að verkum að í þau fáu skipti
sem hún skiptir sér af stjórnmálum, þá
eru áhrifin þeim mun meiri. Bhumibol
var því mikill áhrifavaldur í stefnumótun
ríkisstjórna.
Á valdatíma Bhumibol voru gerðar
á annan tug valdarána og valdaránstil-
rauna. En það er til marks um völd
Bhumibol að allar fylkingar lýstu ávallt
yfir hollustu við hann.
Sameiningartákn
Í október 1973 skarst Bhumibol í leikinn þegar blóðug mótmæli ungmenna og nemenda
gegn herstjórn landsins stóð sem hæst. Sannfærði hann hershöfðingjana um að stíga
til hliðar og yfirgefa landið. Í maí 1992 greip hann aftur inn í blóðug átök hermanna og
mótmælenda úr röðum lýðræðissinna sem á þremur dögum höfðu kostað fjölmarga lífið
og hundruð höfðu særst.
Djassari
Bhumibol leyndi á sér því undir skraut-
legum og ríkmannlegum klæðaburði
konungs leyndist mikill djassáhuga-
maður, saxófónleikari og tónskáld
sem meðal annars varð þess heiðurs
aðnjótandi að fá að spila með mörgum
þekktustu djassleikurum heims, þar á
meðal Benny Goodman. Þá var hann
mikill áhugamaður um ljósmyndun.
Vellauðugur
Bhumibol var ekki aðeins lengi við völd
heldur var hann einn ríkasti maður
veraldar. Forbes áætlaði árið 2011 að
konungurinn væri metinn á ríflega 30
milljarða Bandaríkjadala.
Naumhyggja
Konungurinn var ekki þekktur fyrir bruðl
né yfirgengilegan lífsstíl þrátt fyrir auð
sinn en hann leyfði sér nú hinar ýmsu
lystisemdir nútímakonunga á borð við
snekkjur og gullslegna konunglega
einkennisbúninga.
Valdamikill, virtur og
dáður Bhumibol Adulyadej,
konungur Taílands, lést á
fimmtudag 88 ára að aldri.
Hann hafði ríkt í 70 ár.
Mynd EPA
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Hjón í 66 ár Bhumibol konungur og Sirikit drottn-
ing gengu í hjónaband árið 1950. Hún hefur lítið
sést opinberlega síðustu ár. Mynd EPA
Erfinginn Krónprinsinn Maha Vajiralongkorn (t.h.) mun
að óbreyttu taka við af föður sínum sem útnefndi hann
sem arftaka sinn árið 1970. Mynd EPA
Þjóðarsorg Forsætisráðherra Taílands lýsti yfir eins árs þjóðarsorg við andlát
Bhumibol konungs. Flaggað verður í hálfa stöng í landinu í 30 daga og engir
viðburðir á vegum ríkisstjórnarinnar verða haldnir á meðan
Taílendingar syrgja. Mynd EPA