Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Blaðsíða 25
Helgarblað 14.–17. október 2016 Kynningarblað - Ljós og tenglar 5
Brautryðjandinn er
ódýrari í LED-ljósum
Lúðvíksson ehf., Njarðarbraut 3, Reykjanesbæ
F
yrirtækið Lúðvíksson ehf.
hefur getið sér orð fyrir mjög
hagstætt verð á LED-ljósa-
búnaði en ástæðan fyrir lágu
verði er ekki lágverðsinnkaup
heldur lítil yfirbygging á fyrirtækinu
og löng reynsla á markaðnum. Eig-
andinn, Guðmundur Lúðvíksson,
hóf að kynna sér LED-lýsingu árið
2006 og fór á fullt inn á þennan vett-
vang árið 2012 en þá hafði varla
nokkur maður á Íslandi heyrt talað
um LED. „Menn voru að spyrja mig
hvernig perur væru í LED en það eru
engar perur í LED heldur eru það
steinar sem gefa frá sér þessa gló
sem lýsir,“ segir Guðmundur.
Guðmundur segist berast lítið á
og forðast yfirbyggingu í rekstrinum:
„Ég rek til dæmis ekki einkabíl og
hef forðast að fara út í miklar fjár-
festingar heldur kappkosta að láta
neytendur njóta góðs af lágu verði.
Auk þess byrjaði ég í þessu löngu á
undan öðrum og náði hagstæðum
samningum þegar enginn á Íslandi
var á þessum markaði og Ísland var
óplægður akur. Ég nýt góðs af því í
dag í mínum innkaupum.“
Helstu viðskiptavinir Lúðvíksson
ehf. eru rafverktakar, sveitarfé-
lög, verslanir, hótel og önnur fyr-
irtæki. „Ég rek þetta sem eins kon-
ar heildsölu en ég vísa engum frá.
Ef Jón Jónsson vill „ledda“ hjá sér
heimilið þá spyr ég hann ekki hvort
hann sé með einhvern rekstur enda
kemur mér það ekki við,“ segir Guð-
mundur en færst hefur í vöxt að
heimili séu LED-vædd og því fylgir
mikill sparnaður: „Fólk er að setja
LED-ljós undir þakskegg og inn á
heimilið. Til dæmis venjuleg stofu-
ljós. Kosturinn liggur fyrst og fremst
í raforkusparnaði. Ef þú ert að greiða
10.000 krónur á mánuði í rafmagn
vegna hefðbundinnar lýsingar þá
getur sá kostnaður farið alveg niður í
800 krónur með LED-lýsingu.“
Það gefur augaleið að hags-
munirnir eru enn ríkari hjá fyrir-
tækjum sem yfirleitt eru með meiri
raforkukostnað en heimili. Nefnir
Guðmundur sem dæmi
fiskvinnslufyrirtæki
sem eru að keyra á
lýsingu allt að 15
tíma á dag, þar séu
mjög háar fjárhæð-
ir sem geta sparast í
raforkukostnaði.
Gríðarlegir
hagsmunir fyrir
sveitarfélög
Götulýsing eins og við þekkjum í
dag er bæði orkufrek og hefur frekar
slæma birtu í samanburði við LED-
lýsingu. Það er því ekki aðeins veru-
legur ávinningur í sparnaði fyrir t.d.
sveitarfélög/borgir og bæi að skipta
yfir í LED-lýsingu. Það er líka gríðar-
legt umferðaröryggi að hafa góða
lýsingu í vegakerfinu.
Reykjanesbær hefur
m.a. verið framsæk-
inn að í að LED-
væða götulýsingu
í bænum og nú
þegar hefur nokk-
uð verið sett upp af
þessum ljósum.
Að sögn Guð-
mundar er LED-væð-
ingin bylting sem
mun hafa mikil áhrif á líf okkar til
góðs. Ljósin veita betri lýsingu og
lækka mjög kostnað. n
Nánari upplýsingar um starf-
semina hjá Lúðvíksson er að fá á
vefsíðunni ledljos.com og símanúm-
erin hjá fyrirtækinu eru 565-8911 og
867-8911.
LED-lýsing í Seiðakvísl
LED-lýsing í Seiðakvísl
Fyrr og eftir LED-lýsingu á vegum Lúðvíksson ehf.
Fyrir og eftir LED-lýsingu á vegum Lúðvíksson ehf. LED-lýsing á plani bílaumboðsins Bernhard
Guðmundur Lúðvíksson