Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2016, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2016, Blaðsíða 2
Vikublað 22.–24. nóvember 20162 Fréttir IngIbjörg Pálma kauPIr í Högum fyrIr um 600 mIlljónIr n Félagið SM Investments eignast 1% hlut n Sjö ár síðan fjölskyldan missti verslunarveldið F élag í eigu Ingibjargar Pálma­ dóttur, stærsta hluthafa fjölmiðlafyrirtækisins 365 og eiginkonu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eignaðist fyrir skemmstu tæplega eins pró­ sents hlut í smásölurisanum Hög­ um. Kaupin voru gerð í gegnum nýstofnað fjárfestingarfélag, SM Investments ehf., en samkvæmt heimildum DV er eini hluthafi þess annað félag á vegum Ingibjargar. Miðað við núverandi gengi bréfa Haga er eignarhlutur SM Invest­ ments metinn á nærri 600 milljónir króna. Jón Ásgeir og fjölskylda voru sem kunnugt er aðaleigendur Haga, sem rekur meðal annars verslanir undir merkjum Bónuss og Hag­ kaupa, en fjölskyldan missti versl­ unarveldið úr sínum höndum fyrir um sjö árum þegar Arion banki yfir­ tók eignarhaldsfélagið 1998 sem átti þá um 95,7% hlut í Högum. Bank­ inn seldi síðar hlut sinn í félaginu til hóps einkafjárfesta og lífeyrissjóða og í kjölfarið voru Hagar skráðir í Kauphöll Íslands. Eigendur Haga í dag eru að langstærstum hluta ís­ lenskir lífeyrissjóðir, með samanlagt meira en 50% hlut í fyrirtækinu, en enga einkafjárfesta er að finna á lista yfir tuttugu stærstu hluthafa félags­ ins. Einn stjórnarmaður Ingibjörg vildi ekkert tjá sig um kaup fjárfestingarfélagsins í Högum. Eini stjórnarmaður SM Investments er Jón Skaftason, lögfræðingur og samstarfsmaður Jóns Ásgeirs um nokkurra ára skeið, en hann settist í stjórn félagsins 6. október síðast­ liðinn. SM Investments er með skráð lögheimili á Laugavegi 1b ásamt fjölmörgum öðrum félögum á veg­ um Ingibjargar. Jón starfar fyrir fjár­ festingarfélagið South Molton Capi­ tal, áður Guru Capital, og hefur átt sæti í stjórnum breskra fyrirtækja, meðal annars Murdock Limited, fé­ lags sem rekur keðju rakarastofa í Lundúnum, ásamt Jóni Ásgeiri. Samkvæmt gögnum sem var skil­ að til bresku fyrirtækjaskrárinnar í byrjun þessa árs voru félagið Guru Invest S.A. og Jón Ásgeir hluthafar í South Molton Capital. Fram kom í umfjöllun Kjarnans fyrr á árinu, byggt á gögnum sem lekið var frá lögfræðistofunni Mossack Fonseca, að Guru Invest væri með heimilis­ festi í Panama og alfarið í eigu Ingi­ bjargar. Þá hafi Jón Ásgeir um tíma verið skráður með prókúru í félaginu og tengst mörgum verkefnum sem það hefur fjármagnað á Bretlandi og Íslandi eftir fjármálaáfallið 2008. Samkvæmt upplýsingum DV kemur panamska félagið Guru Invest hins vegar ekki að fjárfestingu SM Invest­ ments í Högum. Lilja á 0,33% í Högum Kaup Ingibjargar í Högum eru ekki af þeirri stærðargráðu að þau hafi skil­ að henni á lista með tuttugu stærstu hluthöfum sem er birtur vikulega á vefsíðu félagsins. Samkvæmt lista yfir alla hluthafa í Högum í síðustu viku, sem DV hefur séð, kemur hins vegar fram að SM Investments á 11 milljónir hluta í smásölurisanum. Félagið fer því með 0,94% eignarhlut sem þýðir að það er hópi þrjátíu stærstu hluthafa fyrirtækisins. Þá á félagið Minna Hof ehf., sem er í eigu Lilju Pálmadóttur, systur Ingibjargar, jafnframt 0,33% hlut í Högum. Ingi­ björg og Lilja eru dætur Pálma Jóns­ sonar, stofnanda Hagkaupa. Jón Ásgeir og fjölskylda misstu for­ ræði yfir Högum síðla árs 2009 þegar Nýja Kaupþing, forveri Arion banka, eignaðist meirihluta í 1998 ehf., móður félagi Haga, og fékk meirihluta í stjórn félagsins. Í kjölfarið voru uppi áform um gefa fjölskyldunni, en Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónuss, var þá starfandi stjórnarformaður Haga, tækifæri til að koma með nýtt hlutafé inn í reksturinn til að endur­ fjármagna þrjátíu milljarða króna skuld 1998 ella myndi bankinn taka fyrir tækið yfir. Tilboði fjölskyldunn­ ar var hins vegar ekki tekið og þess í stað ákvað bankinn sem fyrr segir að selja 44% hlut í félaginu til innlendra kjölfestufjárfesta og skömmu síð­ ar var 30% hlutur seldur í almennu hlutafjárútboði í árslok 2011. Jón Ásgeir gagnrýndi ákvörðun bankans á sínum tíma og sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í febrúar 2011 að svo „virðist sem peningar hafi ekki haft forgang hjá Arion mönnum heldur virðist forgangsröðunin hafa verið að koma stofnendum Bónus út úr Högum.“ Hagar kaupa Lyfju Fjárhagsstaða Haga, en markaðs­ virði félagsins er um 62 milljarðar króna, er afar sterk um þessar mund­ ir og hefur góð afkoma á undanförn­ um árum meðal annars verið nýtt til að greiða hratt niður skuldir fé­ lagsins. Í lok síðasta rekstrarárs, sem lauk í febrúar á þessu ári, námu vaxtaberandi skuldir smásölurisans aðeins rúmlega 700 milljónum króna og höfðu þá lækkað um nærri átta milljarða króna á aðeins fjór­ um árum. Rekstrartekjur Haga voru tæplega 80 milljarðar króna í fyrra og eiginfjárhlutfall fyrirtækisins er um 55%. Gengi bréfa í félaginu hafa hækkað um liðlega 18% það sem af er ári en á sama tíma hefur úrvals­ vísitala Kauphallarinnar lækkað um 9%. DV greindi frá því á þriðjudaginn í liðinni viku að Hagar hefðu átt hæsta skuldbindandi kauptilboð í 100% hlut ríkisins í Lyfju og að fyrir­ tækjaráðgjöf Virðingar, sem hefur umsjón með söluferlinu, hefði því ákveðið að ganga til kaupviðræðna við smásölurisann. Í tilkynningu sem Hagar sendu til Kauphallarinn­ ar tveimur dögum síðar staðfesti fé­ lagið að það hefði undirritað samn­ ing um kaup á öllu hlutafé í Lyfju þar sem lyfjakeðjan væri metin á um 6,7 milljarða króna í viðskiptunum. n Smásölurisi Hagar reka meðal annars verslanir undir merkjum Bónuss en á síðasta ári nam velta Haga nærri 80 milljörðum króna. Mynd Sigtryggur Ari Hörður Ægisson hordur@dv.is Fyrrverandi aðal- eigendur Haga Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir. Sími: 562 5900 www.fotomax.is Yfirfærum yfir 30 gerðir myndbanda, slides og fleira Björgum minningum Persónulegar gjafir við öll tækifæri Allt til að merkja vinnustaðinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.