Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2016, Blaðsíða 16
Vikublað 22.–24. nóvember 201616 Fréttir Erlent
Ledlýsing fyrir sundlaugar,
íþróttahús, skóla og fleira
Sveitarfélög
athugið
Led sparar
80-92% orku
Sími: 565 8911 & 867 8911
ludviksson@ludviksson.com
www.ledljos.com
ludviksson ehf
ledljós
K O L R E S T A U R A N T · S K Ó L A V Ö R Ð U S T Í G U R 4 0 · S Í M I 5 1 7 7 4 7 4 · K O L R E S T A U R A N T . I S
JÓLASTEMNINGIN
HEFST 23. NÓV
…og matseðillinn fer í léttan jólabúning
VILLIBRÁÐARSÚPA,
TVÍREYKT HANGIKJÖT,
TÚNFISKUR,
DJÚPSTEIKT ANDAR-CONFIT,
GRAFIÐ HREINDÝR,
HANGIREYKTUR LAX,
KRÓNHJÖRTUR OG PURUSTEIK eða KOLAÐUR LAX,
MÖNDLUKAKA
Verð 8.990 kr. á mann
Borðapantanir í síma 517 7474 eða kolrestaurant.is
KVÖLD
JÓLAMATSEÐILL
Sprautar eitri á sóknarbörn sín
Sjálfskipaður spámaður í Suður-Afríku segir skordýraeitur lækna krabbamein og HIV
S
tjórnvöld í Suður-Afríku
rannsaka nú sóknarprestinn
og sjálfskipaða spámann-
inn Lethebo Rabalago sem
fullyrðir að skordýraeitrið
Örlagadómur (e. Doom) lækni fólk
af krabbameini og HIV. Presturinn
hefur sprautað eitrinu í andlit
sóknarbarna sinna og myndir af
trúarathöfnunum gengið manna á
milli á Facebook og Twitter.
Bænheyrn í brúsa
Rabalago leiðir safnaðarstarf trú-
félagsins Mountzion General Ass-
embly í héraðinu Limpopo í Suð-
ur-Afríku. Af myndunum sem birtar
voru á samfélagsmiðlum að dæma
hefur hann sprautað eitrinu í augu
og á ýmsa líkamsparta sóknarbarn-
anna.
„Örlagadómur er einungis nafn,
en ef þú talar til þess, um að það
verði að lækningavöru, þá verður
það að slíkri. Fólk er læknað og bæn-
heyrt í gegnum örlagadóminn,“ segir
í færslu á Facebook-síðu kirkjunnar.
Þar má einnig finna vitnisburði fólks
sem fullyrðir að skordýraeitrið hafi
læknað það af hinum ýmsu kvillum.
Rannsóknarnefnd skipuð
Spámaðurinn hefur ekki viljað tjá sig
við fjölmiðla um fullyrðingar hans
um lækningarmátt eitursins. Fram-
leiðandi þess, suðurafríska fyrirtækið
Tiger Brands, segir það áhyggjuefni
að varan sé notuð í þessum tilgangi.
„Við viljum taka það fram að það
er hættulegt að sprauta Örlagadómi
eða öðru sambærilegu framan í fólk.
Eitrið hefur verið þróað til að drepa
ákveðin skordýr og á umbúðum þess
er varað við því að efnið sé notað á
annan hátt,“ segir í tilkynningu fyrir-
tækisins. Forsvarsmenn hafa reynt
að ná sambandi við prestinn til að
fá hann til að hætta notkun þess við
trúarathafnir.
Yfirvöld í Suður-Afríku hafa skip-
að sérstaka rannsóknarnefnd sem á
að kanna trúarathafnir Rabalago og
aðrar sambærilegar sem aðrir sjálf-
skipaðir spámenn þar í landi hafa
stundað. Annar prestur þar var ný-
verið gagnrýndur þegar myndir birt-
ust sem sýndu hann keyra fólks-
bíl yfir sóknarbörn sín. Í öðru tilviki
sannfærði prestur söfnuð sinn um
að borða snáka og gras og drekka
bensín sér til lækninga. n
„Þetta er
áhyggjuefni
fyrir alla“
Rúmlega hundrað milljónir trjáa hafa drepist á árinu
Þ
essi sláandi fjölgun er
áhyggjuefni fyrir alla,“ segir
Max Gomberg, bandarískur
loftslagssérfræðingur, um
ógnvekjandi tölur yfir trjádauða í
Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Miklir þurrkar hafa geisað í Kali-
forníu á árinu og síðan í maí er áætl-
að að 36 milljónir trjáa hafi drepist í
þjóðgörðum Kaliforníuríkis. Þegar
tölur fyrir allt árið eru skoðaðar
kemur í ljós að rúmlega hundrað
milljónir trjáa hafa drepist á árinu,
eða um þriðjungur allra trjáa í þjóð-
görðum Kaliforníu.
Sumar þessara trjátegunda sem
hafa drepist geta undir eðlilegum
kringumstæðum lifað í nokkur
hundruð ár. Þurrkar hafa gert það að
verkum að trén drepast og þar sem
miklir hitar hafa ríkt þurfa trén meiri
vökva en ella.
Það er ekki bara trjádauðinn sem
slíkur sem vekur ugg hjá sérfræðing-
um heldur er hættan af þurrum,
dauðum trjám mikil þegar skógar-
eldar eru annars vegar. Eldurinn á
þá auðveldara um vik að dreifast
um skóglendi með tilheyrandi hættu
fyrir dýr og menn í næsta nágrenni.
Það sem af er þessu ári hefur
helmingur þess fjár sem Skógar-
þjónusta Bandaríkjanna, US For-
est Service, fær á fjárlögum farið í
slökkvistarf vegna skógarelda. n
einar@dv.is
Skógareldar Þurrkar í Kaliforníu
hafa valdið miklum trjádauða í
ríkinu á árinu. Eftir því sem dauð-
um trjám fjölgar aukast líkurnar á
hættulegum skógareldum.