Fréttablaðið - 25.05.2017, Síða 2

Fréttablaðið - 25.05.2017, Síða 2
Það má í sjálfu sér furðu sæta að bani hafi ekki hlotist af. Guðmundur Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Garðvíkur Vilja fjölga kvótaflóttamönnum Meðlimir úr ungliðaráði og starfsfólk Íslandsdeildar Amnesty International afhentu í gær Þorsteini Víglundssyni, félags- og jafnréttismálaráðherra, rúmlega fimm þúsund undirskriftir þar sem skorað er á stjórnvöld að fjölga kvótaflóttamönnum hér á landi. Í tilkynningu frá Amnesty segir að samtökin fagni fjölgun í móttöku kvótaflóttamanna undanfarin ár, en að samtökin vilji gera enn betur í þeim efnum. Fréttablaðið/Eyþór Veður Austan og norðaustan 5-13 m/s og víða dálítil rigning um morguninn. Hægari vindur og styttir upp þegar líður á daginn, en ákveðin norð- austanátt norðvestan til á landinu. sjá síðu 28 COSTA DEL SOL 28. maí í 7 nætur Netverð á mann frá kr. 59.995 m.v. 2 fullorðna í gistingu m/ekkert innifalið. Netverð á mann frá kr. 74.995 m.v. 2 fullorðna í gistingu m/allt innifalið. Stökktu Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . Frá kr. 74.995 m/allt innifalið Frá kr. 59.995 m/ekkert fæði innif. stjórnmál „Nei, ég er ekki að stofna nýjan flokk,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður  Fram- sóknarflokksins, aðspurður en hann boðaði í gær stofn un nýs fé lags, Fram fara fé lags ins.  „Félagið mun vonandi þróast með tímanum og láta til sín taka á ýmsan hátt en þetta er ekki stofnað sem stjórnmálaflokkur. Ég vona hins vegar að stjórnmálaflokkar muni nýta sér það sem kemur frá þessari hugmyndasmiðju og ekki hvað síst minn eigin flokkur.“ Sigmundur segir sjálfur að félagið eigi að stuðla að framförum á öllum sviðum samfélagsins og að því komi fólk hvaðanæva úr samfélaginu; Framsóknarmenn, fólk úr öðrum flokkum og þeir sem aldrei hafa haft formlega aðkomu flokkum. „Þetta mun allavega nýtast mér í starfi stjórnmálamanns og ég hlakka til að fara á fundi með flokksmönn- um í kjördæminu til að ræða nýjar lausnir,“ segir Sigmundur. Alþekkt er að þingflokkur Fram- sóknar hefur ekki siglt lygnan sjó undanfarið, eða allar götur síðan Sig- urður Ingi Jóhannsson hafði betur í formannskjöri gegn Sigmundi í október í fyrra. Þá var hart tekist á á miðstjórnarfundi flokksins  síð- asta laugardag. Sjálfur hefur S i g m u n d u r sagt flokkinn laskaðan eftir átökin undan- farið. – ósk Segir félagið ekki nýjan stjórnmálaflokk slys Litlu munaði að verkamaður á vegum fyrirtækisins Garðvíkur á Húsavík stórslasaðist eða léti lífið í fyrradag þegar hann rak steypu- styrktarjárn í gegnum rafmagnskap- al í bænum. Rafmagnskapall Rarik lá átta sentimetrum undir malbiki en á samkvæmt reglugerðum að vera á tíu sinnum meira dýpi, eða á 70-90 sentimetra dýpi. Guðmundur Vilhjálmsson, eig- andi fyrirtækisins, er að vonum ósáttur við að starfsmenn hans hafi verið í stórhættu þegar atvikið varð. „Mínir menn voru að vinnu við að laga kantstein á Húsavík þegar þetta átti sér stað. Við Baughól 52 erum við að reka steypujárn niður, nokkra sentimetra ofan í jörðina, þegar hann fer í gegnum þennan raf- magnskapal,“ segir Guðmundur. Og segir manninn heppinn að vera á lífi. „Það má í sjálfu sér furðu sæta að bani hafi ekki hlotist af, strengurinn er 400 volt og 250 amper á strengn- um. Það sem varð manninum til lífs var að hann var í einangruðum skóm og gúmmíhandfang var á sleggjunni þegar hann rak í sundur strenginn.“ Strengurinn þessi liggur frá tengi- virki að spennistöð og á að vera á miklu meira dýpi. Steingrímur Sigurður Jónsson, yfirmaður net- reksturs RARIK á Norðurlandi, segir fyrirtækið hafa tekið yfir rekstur raf- veitu á Húsavík á sínum tíma og því ekki lagt strenginn. Samt sem áður sé ábyrgðin þeirra. „Við munum taka til skoðunar þetta mál í heild sinni og skoða raflagnir á Húsavík. Það sem gerist þarna er að gatan er lækkuð á einhverju tímabili og því færist gatan nær strengnum,“ segir Steingrímur. Hann beinir einnig þeim til- mælum til fólks að hafa samband áður en farið er í framkvæmdir. „Það er nokkuð algengt að farið sé í gegnum strengi og við erum boðnir og búnir til að aðstoða. Við mælum með að einstaklingar hafi samband við okkur og við skoðum stöðu strengja svo hægt sé að varast þá,“ bætir Steingrímur við. sveinn@frettabladid.is Illa staðsettur kapall á Húsavík olli lífshættu Heppnin ein réð því að starfsmaður Garðvíkur gekk ómeiddur frá því að reka steypustyrktarjárn í gegnum rafmagnskapal RARIK. Kapallinn var á átta senti- metra dýpi. Lá þannig mun grynnra undir malbiki en reglugerðir segja til um. Eins og sjá má á þessari mynd lá strengurinn aðeins rétt undir götunni. Mynd/GuðMundur VilhjálMsson Dómsmál Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykja- víkur í máli sem kona höfðaði gegn íslenska ríkinu. Krafðist við- komandi þess að íslenska ríkið viðurkenndi skaðabótaskyldu vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir á hægri hendi í kjölfar læknis- meðferðar á Landspítalanum árið 2001. Sýknaði héraðsdómur ríkið af kröfunni í fyrra en málskostnaður var felldur niður, bæði í héraði og Hæstarétti. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að í matsgerð tveggja dóm- kvaddra manna hefði því verið lýst að haga hefði mátt meðferð konunnar á annan hátt en gert var. Þó hafi sönnun á því að mis- tök sem gætu leitt til skaðabóta- skyldu hefðu verið gerð ekki falist í áliti mannanna, fremur en í öðrum gögnum málsins. – þea Ríkið ekki skaðabótaskylt 2 5 . m a í 2 0 1 7 F I m m t u D a G u r2 F r é t t I r ∙ F r é t t a B l a ð I ð 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :5 2 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 1 6 -C E 5 4 1 D 1 6 -C D 1 8 1 D 1 6 -C B D C 1 D 1 6 -C A A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 2 4 5 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.