Fréttablaðið - 25.05.2017, Síða 8
199 kr.kg
Rauðar vatnsmelónur, Kosta Ríka
Krónan
mælir með!
Sjúkra-
hús 94,9% 75,8% 84,1% 66,1% 69,8% 92,9% 97,2%
Heilsu-
gæslu-
stöðvar
89,7% 75,0% 61,3% 51,6% 91,3% 91,9% 91,9%
Hið opinbera á fyrst og fremst að reka ...
Vilja aukið fé
91,9 prósent aðspurða vilja að ríkið
veiti meira fé til heilbrigðismála, 7,1
prósent óbreytt fé en einungis 1 pró-
sent minna fé til heilbrigðismála.
1,0%7,1%
91,9%
n Meira fé n Minna fé n Óbreytt fé
100
80
60
40
20
0
Æ fleiri vilja ríkisrekstur
Þeim fjölgar frá árinu 2006 sem vilja
að hið opinbera verji meira fé til heil-
brigðismála.
2006 2015 2017
81
,5
%
90
,9
%
91
,9
%
800.000
700.000
600.000
500.000
400.000
300.000
200.000
100.000
02000 2004 2008 2012 2014 2000 2004 2008 2012 20142000 2004 2008 2012
n Heilsugæslulæknar n Göngudeildarlæknar n Einkastofulæknar
66
2.
42
2
74
8.
52
9
78
5.
46
9
63
3.
37
2
58
8.
26
0
40
4.
00
0
49
0.
00
0
60
1.
00
0
48
0.
24
8
43
2.
65
8
48
1.
39
1
53
5.
45
1
65
8.
85
5
71
8.
92
6
Heimsóknir sjúklinga 2000–2016
*Heimild: Rannsókn Rúnars Vilhjálmssonar prófessors á afstöðu
almennings til ólíkra rekstrarforma heilbrigðiskerfisins 2017.
Heilbrigðismál Íslenskt heilbrigðis-
kerfi hefur þróast í átt að meiri einka-
væðingu síðustu ár án þess að skýr
stefnumótun hafi verið sett fram,
segir prófessor í heilsufélagsfræði.
Hið félagslega heilbrigðiskerfi sem við
höfum státað okkur af síðustu árin og
áratugina færist æ nær blönduðum
kerfum Vestur-Evrópu þar sem lýð-
heilsa er lakari og kostnaður sjúklinga
meiri en í Skandinavíu. Þessi þróun er
ekki í takt við vilja þjóðarinnar, eins og
ný rannsókn bendir eindregið til.
„Við erum að sjá þróun íslensks heil-
brigðiskerfis sem gengur ekki í sömu
átt og viðhorf almennings. Almenn-
ingur kallar eftir virkari þætti ríkisins
við fjármögnun og rekstur kerfisins.
Það þýðir að við verðum að hverfa
af þeirri braut einkarekstrar sem við
höfum verið á ef ætlun stjórnvalda er
að marka stefnu í samræmi og sátt við
almenning í landinu. Það er mín niður-
staða út frá þessum samanburði,“ segir
Rúnar Vilhjálmsson, prófessor í heilsu-
félagsfræði við Háskóla íslands.
Rúnar hefur unnið rannsókn á
afstöðu almennings til ólíkra rekstrar-
forma heilbrigðiskerfisins. Frétta-
blaðið sagði frá því á forsíðu í gær að
einkarekstur í heilbrigðiskerfinu væri
þjóðinni þvert um geð og hefði sú and-
staða vaxið, ef eitthvað er, á þessari öld.
Hægt er að skipta heilbrigðiskerfum
þjóða í þrennt: Félagslegt heilbrigðis-
kerfi, líkt og tíðkast á Norðurlöndum,
blandað rekstrarkerfi eða svokallað
skyldutryggingarkerfi, sem þekkist
víða í Vestur Evrópu, og svo einka-
rekstrarkerfi.
Aðgengi að þjónustu er best í félags-
legu heilbrigðiskerfi og hlutfallslegur
kostnaður sá lægsti af þessum þremur.
Einnig hafa rannsóknir sýnt að lýð-
heilsa einstaklinga er best hjá þeim
þjóðum þar sem félagslegt heilbrigðis-
kerfi er við lýði.
Kjörmynd félagslegs heilbrigðis-
kerfis má flokka í átta staðhæfingar.
Almennur réttur til heilbrigðis-
þjónustu, þjónusta fyrst og fremst
fjármögnuð af ríki sem skipuleggur
þjónustuna og greiðir fyrir hana. Not-
endur hafa lítinn sem engan kostnað
af þjónustunni og ríkið á að mestu
aðstöðuna sem notuð er og rekur hana.
Kerfinu er þannig ætlað að tryggja jafnt
aðgengi en á sama tíma er gjarnan veitt
heimild til takmarkaðs einkareksturs.
„Við erum að færast frá félagslegu
heilbrigðiskerfi. Það sýnir sig best á
samskiptum sjúklinga við lækna í
einkageiranum annars vegar og opin-
bera geiranum hins vegar. Það sem
skiptir mestu er að við finnum hvergi
opinbera stefnu um þetta,“ segir Rúnar.
„Þetta er niðurstaða samninga við
Læknafélag Reykjavíkur sem hefur
komið Sjúkratryggingum á óvart.
Þetta er ekki afleiðing stefnumótunar
sem legið hefur til grundvallar heldur
niðurstaða og hún veldur þessari kerf-
isbreytingu. Landlæknir benti einmitt
á að þarna sé ákveðið stjórnleysi og ég
tek undir það,“ bætir Rúnar við.
Að mati Rúnars er því ærið verkefni
fyrir heilbrigðisráðherra að setja niður
stefnumótun í málaflokknum því mik-
ilvægt er að landsmenn viti hvert eigi
að stefna og að unnið sé samkvæmt
því. „Ég myndi vilja sjá afdráttarlausa
stefnumörkun sem væri heildstæðari
en hún hefur verið til þessa í málefnum
heilbrigðisþjónustunnar. Það þarf svo
að fylgja henni áfram af festu. Stefnan
verður að vera með hagsmuni skjól-
stæðinga fyrir augum.“ En hvenær
erum við komin í þá stöðu að búa ekki
við félagslegt heilbrigðiskerfi? Rúnar
segir að um leið og einstaklingar séu
farnir að neita sér um heilbrigðis-
þjónustu blikki rauð ljós í mæla-
borðinu. „Þegar stór hluti sjúklinga
er farinn að neita sér um nauðsynlega
þjónustu vegna kostnaðar erum við
farin út úr þessum ramma. Það gildir
sérstaklega um ungt fólk, námsmenn,
lágtekjufólk og ákveðna hópa lang-
veikra og öryrkja. Þetta eru hópar sem
við sjáum endurtekið hér og erlendis
að eru næmari fyrir kostnaði og fresta
heilbrigðisþjónustu vegna þess,“ segir
Rúnar.
Í stað þess að nota hugtakið einka-
væðing um þær breytingar sem hafa
átt sér stað í íslenskri heilbrigðisþjón-
ustu hefur verið farin sú leið að tala um
aukinn einkarekstur eða að styðja við
fjölbreytt rekstrarform. Rúnar segir
þetta dæmi um hugtök til heimabrúks
sem hafi lítið gildi í fræðilegri umræðu.
Þar sé talað um einkavæðingu.
„Með einkavæðingu í fræðilegri
umræðu er átt við þrennt. Í fyrsta lagi
eignasölu þegar hið opinbera selur
stofnun eða fyrirtæki, einkafram-
kvæmd, þegar tilfærsla á rekstri eða
framkvæmd er flutt til einkaaðila og
einkafjármögnun þegar tilfærsla fjár-
mögnunar fer frá hinu opinbera til
einkaaðila. Einkavæðing hér á landi
hefur fyrst og fremst varðað síðari tvo
þættina.“
Færumst fjær félagslegu heilbrigðiskerfi
Að mati prófessors í heilsufélagsfræði hefur íslenskt heilbrigðiskerfi færst fjær hinu félagslega heilbrigðiskerfi þar sem aðgengi allra er
tryggt óháð efnahag. Hann segir stefnumótun skorta og tekur undir með landlækni sem segir ákveðið stjórnleysi ríkja í málaflokknum.
Íslendingar hafa löngum státað af einu öflugasta velferðarkerfi heims.
FRéttablaðið/VilHElM
Sveinn
Arnarsson
sveinn@frettabladid.is
efnaHagsmál „Erlendar fjárfest-
ingar hjá LSR eru að mestu í takt
við þá áætlun sem við lögðum upp
með í upphafi árs,“ segir Haukur
Hafsteinsson, framkvæmdastjóri
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins
(LSR).
Gengi krónunnar hefur styrkst
verulega gegn erlendum gjald-
miðlum á síðustu mánuðum, sam-
tímis því að lífeyrissjóðir landsins
hafa litið til þess að auka umsvif
sín erlendis.
„Styrking krónunnar gagnvart
erlendum gjaldmiðlum getur haft
þau áhrif að erlend verðbréfakaup
verða hagstæðari en ella. Það fást
fleiri evrur eða bandarískir doll-
arar fyrir krónuna þegar hún er
sterk. Styrkingin hefur því ekki
þau áhrif að við fjárfestum lægra
hlutfalli í erlendum eignum en við
áttum von á í upphafi árs,“ segir
Haukur.
Hjá Gildi lífeyrissjóði verður
einnig fylgt fjárfestingaráætlun
erlendis en jafnvel er í kortunum
að auka fjárfestinguna erlendis
umfram áætlun vegna gengis krón-
unnar. „Við höfum verið að leggja
aukna áherslu á erlendar fjárfest-
ingar eftir afnám hafta. Við sjáum
fyrir okkur að auka enn frekar við
erlendar fjárfestingar í framtíðinni,“
segir Davíð Rúdólfsson, forstöðu-
maður eignastýringar og staðgengill
framkvæmdastjóra.
„Styrking krónunnar gerir það að
verkum að erlendar eignir vega hlut-
fallslega minna af eignasafni sjóðs-
ins. Eftir því sem krónan styrkist, þá
má gera ráð fyrir því að við aukum
við erlendar fjárfestingar. Það verð-
ur sífellt álitlegri kostur. Hversu
hratt það gerist verður hins vegar
tíminn að leiða í ljós. Þar skipta
aðstæður hverju sinni höfuðmáli,
bæði staða krónunnar og staðan á
mörkuðum. Langtímamarkmiðið
er til lengri tíma að ná fram aukinni
áhættudreifingu með aukinni fjár-
festingu erlendis,“ segir Davíð. – sg
Sterkt gengi breyti ekki áætlunum
bretland Salman Abedi, maðurinn
sem myrti 22 gesti á leið út af tón-
leikum Ariönu Grande í Manchester
í vikunni, virtist ekki hafa neitt illt í
hyggju þegar líbískur kunningi hans
hitti hann fyrir tæpum mánuði.
„Ég held hann hafi verið alveg
ótrúlega heilaþveginn,“ sagði mað-
urinn í viðtali við Radio 4 á Englandi
í gær en ISIS hafa lýst yfir ábyrgð á
árásinni.
Viðbúnaður um gjörvallt Bret-
land er gríðarlegur í kjölfar árásar-
innar. Vígbúnir hermenn hjálpa
nú lögreglu við að tryggja öryggi á
almennum vettvangi.
L ö g r e g l a h a n d t ó k í g æ r
sex manns, sem grunaðir eru um
að tengjast árásinni. Samkvæmt til-
kynningu lögreglu er um að ræða
skipulagðan hóp. Þá voru faðir og
bróðir árásarmannsins handteknir
í Líbíu í gær, en þaðan er Abedi ætt-
aður.
„Árásin var fágaðri en þær sem
við höfum séð hingað til og það
virðist líklegt að árásarmaðurinn
hafi ekki verið einn að verki,“ sagði
Amber Rudd, innanríkisráðherra
Bretlands, í gær.
Frank Gardner, öryggismála-
greinandi BBC, hélt því fram að
lögregla teldi að Abedi hefði verið
burðardýr. Honum hefði verið falið
að sprengja sprengju sem einhver
annar bjó til.
The New York Times greindi frá
því að sprengjan hefði verið einkar
aflmikil og málmhlutum, til að
mynda hefði nöglum og skrúfum,
verið komið fyrir í henni til að
valda sem mestum skaða. Þá fann
lögregla einnig hlut sem talinn er
vera kveikibúnaður. – þea
Árásarmaðurinn í Manchester sagður ótrúlega heilaþveginn
Gríðarleg sorg ríkir í Manchesterborg
vegna árásarinnar. FRéttablaðið/EPa
Styrkingin hefur því
ekki þau áhrif að
við fjárfestum lægra hlutfalli
í erlendum eignum.
Haukur Hafsteins-
son, framkvæmda-
stjóri LSR
sVÍÞJÓð Bæjarfulltrúar í Boden í Sví-
þjóð ætla að banna reykingar við
leikvelli, félagsmiðstöðvar unglinga
og stoppistöðvar strætó í bænum.
Bæjarfulltrúinn Daniel Rönnbäck, sem
sjálfur reykir, fékk nóg á leikvelli með
börnum sín þegar hann sá foreldra og
aðra sitja og reykja. Hann ákvað að
leggja fram tillögu um reykbannið sem
nú hefur verið samþykkt. – ibs
Reykbann við
strætóskýli
bæjarfulltrúar í boden í Svíþjóð hafa
fengið nóg af reykingum.
NORDiCPHOtOS/aFP
2 5 . m a Í 2 0 1 7 f i m m t U d a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
7
-0
9
9
4
1
D
1
7
-0
8
5
8
1
D
1
7
-0
7
1
C
1
D
1
7
-0
5
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
2
4
5
2
0
1
7
C
M
Y
K