Fréttablaðið - 25.05.2017, Síða 33

Fréttablaðið - 25.05.2017, Síða 33
Við sérhæfum okkur í myglu-hreinsun og þrífum fyrir bæði fyrirtæki og stofnanir en einnig einstaklinga. Við höfum aðstoðað Eflu verkfræðistofu, sem sérhæfir sig í greiningu myglu- sveppa, og verið þeim innan handar í stórum verkefnum. Fullum trúnaði er heitið við við- skiptavini en fyrir marga er það viðkvæm staða ef mygla kemur upp. Hjá AÞ-Þrifum höldum við úti sérstöku teymi sem sinnir þessum málaflokki,“ útskýrir Arnar Þor- steinsson, framkvæmdastjóri AÞ-Þrifa ehf. „Við erum þriðja stærsta ræst- ingafyrirtæki á landinu og hjá okkur starfa 210 starfsmenn. Við sinnum bæði almennum þrifum og sérverkefnum og er sérverkefna- deildin okkar sú stærsta á landinu en sú deild sér meðal annars um mygluhreinsun, iðnaðarþrif og fleira. Starfsfólk okkar hefur setið öll þau námskeið um myglu og mygluhreinsun sem boðið er upp á. Við leggjum mikið upp úr því að allur okkar búnaður og efni sem notuð eru við hreinsunina standist kröfur, séu rétt merkt og að réttum aðferðum sé beitt við hreinsunina. Við mygluhreinsun notumst við efnið Oxvír og notum ryksugur með Heba filterum. Einnig erum við með loftpressur til að blása af húsgögnum og hreinsum þau svo eftir á. Starfsmenn klæðast við- eigandi hlífðarfatnaði við hreins- unarstarfið. Tilfellin eru miserfið og mygla getur komið aftur. Það hefur ekki gerst eftir hreinsun hjá okkur en eftir að húsnæði hefur verið hreinsað eru gerðar mælingar með strokupenna nokkru eftir til að fylgjast með hvort mygla hafi aftur myndast. Við höfum einnig ósonað svæðin sem er afar áhrifarík aðferð en ósonið drepur allar bakteríur.“ Hvert verk sérstakt Arnar segir ekkert verkefni nákvæmlega eins. Aðstæður séu ólíkar á hverjum stað og meta þurfi hvert verkefni sérstaklega. Þá geri viðskiptavinir einnig ólíkar kröfur. Ef um fyrirtæki eða stofnun er að ræða skiptir eðli starfsemi við- komandi stofnunar máli. „Þegar við vinnum verkefni fyrir Eflu er farið eftir ákveðnum ferlum. Til dæmis ef viðkomandi stofnun notar mikið af pappír getur þurft að leggja til að minnka það umfang eins mikið og hægt er, farga efni eða setja á stafrænt form þar sem gróin sitja í papp- írnum. Stórt fyrirtæki þarf ekki að þýða mikla vinnu fyrir okkur ef öll starfsemin er rafræn. En lítið fyrirtæki getur aftur á móti þýtt mikla vinnu ef það er með mikið af pappírsgögnum. Við þjónustum einnig einstaklinga og heimahús. Ýmist sjáum við um alla hreinsun eða veitum ráðgjöf svo fólk getur annast hreinsunina sjálft, það er að segja ef myglan er í litlum mæli. Við getum komið á staðinn og skoðað aðstæður og ráðlagt fólki í framhaldinu.“ Vitundarvakning Arnar segir verkefnum sem tengj- ast mygluhreinsun hafa fjölgað mikið síðustu misserin. Við hreinsun er farið eftir ákveðnum verkferlum.Sérverkefnadeild AÞ-Þrifa sér um hreinsun á myglusvepp. Ef ekki verður vart við leka strax lifir myglan lengi í rakanum og áhrifanna verður jafnvel ekki vart fyrr en mörgum árum síðar. Arnar Þorsteinsson „Við erum þriðja stærsta ræstingafyrirtæki á landinu og hjá okkur starfa 210 starsmenn. Við sinnum bæði almennum þrifum og sérverkefnum og er sérverk- efnadeildin okkar sú stærsta á landinu en sú deild sér meðal annars um mygluhreinsun,“ segir Arnar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri AÞ-Þrifa. Mynd/Ernir Sérhæfing í hreinsun myglusveppa AÞ-Þrif ehf. er framsækið hreingerningafyrirtæki sem sérhæfir sig meðal annars í hreinsun á myglusvepp. Hvert tilfelli þarf að meta sérstaklega. „Það var enginn að velta þessu fyrir sér fyrir tíu árum. En með aukinni þekkingu hefur orðið vitundarvakning á því hversu varasamur myglusveppurinn getur verið. Hús sem voru byggð fyrir fimmtán til þrjátíu árum geta verið orðin alvarlega sýkt í dag. Ef ekki verður vart við leka strax lifir myglan lengi í rakanum og áhrifanna verður jafnvel ekki vart fyrr en mörgum árum síðar. Að mínu mati eru þó misvísandi upplýsingar í umferð og jafnvel mætti tala um hræðsluáróður. Í slæmum tilfellum hafa hús verið gerð fokheld aftur. Það eru miklar aðgerðir og og mikið áfall fyrir fólk þegar um heimili er að ræða, ekki síst fjárhagslega. Mygla er á gráu svæði hvað varðar tryggingar og maður finnur til með fólki þegar það rekur sögu sína fyrir manni. Við reynum að ráðleggja því hvað það getur gert sjálft til að halda kostnaði í lág- marki en bendum einnig fólki á að fá sérfræðinga frá Eflu til að meta ástandið.“ Nánari upplýsingar er að finna á www.ath-thrif.is og í síma 517-2215 KynninGArBLAÐ 5 F i M MT U dAG U r 2 5 . m A í 2 0 1 7 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :5 2 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 1 6 -D 3 4 4 1 D 1 6 -D 2 0 8 1 D 1 6 -D 0 C C 1 D 1 6 -C F 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 2 4 5 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.