Fréttablaðið - 25.05.2017, Side 34
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
„Þegar ég stóð í þessu gat ég ekki ímyndað mér hvað mygla getur valdið miklum veikindum,“ segir Regína.
Mygla í húsnæði hefur haft mikil áhrif á líf Regínu Kristjánsdóttur. Hún var
meira og minna veik í átta ár án
þess að nokkur skýring fyndist
á veikindunum. Hún þjáðist
af síþreytu, var með flensuein-
kenni, fékk sýkingar í lungu, háls,
þvagfæri og móðurlíf. Verkir í
beinum, liðum og kviði hrjáðu
Regínu og um tíma var hún svo
veik að vikum saman var hún
rúmliggjandi. „Ég fékk öll þau ein-
kenni sem hægt er að fá af völdum
myglu. Ég dofnaði vinstra megin í
höfðinu, fékk blóðnasir í tíma og
ótíma og sjóntruflanir. Það leið
yfir mig í vinnunni og í kjölfarið
var ég flutt á sjúkrahús en samt
fannst ekkert að mér. Ég leitaði
ótal sinnum til lækna en fékk
engin svör við því hvað gæti verið
að angra mig,“ rifjar Regína upp.
Hélt hún væri
ímyndunarveik
Regína hefur alltaf lifað heilsu-
samlegu lífi, kennt líkamsrækt um
árabil og hugað vel að mataræð-
inu. Veikindin komu því eins og
þruma úr heiðskíru lofti. „Þegar ég
stóð í þessu gat ég ekki ímyndað
mér hvað mygla getur valdið
miklum veikindum. Heilsan varð
æ verri og um tíma var svo komið
að ég hélt að þetta væri bara í
höfðinu á mér. Ég kom alls staðar
að lokuðum dyrum. Eftir að mygla
fannst í íbúðinni minni spurði ég
læknana hvort þessi óútskýrðu
veikindi gætu verið af völdum
myglu en fékk þau svör að ekki
væri viðurkennt að myglusveppur
gæti valdið veikindum svo þeir
vildu ekkert segja um það.“
Á þessu tímabili hafði Regína
búið í þremur mismunandi
íbúðum og svo virðist sem það
hafi verið mygla í þeim öllum.
„Ég tel að veikindi mín hafi orðið
eins alvarleg og raun ber vitni
vegna þess hversu lengi ég bjó
í óheilsusamlegu húsnæði, en
myglutegundirnar eru miseitr-
aðar. Við fyrrverandi maðurinn
minn keyptum nýuppgerða íbúð
í eldra húsi og vorum viss um að
hún væri í lagi en svo reyndist
ekki vera. Íbúðin var á neðri hæð
en gluggi á efri hæðinni fór að
leka og það barst niður til okkar,
auk þess sem húsið lak lítillega og
þetta varð til þess að myglan fór
af stað. Ég var þegar orðin veik af
völdum myglu og þetta var ekki
til að bæta ástandið.“
Leið en ekki reið
Regína flutti úr íbúðinni sinni og
stuttu síðar skildu þau hjónin.
Hún segist ekki vera reið yfir því
að hafa gengið í gegnum þessi
veikindi heldur aðallega döpur.
„Fyrst var ég reið en ég er það
ekki lengur. Ég er aðallega leið
yfir að hafa misst heilsuna, sem
er svo mikilvæg, misst allar mínar
eigur svo ég stóð uppi slypp og
snauð um fimmtugt og hjóna-
bandið farið í súginn. Auðvitað
hef ég hugsað um af hverju þetta
gerðist en núna hugsa ég meira
um hvernig ég get miðlað af
minni reynslu. Haustið 2013,
eftir mikil veikindi, ákvað ég að
láta þetta ekki stjórna lífi mínu.
Ég fór í 800 tíma jógakennara
og -þerapistanám, fékk sal til að
kenna jóga og líkamsrækt og ég
held að þetta hafi orðið til þess að
ég hélt sönsum.“
Eftir að heilsufarið fór að lagast
tók Regína mataræðið í gegn. Hún
fékk mataróþol í kjölfar veik-
indanna og sumar fæðutegundir
getur hún ekki sett inn fyrir sínar
varir. „Ég hef lesið mér mikið til
um mataræði og myglu og komst
að því að margar fæðutegundir
innihalda myglu og slíkur matur
magnar upp einkennin hjá mér.
Ég er með varanlegar lungna-
skemmdir vegna myglunnar og
get því ekki verið úti í hvaða veðri
sem er, t.d. ekki á gamlárskvöld
þegar mengun er mikil því hún fer
svo í lungun á mér. Ég dofna strax
í höfðinu ef ég fer í inn í hús þar
sem mygla er til staðar.“
Í haust ætlar Regína að fara
af stað með heilsuráðgjöf fyrir
fórnarlömb myglu. „Ég hef verið
heilsuráðgjafi í tuttugu ár og
mig langar til að miðla öðrum af
minni reynslu og hjálpa fólki sem
hefur veikst vegna myglu við að ná
heilsu á ný.“
Missti heilsuna vegna myglu
Regína Kristjánsdóttir stóð uppi slypp og snauð um fimmtugt, búin að
missa heilsuna, húsnæði og innbú af völdum myglusvepps.
Er raki í útvEggjum? Ert þú mEð svEppa- Eða rakavandamál?
Ef utanaðkomandi raki veldur óþægindum
innanhúss, er málningakerfið fyrir útveggi
frá MALIS (S-26) góður valkostur.
Kerfið samanstendur af þremur mismunandi
efnum sem hvert um sig þjónar ákveðnu
hlutverki. Saman veita þessi efni hámarksvörn
gegn hverskonar veðuráreyti.
Bindigrunnurinn tryggir örugga festingu
málningar sem yfir kemur. Hann er afar öflugur
og kemur í veg fyrir flögnum.
Þá er TIMANTTI CLEAN lausnin. Er sveppa- og
bakteríu verndandi málning. Hentar vel fyrir öll
rými þar sem raki og sveppamyndun er vandamál.
Inniheldur efni sem eyða bakterium, sveppum og
kemur í veg fyrir að slíkt myndist aftur. Hálfmött
málning sem hægt er að lita í ljósum litum
TIMANTI voTrýMISMáLNINg
Ætluð í votrými t.d. baðherbergi og þvottahús.
Auðvelt að þrífa. Glástig 20 og 40%
Grunnur með 3% glástigÞéttihúðin er mjög teygjanleg og hefur góða
öndun. Kemur í veg fyrir að vatn komist inní
steypu. Bindst afar vel við grunninn.
veðurkápan er ysta lagið í kerfinu. Þetta er
teygjanleg akryl málning og hrindir vel frá sér.
Hægt að laga í litum.
6 KYNNINGARBLAÐ 2 5 . m a í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
6
-D
8
3
4
1
D
1
6
-D
6
F
8
1
D
1
6
-D
5
B
C
1
D
1
6
-D
4
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
4
5
2
0
1
7
C
M
Y
K