Fréttablaðið - 25.05.2017, Síða 52

Fréttablaðið - 25.05.2017, Síða 52
Alien: Covenant HHHHH Leikstjóri: Ridley Scott Framleiðendur: Ridley Scott, David Giler, Walter Hill Handrit: John Logan, Dante Harper Aðalhlutverk: Michael Fassbender, Katherine Waterston, Billy Crudup, Danny McBride Í kvikmyndasögunni eru fáar geim- verur sem eiga sér álíka goðsagna- kennda hönnun og „xenomorph“ veran frá málaranum H. R. Giger heitnum, sem fyrst birtist í hinni upprunalegu klassík Ridleys Scott frá 1979. Alien-myndabálkurinn hefur síðan þá farið í gegnum margar stökkbreytingar en ekki getið af sér neitt sem teljast mætti stórkostlegt frá því að James Cameron tók við. Þó hafa ýmsar afbrigðilegar og sér- stakar tegundir hugmynda sprottið upp úr þessari seríu. Scott hafði ekki komið að vísindaskáldsögu í áratuga- raðir þegar hann sneri svo aftur til seríunnar árið 2012 með upphafssög- unni Prometheus. Sú reyndist vera allt öðruvísi kvikindi en aðdáendur áttu von á; hlaðin vangaveltum um trú, guði og tengsl manneskjunnar við slíka þætti svo dæmi séu nefnd. Eftir að myndin hlaut vægast sagt umdeildar við- tökur var ljóst að bæði leikstjórinn og fram- leiðendur ákváðu að nálgast framhaldið með gamla vinklinum. Í byrjun þessarar sögu vakna áhafnar- meðlimir nýlenduskipsins Covenant fyrir mikla tilviljun af völdum stjörnublossa og verða stuttu síðar varir við skilaboð frá óþekktri plánetu. Þessi umrædda pláneta virðist við fyrstu sýn geta boðið upp á ný heimkynni, þannig að ákveðið er að taka áhættuna og kanna umhverfið nánar. En hvað það er sem gæti þarna beðið þeirra er auðvitað bara byrjunin á gleðskapnum. Með myndinni Alien: Covenant er reynt að brúa bilið á milli forverans, Prom- etheus, og fyrstu Alien- myndarinnar. Í henni er allt reynt til að láta hana fylgja formúlu upprunalegu myndarinnar en í senn halda áfram að stúdera sömu hugmyndir og Prometheus gerði. Alien: Covenant spilast á margan hátt út eins og tvær bíómyndir sem hefur verið klesst saman í eina; Prom- etheus framhaldið og Alien „endurgerðin“. Margt væri hægt að nefna sem fór úrskeiðis með útkomuna á Prometheus, en leikstjórinn spurði stórrar spurningar og hafði góða hugmynd um hvernig sögu hann vildi segja. Þegar Alien: Covenant er sett fram sem beint framhald af henni er hugað að þemum eins og sköpun, dauðanum, fjölskyldu- tengslum og mannlegu leitinni að eigin tilgangi. Þegar gamla uppskriftin tekur við breytist þetta í staðlaða skrímslamynd, sem dregin er niður af grunnum persónum sem taka oft á tíðum óskiljanlegar ákvarðanir. Yfirleitt er viss greindarskerðing fígúra eðlilegur fylgihlutur hryll- ingsmynda en í undanförnum Alien-myndum hefur þetta verið sérlega áberandi vandamál. Subbuskapurinn er til staðar en gæsahúðin takmörkuð. Það breytir því samt ekki að Scott, sem í ár stígur á níræðisaldurinn, hefur engu tapað hvað auga og hæfileika varðar og skapar stóra, flotta bíó- heima og þrúgandi andrúmsloft. Scott sækir auðvitað í öll brögðin sem hann kom sjálfur með við upphaf seríunnar en daðrar einn- ig við lífsspeki og þemu sem minna gjarnan á Blade Runner. Afþrey- ingargildið í heildina sér annars vegar um að bæta upp fyrir holur handritsins og aðra hnökra, þó ekki allar. Lokahlutinn er reyndar örlítið flýttur og fyrirsjáanlegur, þó segja megi – án þess að spilla – að blá- endirinn sé hressilega djarfur. Katherine Waterston er sterk og sannfærandi í hlutverki sem er til þess sniðið að kalla eftir saman- burði við Sigourney Weaver, en það hefði verið fínt að fá að kynn- ast persónunni betur. Svipað má segja um stórgóðan Billy Crudup, eða jafnvel Danny McBride, sem kemur á óvart með mýkri, viðkunnanlegri hlið eftir að hafa sérhæft sig í hlutverki skíthæla. Enginn kemur betur út úr þessari mynd heldur en Michael Fassbender og tveir af honum eru víst betri en einn. Þetta er algjörlega hans saga og hann er stórkostlegur sem gervimennin Walter, sá hlýðni, og hinn óútreiknan- legi David. Bestu augnablikin í Alien: Covenant eru samt ekki skrímslasenurnar, heldur þessar litlu, hljóðlátu þar sem Fassbender veltir lífinu og til- verunni fyrir sér, stundum á móti sér sjálfum. Súra sjónin að sjá einn Fassbender kenna öðrum á flautuna sína er tær hápunktur, af hæfilega tví- ræðum ástæðum. Tómas Valgeirsson NiðurstAðA: Þunn blanda af gömlum brögðum og nýjum hug- myndum, en myndin er hröð, myrk, listilega gerð og Fassbender er hrein gersemi. Töff skepnur og gervimenni í tilvistarkreppu Alien: Covenant fær þrjár af fimm stjörnum. NORDICPHOTOS/AFP Danny McBride sýnir nokkuð mjúka hlið í þessari mynd. NORDICPHOTOS/ AFP Michael Fass- bender er stórkostlegur í hlutverki sínu sem Walter. NOR- DICPHOTOS/AFP NICOTINELL LYFJATYGGIGÚMMÍ Ertu að hætta að reykja? Veistu hvaða bragðtegund hentar þér? Nicotinell Classic/Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsogstöflur, Nicotinell forðaplástur. Inniheldur nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Nicotinell-6-bragdtegundir-5x10 copy.pdf 1 11.5.2017 09:54 2 5 . m A í 2 0 1 7 F i m m t u D A G u r32 m e N N i N G ∙ F r É t t A B L A ð i ð Bíó 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :5 2 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 6 -E 2 1 4 1 D 1 6 -E 0 D 8 1 D 1 6 -D F 9 C 1 D 1 6 -D E 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 2 4 5 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.