Bókasafnið - 01.07.2017, Qupperneq 5
Bókasafnið 41. árg – 2017 5
Hvað virkar vel í náminu að þínu mati?
Mér fi nnst þetta í heildina vera að ganga nokkuð vel. Við
erum með starfsréttindanám, það er nám sem er með
löggildingu. Algengt er með starfsréttindagreinar, eins og
líka lögfræði og læknisfræði til dæmis, að lítið sé um val og
það er eitthvað sem nemendur okkar þurfa að gera sér grein
fyrir. Við erum með námið eingöngu á meistarastigi núna
og mér fi nnst það hafa verið bót mála að því var breytt. Við
erum í rauninni að útskrifa nemendur með mun meiri og
haldbetri menntun heldur en þegar við vorum eingöngu
með námið á BA-stigi. Nú er fólk annars vegar að koma úr
öðrum greinum en upplýsingafræði og er þá með grunninn
úr annarri grein og tekur þá upplýsingafræðina, MIS-nám,
ofan á og hins vegar erum við með MA-nám en það sækja
nemendur sem hafa lokið BA-prófi í upplýsingafræði. Þeir
nemendur eru þá meira með einstaklingsbundið nám, velja
námið og námskeið út frá lokarannsókn og þeir gera venju-
lega stærri rannsókn heldur en MIS-nemarnir. Nemendur
geta einnig komið til okkar í diplómanám á meistarastigi
og algengt er að þeir sem því ljúka haldi áfram og útskrifi st
með meistaragráðu í upplýsingafræði. Námið er þannig að
koma þessum hópum mjög vel.
Hvað varðar beint starfsnám eins og vettvangsnám; ég
hefði viljað sjá meira af því þannig að nemendur gætu
verið aðeins meira á vettvangi. Við erum með samninga
við fj ölmörg bókasöfn um vettvangsnám og stóru opinberu
skjalasöfnin hafa verið mjög liðleg varðandi það að taka
nemendur í vettvangsnám og sama má segja um fj ölmargar
stofnanir og fyrirtæki. Nemendur hafa yfi rleitt verið ánægð-
ir með starfsnámið og fengið leiðsögn sérfræðinga á þessum
stöðum við að vinna í eina viku á hverjum stað. Þegar ég
kom til starfa við námsbrautina um aldamótin 2000, var
engu vettvangsnámi til að dreifa. Mér fannst það ekki
ganga. Þegar ég var í náminu hafði ég fengið vettvangs-
nám sem dugði mér vel til þess að fá innsýn í starfi ð en ég
vann um árabil hjá almennings- og skólasafni og setti upp
fj ölmörg sérfræðibókasöfn hjá stofnunum og fyrirtækjum.
Reyndar var starfsnámið ekki mikið, tvær vikur alls hjá
mismunandi bókasafnstegundum. Ég hefði gjarnan viljað fá
einhverja starfsþjálfun varðandi skjalastjórn en kennsla á því
sviði var ekki fyrir hendi á þeim tíma. Þá menntun þurfti
ég síðar að sækja til útlanda og starfsvettvangur minn varð á
endanum að mestu á sviði skjalastjórnar.
Námsvinnuna vantaði sem sagt þegar ég kom til starfa við
Háskólann um 2000 og ég ákvað þá að fá fundi með for-
stöðumönnum hinna ýmsu bókasafnstegunda. Ég, ásamt
þáverandi deildarforseta, gerðum svo samninga við mörg
bókasöfn um að veita nemendum aðgang að vettvangsnámi
án þess að námsbrautin þyrfti að borga fyrir. Þess þurfti
áður og það var, skilst mér, ástæðan fyrir því að vettvangs-
námið var lagt niður á sínum tíma. Ég hef heyrt á þeim,
sem tekið hafa nemendur í vettvangsnám, að það sé gagn-
kvæmur ávinningur, bæði fyrir nemendur og vettvanginn.
Mér fi nnst líka, þó svo að nemendur séu komnir með þann
einingafj ölda sem þarf til þess að ljúka meistaraprófi , sjálf-
sagt fyrir þá að bæta við sig vettvangsnámi, jafnvel á fl eiri
en einum stað, og valnámskeiðum þó svo að þeir þurfi ekki
á því að halda innan einingafj öldaviðmiða. Það nýtist þeim
alltaf á endanum í starfi nu og/eða áframhaldandi námi.
Við höfum sæmilega gott námsframboð miðað við allt og
allt, þann fj árhagsramma sem við höfum. Við erum með
fasta kennara hér en erum líka með talsvert af kennurum
úr atvinnulífi nu sem er mjög gott, svo og kennurum frá
stofnunum. Kennarar koma frá Þjóðarbókhlöðu og kenna
á bókasafnskerfi n, Gegni og annað tengt. Við fáum einnig
kennara til þess að koma inn í námskeið og kenna verklega
tíma í rafrænum skjalastjórnarkerfum. Mér fi nnst þetta
mikill kostur og við erum óendanlega þakklát þessu góða
og færa fólki sem leggur svo mikið af mörkum til náms-
greinarinnar. Fastir kennarar eru fj órir núna, tveir prófess-
orar og tveir aðjúnktar. Auðvitað stefnum við að því að ráða
fl eiri fasta kennara en eins og er leyfi r fj árhagurinn það
ekki. Ég tel mikilvægt að fastir kennarar hafi góða starfs-
reynslu í faginu þegar þeir koma að kenna hjá okkur, þetta
er jú starfsnám. Það hefur þó æxlast þannig að þetta hefur
verið svona upp og ofan, hvernig þessu hefur háttað í náms-
greininni, og stundum ráðnir kennarar með litla eða enga
starfreynslu. Einnig er jákvætt að við bjóðum upp á fj arnám
og staðbundið nám samtímis í öllum námskeiðum. Það er
jákvætt þar sem fólk utan af landi hefur viljað koma í námið
til okkar og alloft höfum við verið með nemendur sem búa
í útlöndum.
Við getum allvel við unað hvað varðar aðsókn í námið. Við
fáum inn nemendur jafnt og þétt og höfum ekki fundið
fyrir eins mikilli nemendafækkun og sumar aðrar greinar
við Háskólann. Mér fi nnst það einnig vera kostur að á end-
Nám í upplýsingafræði
við Háskóla Íslands
frá sjónarhóli kennara
Jóhanna Gunnlaugsdóttir hefur lokið BA í upplýsingafræði og sagnfræði frá Háskóla Íslands, MSc (Econ) frá
Háskólanum í Wales í stjórnun og rekstri og PhD frá Háskólanum í Tampere í rafrænum skjalastjórnarkerfum.
Hún starfar sem prófessor við námsbraut í upplýsingafræði við Háskóla Íslands.