Bókasafnið - 01.07.2017, Blaðsíða 27
Bókasafnið 41. árg – 2017 27
Mikilvægt verkefni nefndarinnar er jafnframt að vinna að
og þrýsta á stjórnvöld að fullgilda Haag-sáttmála Samein-
uðu þjóðanna frá 1954 um vernd menningarlegra verðmæta
þegar átök eiga sér stað. Nú þegar hafa alls 127 af 193 að-
ildarríkjum Sameinuðu þjóðanna fullgilt sáttmálann. Ísland
er ekki meðal þessara 127 ríkja. Nefndarmenn hafa meðal
annars kynnt Haag-sáttmálann og starf Bláa skjaldarins á
fundi hjá landsnefnd um mannúðarrétt til að koma málinu
áfram. Fullgilding sáttmálans hér á landi myndi þýða að
styrkari stoðum yrði skotið undir vernd menningarverð-
mæta en með fullgildingu hans skuldbinda stjórnvöld sig
til að virða eigin menningararf og annarra. Aðildarríki að
sáttmálanum skuldbinda sig jafnframt til að gera ráðstafanir
um vernd menningarverðmæta á friðartímum. Nú er unnið
að þýðingu sáttmálans í Stjórnarráði Íslands og mun hann
vonandi verða fullgildur á næstu misserum.
Unnið að tveimur verkefnum
Nefndin hefur sótt um og hlotið styrki til að vinna að
tveimur verkefnum. Annars vegar fékkst styrkur til að vinna
fræðsluefni um viðbrögð við og fyrirbyggjandi vernd við
náttúruvá og koma á fót vefsíðu Bláa skjaldarins til að gera
fræðsluefnið aðgengilegt.
Hins vegar fékkst styrkur til að vinna tilraunaverkefni í
Norðurþingi. Verkefnið er unnið í samvinnu við NKF-IS
- Félag norrænna forvarða – Íslandsdeild, Menningamið-
stöð Þingeyinga, Bókasafnið á Húsavík og Hvalasafnið á
Húsavík. Tilgangur verkefnisins er að koma á fót viðbragðs-
teymi sérfræðinga og vinna viðbragðsáætlun vegna menn-
ingarminja í sveitarfélaginu Norðurþingi sem stafar hætta
af náttúruvá eða vá af mannavöldum. Liður í þeirri vinnu er
öflun heimilda og gerð fræðsluefnis um viðbragðsáætlanir
sem birt verður á vef Bláa skjaldarins. Hluti verkefnisins er
að koma á samstarfi og mynda tengslanet við almannavarnir
og björgunaraðila í héraði um hvernig skuli haga björgunar-
starfi með tilliti til menningarverðmæta ef hættuástand
skapast. Hér er um tilraunaverkefni að ræða og sem slíkt
mun það veita dýrmæta þekkingu og reynslu og nýtast sem
grunnur fyrir frekari starfsemi Landsnefndar Bláa skjaldar-
ins á landsvísu og samvinnu félaganna sem standa að baki
landsnefndinni.
Tveir starfshópar sem skipaðir hafa verið af landsnefnd Bláa
skjaldarins vinna nú að verkefnunum tveimur og er stefnt að
því að verkefnunum ljúki á næsta ári.
Menningarminjar sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt Haag-sátt-
málanum eru auðkenndar með Bláa skildinum. Þessi ljósmynd er af
merkingu á basilíku Konstantínusar í Trier í Þýskalandi sem höfundur
skoðaði fyrir tveimur árum.
Jarðskjálfti upp á 7,0 reið yfir Haíti árið 2010 með þeim afleiðingum
að tugir þúsunda íbúa fórust og mikil eyðilegging varð á mannvirkjum.
Í kjölfarið kölluðu Alþjóðasamtök Bláa skjaldarins eftir sjálfboðaliðum
til að hjálpa við að bjarga menningarverðmætum og urðu margir við
kallinu. Myndin er af vef Haiti Cultural Recovery Project og sýnir
björgun málverks úr rústum á Haíti. Á myndinni er tilvitnun í Olsen
Jean Julien, fyrrum menningarmálaráðherra landsins, um björgun
menningarverðmæta.
Íslenskum menningarverðmætum getur staðið hætta af náttúruvá.
Ólafur Ásgeirsson, fyrrum þjóðskjalavörður kannar skemmdir í Hér-
aðsskjalasafni Árnesinga á Selfossi eftir Suðurlandsskjálftan 2008.