Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2017, Blaðsíða 10

Bókasafnið - 01.07.2017, Blaðsíða 10
10 Bókasafnið Creating Knowledge (CK) ráðstefnurnar eru samnor-rænar ráðstefnur um upplýsingalæsi á háskólastigi sem Norðurlöndin halda til skiptis á 2ja til 3ja ára fresti, www.nordinfolit.info/creating-knowledge/. Ráðstefn- urnar eru eini þátturinn sem eftir stendur af starfsemi sam- norræna hópsins NordINFOLIT sem upphafl ega heyrði undir norrænu ráðherranefndina, www.nordinfolit.info/. Ráðstefnan var fyrst haldin í Malmö árið 1999, en þriðja ráðstefnan á Akureyri árið 2003. Á sjöundu ráðstefnu CK í Lundi árið 2013 var ákveðið að CKVIII yrði á Íslandi. Undirbúningur fyrir ráðstefnuna hófst á 21. fundi háskóla- hóps um upplýsingalæsi 21. maí 2014. Þá hafði hópurinn fengið gögn frá undirbúningshópi CKVII í Lundi ásamt lokaskýrslu hópsins. Þessi gögn voru góður stuðningur í byrjun undirbúnings. Á þessum fundi var settur saman stýrihópur fyrir ráðstefnuna. Í honum sátu Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir og Ragna Björk Kristjánsdóttir frá Háskól- anum í Reykjavík (HR), Astrid Margrét Magnúsdóttir frá Háskólanum á Akureyri (HA), Þórný Hlynsdóttir frá Há- skólanum á Bifröst, Margrét Guðmundsdóttir frá mennta- vísindasviði Háskóla Íslands og seinna bættist Kristína Benedikz (HR) í hópinn. Hafdís Dögg varð formaður. Dagsetning fyrir ráðstefnuna var ákveðin 2. og 3. júní 2016 þannig að undirbúningur má segja að hafi tekið rúm tvö ár. Þá var einnig tekin sú ákvörðun að fá ráðstefnuþjónustu til liðs við stýrihópinn og valin var ráðstefnuþjónustan Con- gress Reykjavík, sem síðar varð CP Reykjavík. Tengiliður hópsins hjá CP var Kristjana Magnúsdóttir. Ráðstefnu- þjónustan hafði með höndum fj ármálaumsýslu, skráningu á ráðstefnuna og bókanir hótelgistinga og ferða, umsjón með gerð upplýsinga og kynningargagna, alla skipulagningu ráð- stefnurýmis s.s. veitingar fyrir ráðstefnuna sjálfa og lokahóf. Vefur ráðstefnunnar var í höndum stýrihópsins (Ragna Björk Kristjánsdóttir vefstjóri) og hýstur hjá Upplýsingu, www.upplysing.is/ckviii. Skráning á ráðstefnu og bókanir gistinga ásamt umsýslu um útdrætti fór í gegnum ráð- stefnuvefi nn inn í kerfi CP Reykjavík. Stýrihópurinn vann mikinn hluta undirbúningsins með tölvupósti enda voru tveir meðlimir stýrihópsins staðsettir utan höfuðborgarsvæðisins. Formlegir fundir voru því aðeins fi mm og oft með hjálp Skype (sjá mynd), en fl eiri ef með eru taldir fundir sem Hafdís og Margrét áttu með Kristjönu í CP Reykjavík. Eðli málsins samkvæmt vannst mikill undirbúningur í HR enda helmingur undirbúnings- hópsins staðsettur þar og einfalt að varpa hugmyndum á milli og afgreiða mál, en annars dreifðist vinnan mjög jafnt á meðlimi hópsins. Unnið var jafnt og þétt þessi tvö ár sem undirbúningurinn tók, en mestu vinnuskorpurnar voru óneitanlega í tengslum við söfnun styrkja annars vegar og val útdrátta hins vegar. Undirbúningsvinnan fór aðallega fram á vinnutíma, en lestur útdrátta var að mestu leyti utan vinnutíma. Heiti ráðstefnunnar var „Practices, goals and visions for information literacy in higher education“ og ákveðið var að hafa fj ögur undirþemu. Við val á aðalfyrirlesurum var haft samband við leiðandi fræðimenn um upplýsingalæsi og haft til hliðsjónar að hafa fj óra fyrirlesara, einn fyrir hvert þema, minnst einn frá Norðurlöndunum og hafa jafnan hlut beggja vegna Atlantshafsins. Fyrir valinu urðu eftirfarandi: 1. Implementation of information literacy in to the curriculum – Anneke Dirkx, Leiden University, Hol- land 2. Assessment of information literacy – Alison J. Head, University of Washington, USA 3. Information literacy and writing centres – Maria Carme-Torras og Pål Steiner, University of Bergen, Noregi 4. New challenges for information literacy – Lisa Hinc- hliff e, University of Illinois, USA Ráðstefnan var auglýst á þekktum erlendum og innlendum póstlistum með hjálp kollega hérlendis og erlendis. Einnig Creating Knowledge VIII í Reykjavík 2.- 3. júní 2016 Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir hefur lokið BA í bókasafns- og upplýsingafræði. Hún starfar sem upplýsingafræðingur við Háskólann í Reykjavík. Hafdís Dögg, Astrid Margrét, Kristína og Margrét - Þórný á Skype
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.