Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2017, Blaðsíða 58

Bókasafnið - 01.07.2017, Blaðsíða 58
58 Bókasafnið Látinn er í Kaupmannahöfn Erland Kolding Nielsen stjórnandi Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn. Hann var sagnfræðingur að mennt og kenndi við danska bókavarðaskólann og Kaupmannahafnarháskóla. Hann vann einnig við Konunglega bókasafnið áður en hann tók við sem forstöðu- maður safnsins árið 1986. Hann lét af störfum stuttu fyrir andlátið og hafði þá stjórnað safninu í rúm 30 ár. Hann og kona hans, Inger, höfðu undirbúið kveðjuhóf 26. janúar síðastliðinn en hann lést 23. janúar og var athöfninni breytt í minningarsamkomu. Engu var breytt, nema að Inger las kveðjuræðu hans. Konunglega bókasafnið efldist mjög undir hans stjórn. Þar má nefna að nýtt hús var byggt, Svarti demanturinn og einnig glæsilegar geymslur fyrir safnið á Amager. Þá var starfsemi bókasafns Kaup- mannahafnarháskóla, KUB, sameinuð Konunglega bókasafninu. Eftir að Erland lét af störfum, voru Konunglega bókasafn- ið og Statsbiblioteket í Árósum sameinuð en bæði söfnin hafa haft hlutverk sem þjóðbókasöfn, meðal annars með viðtöku og varðveislu skylduskila. Einnig renna inn í hið nýja safn Det administrative bibliotek og Danmarks kunstbibliotek. Erland var mikill hvatamaður að hverskyns samvinnu bókasafna, í Danmörku, Evrópu og á heimsvísu og var óþreytandi að tala máli bókaútgáfu, bókagerðar og bókasafna. Hann var áberandi í alþjóðlegu samstarfi og átti þátt í að stofna samtök evrópskra landsbókavarða CENL (Conference of European National Librarians) og samtök rannsóknarbókasafna LIBER (Ligue de Bibliothèques Rescherces) og var formaður þeirra samtaka 2003-2006. Hann sótti öll IFLA þing um árabil og margir tóku eftir þessum sérstæða manni. Ég átti því láni að fagna að kynnast Erland og starfa með honum á fundum norrænna landsbókavarða NORON og einnig í CENL. Hann kom nokkrum sinnum til Íslands og hann var viðstaddur þegar Þjóðarbókhlaðan var opnuð 1994. Hann var góður félagi, gagnrýninn, hvetjandi, úrræðagóður og oft ótrúlega duglegur við að ýta málum áfram. Það var einmitt í anda Erlands að í tengslum við minningarathöfnina voru haldnir ýmsir fundir sem snertu samvinnu evrópskra og nor- rænna landsbókavarða. Honum var hlýtt til Íslands og Íslendinga, en þó er sagt að hann hafi átt þátt í því að flaggað var í hálfa stöng við Kon- ungsbókhlöðu þegar íslensku handritin voru flutt heim. Ég vil þakka honum samstarfið og megi hann hvíla í friði. Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður Minning Erland Kolding Nielsen 1947 - 2017
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.