Bókasafnið - 01.07.2017, Síða 17
Bókasafnið 41. árg – 2017 17
svæði mið af því. Það var því nóg um að vera og vorum við
svo heppnar að vinna miða í happadrætti á hafnaboltaleik
sem við brugðum okkur á eitt kvöldið. Það var upplifun út
af fyrir sig!
Sem fulltrúar Upplýsingar höfðum við einnig formlegum
skyldum að gegna og var þar margt áhugavert, gagnlegt
og skemmtilegt í boði. Það er venja að haldinn sé svokall-
aður svæðisfundur Norrænu bókavarðafélaganna (Caucus:
Nordic Countries) og var hann haldinn laugardaginn 13.
ágúst. Norrænu bókavarðafélögin skiptast á að halda fund-
inn og í ár voru það tvö félög sem héldu fundinn saman,
norska bókavarðafélagið og hið íslenska, Upplýsing. Nýr
aðalritari IFLA, Gerald Leitner, ávarpaði fundinn og Maria
Carme Torras Calvo, fulltrúi Norðurlandanna í stjórn IFLA
sagði frá því sem er á döfinni hjá samtökunum. Í lokin var
svo boðið upp á léttar veitingar og gafst þá tækifæri fyrir
viðstadda til að hitta gamla félaga og kynnast nýjum. Full-
trúar norrænu bókavarðafélaganna hittust svo á hádegis-
verðarfundi og ræddu um þau mál sem eru á döfinni hjá
félögunum og bókasöfnum almennt í hverju landi en það
Bókasafnssjálfsali sem sýndur var á kynningu framleiðanda gagna og
búnaðar fyrir bókasöfn
Einn af fjölmörgum
kynningarbásum á
sýningu framleiðanda
gagna og búnaðar fyrir
bókasöfn
Einn af mörgum
stórum göngum ráð-
stefnuhallarinnar
er hefð fyrir því að fulltrúar félaganna hittist einu sinni á
ári á IFLA og svo skiptast félögin á að bjóða á fund í sínu
heimalandi og eru þeir fundir einnig einu sinni á ári. Til
gamans má geta að fulltrúar norrænu bókavarðafélagana
hittust í Reykjavík í febrúar 2016 og á þessu ári hittumst
við í Stokkhólmi í Svíþjóð. Sem fulltrúar Upplýsingar
fórum við einnig á fund fastanefndar IFLA um stjór-
nun bókavarðafélaga og var það mjög gagnlegur fundur.
Einnig sátum við aðalfund IFLA þar sem gengið var til
atkvæða um nokkur málefni en Upplýsing á atkvæðisrétt
þar.
Heimsráðstefna IFLA er stór og vegleg ráðstefna með
ógrynni af fyrirlestrum og uppákomum og er óhætt að
segja að það sé ekki raunhæft að komast á alla þá fyrir-
lestra sem maður hefur áhuga á að sjá. Einnig getur
úrvalið virkað oft yfirþyrmandi og ekki laust við að maður
upplifi örlitla ofgnótt upplýsinga! En það er mikil og góð
upplifun að fara á IFLA ráðstefnu, lykilatriðið er að vera
skipulagður, sætta sig við að það er bara til eitt eintak af
manni sjálfum og þar af leiðir getur maður ekki séð og
upplifað allt.
Næsta IFLA ráðstefna verður haldin í Wroclaw í Póllandi
dagana 19. – 25. ágúst á þessu ári og er það svo sannarlega
þess virði að skrá sig og skreppa. Það jafnast á við gott
endurmenntunarnámskeið að fara á IFLA ráðstefnu og
kemur maður margfalt fróðari til baka. Einnig kynnist
maður og myndar tengsl við kollega frá ýmsum löndum
og maður kemst að því að nafnspjöldin lifa enn góðu lífi.
En munið, það er engin ein leið til að IFLA rétt! Ef þið
eigið einhvern tímann leið á IFLA ráðstefnu veljið þá það
sem þið teljið gagnast ykkur að sjá, ekki hika við að fara af
fyrirlestrum ef þeir heilla ekki og á þann næsta og passið
ykkur að vera sveigjanleg og tilbúin til að breyta plani
ykkar ef þörf krefur.
Nánari upplýsingar um næstu ráðstefnu IFLA má finna á
slóðinni http://2017.ifla.org.