Bókasafnið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bókasafnið - 01.07.2017, Qupperneq 18

Bókasafnið - 01.07.2017, Qupperneq 18
18 Bókasafnið Bókasafn Hafnarfj arðar hefur undanfarin ár boðið upp á foreldramorgna á bókasafninu fyrir nýbakaða eða verðandi foreldra. Um er að ræða samverustund annan hvern þriðjudag frá kl. 10-12 yfi r vetrartímann en auk þess er boðið upp á fyrirlestra og ráðgjöf um alls kyns málefni sem brenna á foreldrum. Hvers vegna foreldramorgnar? Hugmyndin um foreldramorgna er ekki ný af nálinni en þeir höfðu þó ekki staðið áður til boða á Bókasafni Hafnar- fj arðar eða nágrannasöfnum okkar. Eitt af meginmark- miðum bókasafnsins er að vera íbúum bæjarins miðstöð upplýsinga, menntunar, menningar og afþreyingar og sjáum við foreldramorgnana sem hluta af þeirri þjónustu. Hér er verið að miðla upplýsingum um ákveðin málefni til bæjarbúa auk þess sem foreldramorgnarnir eru vettvangur fyrir áðurnefnda hópa að koma saman, deila reynslu og eiga samverustund. Hvað er gert á foreldramorgnum? Á foreldramorgnum koma foreldrar og verðandi foreldrar saman, spjalla og eiga huggulega samverustund. Einu sinni í mánuði höfum við einnig boðið upp á fyrirlestra af ýmsu tagi sem tengjast foreldrahlutverkinu, uppeldi og þess háttar. Núna fyrir áramót fengum við til okkar þrjá fyrirlesara sem fj ölluðu um ungbarnanudd, líkamsbeitingu og svefn ungra barna. Við hófum dagskrána á heimsókn frá Hrönn Guð- jónsdóttur heilsunuddara sem var með verklega kennslu í ungbarnanuddi þar sem foreldrar tóku þátt með börnum sínum. Foreldrar gátu því farið heim að loknum tímanum og nuddað. Því næst kom Hafdís Sverrisdóttir iðjuþjálfi og vinnuvistfræðingur sem ræddi um mikilvægi góðrar og meðvitaðrar líkamsbeitingar, bæði á meðgöngu og eftir fæðingu barns. Hafdís hefur einnig sérhæft sig í hreyfi - þroska barna og fór hún yfi r mikilvægi hreyfi ngar fyrir ung börn. Að síðustu kom til okkar Soff ía Bæringsdóttir doula sem var með svefnráðgjöf þar sem farið var yfi r svefn og svefnþarfi r barna, hvað teljist eðlilegt svefnmynstur og benti á leiðir til þess að skapa heilbrigt svefnumhverfi . Í öllum tilfellunum var rými fyrir spurningar og umræður sem gáfu góða raun. Hvernig hafa viðtökurnar verið? Mæting á fyrirlestrana hefur alltaf verið góð. Í fyrra var til dæmis mikil aðsókn að fyrirlestri um skyndihjálp barna og áttum við í vandræðum með að koma öllum fyrir. Við brugðum því á það ráð að halda annan samskonar fyrirlestur stuttu seinna. Í óformlega kaffi spjallið hefur mæting verið misgóð en þó hefur alltaf verið ákveðinn kjarni af foreldrum sem mætir reglulega. Hvað er svo á döfi nni hjá ykkur? Það verður heilmikið um að vera hjá okkur í ár og mun þar kenna ýmissa grasa, allt frá mataræði til kynlífs. Mánaðar- legir fyrirlestrar vorannar (sjá að neðan) munu að öllum líkindum að mestu hafa farið fram við útkomu blaðsins en að þeim loknum fara foreldramorgnarnir í sumarfrí og við hefj um leik aftur í haust, fersk og full af nýjum hug- myndum! • Skyndihjálp ungbarna - 24. janúar 2017 Rauði krossinn í Hafnarfi rði kemur og fer yfi r mikilvæg atriði í skyndihjálp barna. • Stjúptengsl – hvað auðveldar aðlögun fj ölskyldumeð- lima? – 21. febrúar 2017 Valgerður Halldórsdóttir, félagsráðgjafi hjá Stjúp- tengslum (www.stjuptengsl.is) kemur til okkar og spjallar um hin ýmsu atriði sem þarf að hafa í huga og geta komið upp þegar nýr einstaklingur fæðist í stjúpfj öl- skyldum. Foreldramorgnar á Bókasafni Hafnarfjarðar Edda Hrund Svanhildardóttir, MLIS og starfar sem deildarstjóri á Bókasafni Hafnarfj arðar. Eva Dögg Diego Þorkelsdóttir, MLIS og starfar sem deildarstjóri á Bókasafni Hafnarfj arðar. Linda Rós Arnarsdóttir, BA í frönsku og starfar sem deildarstjóri á Bókasafni Hafnarfj arðar. Sigrún Sigurjónsdóttir, sveinspróf í gull- og silfursmíði og starfar sem bókavörður á Bókasafni Hafnarfj arðar.

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.