Bókasafnið - 01.07.2017, Blaðsíða 24
24 Bókasafnið
• treysta á dómgreind skrásetjarans um hvað skiptir máli
fyrir notandann,
• greina betur í sundur innihald og ytra form gagna en
eldri reglur,
• taka til skráningar á öllum útgáfuformum, jafnt
áþreifanlegum sem rafrænum / stafrænum,
• gera niðurstöður leitar auðlesnar, til dæmis eru skamm-
stafanir í skráningarfærslum aflagðar að mestu,
• birta reglurnar á vef sem býður uppá reglulega upp-
færslu,
• auðvelda samstarf á alþjóðavísu.
Mikilvægur kostur RDA skráningarreglnanna er að þær
henta fleiri stofnunum en bókasöfnum, má þar nefna,
listasöfn, ljósmyndasöfn, muna- og minjasöfn. Íslenskum
söfnum má í stórum dráttum skipta í bóka-, lista-,
minja- og náttúrufræðisöfn. Ýmiss konar samstarf mis-
munandi safna er við lýði og ætla má að samvinna þvert á
safnategundir skili hagræði þegar vel tekst til. Grunnþættir
á borð við skráningu á safnkosti eru til dæmis ekki eins
ólíkir og ætla mætti. Innleiðing RDA í Gegni gefur öðrum
stofnunum en bókasöfnum færi á að kynnast reglunum og
leggja mat á gagnsemi þeirra við mismunandi aðstæður.
Þegar upp er staðið skiptir meginmáli hvernig skráning
samkvæmt RDA skilar sér í notendaviðmóti og innleiðing
RDA var skref í átt að notendavænni nálgun við miðlun
upplýsinga.
Discover the only platform to bring together
books, reference, exclusive case studies,
datasets and videos for every level of researcher,
all in one place.
• Support for teaching and learning
across the whole research methods and
statistics curriculum
• Extensive resources for organizations
working on health, biomedical, and other
corporate research
• Content covers every step of the research
process, from coming up with a research
question, to writing and dissemination,
including funding applications
What every researcher needs
Request your free trial today!
sagepub.com/trySRM
N7L0633 SRM Icelandic Journal Advert_79x125.indd 1 15/03/2017 11:19