Bókasafnið - 01.07.2017, Page 26
26 Bókasafnið
Þann 24. október 2014, á degi Sameinuðu þjóðanna, var landsnefnd Bláa skjaldarins á Íslandi stofnuð. Stofnfundurinn fór fram í Þjóðminjasafni Íslands
og kom þar saman fj ölmennur hópur fólks sem starfar að
varðveislu menningarminja ásamt fulltrúum Almannavarna,
Landsbjargar, Rauða krossins og ráðuneyta.
Hvað er Blái skjöldurinn?
Blái skjöldurinn er menningunni það sem Rauði krossinn
er mannúðar- og hjálparstarfi . Markmið hans að vernda
menningarverðmæti þegar hættuástand skapast vegna nátt-
úruhamfara og átaka m.a. með áætlunum og viðbrögðum
þegar vá steðjar að og stuðningi þegar hættuástandi lýkur.
Landsnefndum Bláa skjaldarins hefur verið komið á fót
um allan heim og þær hafa víða unnið mikilvægt starf við
verndun menningarverðmæta. Íslendingar þekkja vel afl
náttúrunnar og þær hamfarir sem geta orðið af hennar
sökum á mannlegt samfélag.
Alþjóðasamtök Bláa skjaldarins - International Committee
of the Blue Shield - voru stofnuð árið 1996 til að vinna að
verndun menningararfs sem er í hættu vegna náttúruham-
fara og stríðsátaka. Markmið Bláa skjaldarins er að vinna
að verndun menningararfs heimsins með því að samhæfa
viðbragðsáætlanir þar sem hættuástand verður. Grundvöllur
í starfi Alþjóðanefndar Bláa Skjaldarins er Haag-sáttmál-
inn frá 1954. Alþjóðanefnd Bláa skjaldarins hefur aðsetur í
París en landsnefndir starfa víða um heim.
Nafnið Blái skjöldurinn vísar til bláa litarins í merki því
sem menningarminjar, sem njóta verndar samkvæmt Haag-
sáttmálanum, eru auðkenndar með. Blái skjöldurinn er
UNESCO og öðrum alþjóðlegum samtökum til ráðgjafar
og innan vébanda hans eru sérfræðingar með fj ölbreytta
þekkingu á sviði varðveislu menningararfs. Það gerir sam-
tökunum kleift að safna og deila upplýsingum um ógn við
menningarminjar um allan heim og vera til ráðgjafar um
viðeigandi ráðstafanir þar sem verða vopnuð átök eða nátt-
úruhamfarir og senda sérfræðinga á vettvang.
Landsnefnd Bláa skjaldarins á Íslandi
Aðild að Landsnefnd Bláa skjaldarins á Íslandi eiga félög og
fulltrúar sem eru aðilar að alþjóðasamtökum safna, menn-
ingarminjastaða, bókasafna og skjalasafna. Landsnefnd Bláa
skjaldarins á Íslandi er því samvinnuverkefni Íslandsdeildar
ICOM - International Council of Museums, Íslensku ICO-
MOS nefndarinnar - International Council on Monuments
and Sites, viðurkenndra fulltrúa Alþjóðaskjalaráðsins á Ís-
landi ICA: International Council on Archives og viðurkenndra
fulltrúa Alþjóðasamtaka bókasafna á Íslandi - IFLA: Inter-
national Federation of Library Associations. Framangreindir
fj órir aðildarfélagar eru aðilar að Landsnefnd Bláa skjaldar-
ins á Íslandi á jafnréttisgrundvelli. Í nefndinni sitja fj órir
fulltrúar og fj órir eru skipaðir til vara af aðildafélögum. Ný
landsnefnd var skipuð í byrjun árs og tók hún við störfum
15. febrúar 2017. Nýja landsnefnd skipa Karen Sigurkarls-
dóttir fyrir hönd viðurkenndra fulltrúa Alþjóðaskjalaráðsins
á Íslandi, Jóna Kristín Ámundadóttir fyrir hönd Alþjóða-
samtaka bókasafna á Íslandi, María Karen Sigurðardóttir
fyrir hönd Íslensku ICOMOS nefndarinnar og Nathalie
Jacqueminet fyrir hönd Íslandsdeildar ICOM og er hún nýr
formaður nefndarinnar.
Störf nefndarinnar
Markmiðið með stofnun nefndarinnar er meðal annars að
auka fagþekkingu þeirra sem starfa á menningarsöfnum um
vernd menningararfsins með tilliti til þeirrar vár sem kann
að steðja að honum. Má þar nefna til dæmis viðbrögð við
náttúruvá, svo sem jarðskjálftum og öskufalli vegna eldgosa,
sem við höfum upplifað á síðustu árum. Í þessu tilliti skiptir
einnig miklu að huga að fyrirbyggjandi vernd menningar-
minja, svo sem á jarðskjálftasvæðum. Þá er það einnig verk-
efni nefndarinnar að beita sér fyrir að unnið verði fræðslu-
efni, koma upp vefsíðu, standa fyrir námskeiðum og vinna
viðbragðsáætlanir um hvernig skuli haga björgunarstarfi
þegar vá ber að hendi.
Blái skjöldurinn
– samstarf um verndun menningarverðmæta
Njörður Sigurðsson er með M.A. próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Hann starfar sem
sviðsstjóri upplýsinga- og skjalasviðs Þjóðskjalasafns Íslands ásamt því að sinna stundakennslu
í skjalfræði við sagnfræði- og heimspekideild HÍ.
Skrifað undir stofnsamþykkt landsnefndar Bláa skjaldarins á Íslandi
24. október 2014.