Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2017, Blaðsíða 42

Bókasafnið - 01.07.2017, Blaðsíða 42
42 Bókasafnið kannanirnar einnig til skjalastjórnar og skjalasafna. Á rann- sóknatímanum urðu miklar breytingar á rannsóknasviðinu. Byggðamynstur breyttist með aukinni búsetu í þéttbýli. Breytingar á búsetumynstri leiddu til lagabreytinga sem aftur leiddu til sameiningar sveitarfélaga og stofnana þeirra svo sem almenningsbókasafna og skóla. Aðrar stofnanir og fyrirtæki, opinber og einkarekin voru einnig sameinuð með lögum eða lagabreytingar gerðu sameiningu mögulega1. Við það urðu þjónustueiningar færri og stærri. Mikilvægi skjala- stjórnar jókst og einnig eftirspurn eftir skjalastjórum meðal annars fyrir tilstilli lagabreytinga2 (Stefanía Júlíusdóttir, 2013a, bls. 101-102; 2014). Framkvæmd gagnasöfnunar 1989, 2001 og 2014 Í könnunum þremur urðu bæði breytingar á þýðinu, enda þótt leitast væri við að hafa það sem sambærilegast, og á aðferðum við framkvæmd upplýsingaöflunar. Forstöðumenn svöruðu könnununum. Þeir fengu könnunargögn póst- send 1989 og 2001 en send rafrænt 2014. Upplýsinga var einnig aflað hjá lykilaðilum (það er aðilum sem bjuggu yfir sérstakri staðbundinni þekkingu á rannsóknarsviðinu, til dæmis héraðsbókavörðum sem höfðu yfirsýn yfir málefni lítilla bókasafna og lestrarfélaga í sínu héraði), símleiðis og 2014 á heimasíðum. Aukinn fjöldi stofnana og fyrirtækja sem ástæða þótti til að senda könnunargögn samhliða fækkun hefðbundinna bókasafnseininga 2001 og sérstaklega 2014, leiddi til aukins hlutfalls þjónustueininga sem ekki var vitað hvort starf- ræktu þá þjónustu sem um var spurt. Tafla 1. Hlutfall allra þjónustueininga sem upplýsingar fengust um og þar af hlutfall almenningsbókasafna sem upplýsingar fengust um Ár Hlutfall heildar- upplýsinga um allar tegundir þjónustueininga Hlutfall almennings- bókasafna (rekstur þekktur 2001,2014) sem upplýsingar fengust um 1989 78.7% 72.8%* 2001 71.3% 95% 2014 69.7% 88.7% *Hátt hlutfall lítilla lestrarfélaga og almenningsbókasafna sem ekki var vitað hvort störfuðu. Misjafnt var eftir tegund þjónustueininga um hve hátt hlut- fall þeirra upplýsingar fengust. Eftir því sem hlutfall aðila sem fengu send könnunargögn án þess að vitað væri hvort þeir starfræktu þá þjónustu sem um var spurt hækkaði, lækkaði hlutfall aðila sem upplýsingar fengust um. Könnun 2014 Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands sá um framkvæmd 2014-könnunarinnar3. Hún sendi könnunargögn rafrænt til sambærilegs hóps og 2001, alls 553 aðila 4. Mikilvægt er að upplýsa að 2014 hafði orðið sú breyting á lista mennta- og menningarmálaráðuneytisins yfir almenningsbókasöfn, að þar vantaði lítil bókasöfn og lestrarfélög sem þar voru 1989 og 2001 og fengu send könnunargögn. Þau var ekki hægt að taka með 2014 bæði vegna breytinganna á listanum og á framkvæmd könnunarinnar. Eins og í fyrri könnunum voru árið 2014 meðal svarenda aðilar sem ekki ráku þá þjónustu sem um var spurt. Sérstaklega á sviði skjalastjórnar þar áttu spurningar um skjalastjórnarstarfsfólk við þá sem höfðu umsjón með samræmdri skjalastjórn innan fyrirtækis eða stofnunar. Í nokkrum svörum var slíku ekki til að dreifa heldur sá hver deild eða jafnvel hver starfsmaður um að stýra og hafa reglu á eigin skjölum. Ekki var hægt að vinna úr þeim upp- lýsingum á sama hátt og þeim sem komu frá svarendum sem ráku þá þjónustu sem um var spurt. Í 2014-könnuninni voru slík söfn um fimmtungur af svarendum. Ekki verður fjallað nánar um þau hér. Hreinar og samsettar þjónustueiningar (samsteypueiningar). Meðferð upplýsinga Hreinar eru þær þjónustueiningar nefndar sem aðeins þjóna einni tegund notenda, til dæmis almenningsbókasöfn eða sérfræðibókasöfn. Samsettar þjónustueiningar eru þær einingar nefndar sem þjóna fleiri tegundum notenda. Dæmi um slíkt eru sameinað almennings- og skólabókasafn og sérfræðibókasafn, skjalastjórn (records management) og skjalasafn (archive). Til þess að koma í veg fyrir að þjónustueiningar, starfsfólk og stöðugildi í samsteypueiningum væru margtalin var eft- irfarandi aðferð notuð í öllum könnununum: þjónustuein- ingar í töflum 2 og 4 sem eru samsteypusöfn töldust aðeins með þeirri safnategund sem efst var á listanum, en ekki með öðrum tegundum þjónustueininga sem þátt tóku í samstarf- inu og neðar voru á listanum. Þannig voru samsetningar almenningsbókasafna og annarra safnategunda aðeins taldar með almenningsbókasöfnum. Þetta olli bjögun í þá veru að því ofar sem safnategund var á listanum, þeim mun fleiri einingar taldi hún á kostnað þeirra sem neðar voru (Stefanía Júlíusdóttir, 1994; 2013a, bls. 177-201; 2014). Þjónustueiningar og mannafli 1989, 2001 og 2014 Árið 2014 voru þjónustueiningar færri og stærri en 1989 og 2001. Tafla 2 sýnir fjölda þjónustueininga árið 2014. 1. Dæmi: Lög um opinbera háskóla nr. 85/2008, Lög um Samgöngustofu nr. 119/2012, Landspítali háskólasjúkrahús, 2001, Reglugerð um sameiningu heilbrigðisstofnana nr. 127/2000, Sveitarstjórnarlög nr. 8/1986, Sveitarstjórnarlög nr. 45/1998, Sveitarstjórnarlög nr. 138/2011. 2. Dæmi: Upplýsingalög nr. 50/1996, Upplýsingalög nr. 140/2012, Stjórnsýslulög nr. 37/1993, Lög um skráningu og meðferð persónu- upplýsinga nr. 121/1989, Lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000. 3. Við greiningu á tölulegum gögnum notaði höfundur gagnasafns- og fyrirspurnakerfið Open Access 1989, en Excel árið 2001. Spurningalistinn var þróaður með hliðsjón af riti Moore (1986). 4. Að teknu tilliti til lagabreytinga og breytinga í ársskýrslum, skrám, 100 stærstu [fyrirtækin] 1987 og Frjálsri verslun: 300 stærstu [fyrirtækin], 2001 og 2014.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.