Fréttablaðið - 30.09.2017, Síða 4
Dómsmál Það var spennuþrungið
andrúmsloft þegar dómur var
kveðinn upp í máli ákæruvaldsins
gegn Thomasi Möller Olsen, sem
ákærður var fyrir morðið á Birnu
Brjánsdóttur og smygli á rúmum 20
kílóum af hassi.
Sakborningurinn var fjarstaddur,
en Kolbrún Benediktsdóttir sak-
sóknari og Páll Rúnar M. Krist-
jánsson, verjandi Thomasar, höfðu
komið sér fyrir í réttarsalnum í
Héraðsdómi Reykjaness. Í salnum
sat líka Brjánn Guðjónsson, faðir
Birnu Brjánsdóttur, og fylgdist með
því sem fram fór.
Dómararnir þrír gengu inn í sal-
inn og dómsformaðurinn, Kristinn
Halldórsson, las upp dóminn. „Hinn
ákærði, Thomas Fredrik Möller
Olsen, sæti 19 ára fangelsi.“ Að auki
ber honum að greiða foreldrum
Birnu samtals um átta milljónir
króna í miskabætur. Þetta er þyngsti
dómur sem kveðinn hefur verið upp
á Íslandi allt frá árinu 1994, þegar
Hæstiréttur Íslands dæmdi Þórð
Jóhann Eyþórsson í 20 ára fangelsi
fyrir manndráp.
Eftir að dómþingi var slitið gekk
saksóknari, Brjánn Guðjónsson og
réttargæslumaður hans út. En verj-
andinn sat grafalvarlegur í bragði í
sæti sínu um stund. En kom dómur-
inn honum á óvart. „No comment,“
sagði hann áður en hann yfirgaf sal-
inn og kvaðst ekki ætla að veita við-
tal að sinni. Hann hefur ekki upplýst
hvort dómnum verði áfrýjað. Sak-
sóknarinn ræddi við fjölmiðla þegar
tími gafst til. „Það er ekki beint
hægt að segja að þetta hafi komið á
óvart,“ sagði Kolbrún.
Thomas Fredrik Olsen hefur
undanfarið verið vistaður í fang-
elsinu á Hólmsheiði. Páll Winkel,
fangelsismálastjóri segir að þegar
Thomas afplánar utan Íslands
Thomas Möller Olsen var dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir morð og fíkniefnasmygl í Héraðsdómi Reykjaness.
Þetta er þyngsti dómur hérlendis í 23 ár. Áhersla er lögð á að erlendir borgarar afpláni í heimalandi sínu.
Brjánn Guðjónsson, faðir Birnu, faðmar Hönnu Láru Helgadóttur, réttargæslumann sinn og Sigurlaugar Hreinsdóttur,
eftir að dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær. FRéttaBLaðið/ViLHeLm
fullnaðardómur er genginn í málum
norrænna ríkisborgara sem hljóta
dóm hér á landi, séu þeir alla jafna
fluttir til síns heimalands, þar sem
þeir afplána dóm sinn.
„Það eru samningar milli Norður-
landanna þannig að ef að dóm-
þolar óska eftir því að afplána í sínu
heimalandi er orðið við því og það
gerist tiltölulega hratt. Það sama
gerist þrátt fyrir að dómþolar hafi
ekki hug á að afplána í sínu heima-
landi þegar um er að ræða ríkisborg-
ara Norðurlandanna, en það tekur
hugsanlega lengri tíma. Við leggjum
mikla áherslu á að flytja ríkisborg-
ara erlendra þjóða til síns heima í
afplánun þegar það er mögulegt,“
segir Páll
Páll segir að hingað til hafi Danir
vistað Grænlendinga í Vestre Fængsel
í Danmörku og í öðrum fangelsum
þar. „Það eru opin fangelsi í Græn-
landi en þeir eru að byggja nýtt fang-
elsi þar, sem verður tilbúið innan
fárra ára.“ jonhakon@frettabladid.is
Við leggjum mikla
áherslu á að flytja
ríkisborgara erlendra þjóða
til síns heima í afplánun
þegar það er
mögulegt.
Páll Winkel
fangelsis-
málastjóri
Netverð á mann frá kr. 139.995 m.v. 2 fullorðna í
íbúð m/2 svefnherbergjum.
Las Brisas
Apartments
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
22. október í 23 nætur
GRAN CANARIA
Eldri borgarar til
Frá kr.
139.955
m/ekkert fæði
Frá kr.
194.995
m/allt innifalið Fleiri
gistivalkostir
í boði
Sértilboð
afsláttur allt að
30.000 kr.
á mann
Anna Lára Pálsdóttir
kennari í Vík
kennir útlendingum þar íslensku.
Hún segir nánast bara
útlendinga í þjón-
ustustörfum á
svæðinu. Íslend-
ingar kvarti
undan þessu á
Hótel Kötlu þar
sem Anna Lára
starfar. „Ég hef oftar en
einu sinni orðið vitni að því að það
er komið fram við fólkið af hroka
af því að það talar ekki íslensku.“
Engir Íslendingar séu hins vegar til
að sinna störfunum.
Helga Vala Helgadóttir
lögmaður
lýsti áhyggjum af
viðhorfi Hæsta-
réttar til þolenda
heimilisof-
beldis. Dómstóll-
inn hafnaði
kröfu konu um að
fyrrverandi sambýlis-
manni yrði gert að víkja úr réttar-
sal meðan hún gæfi skýrslu. „Það
er ekki eins og maðurinn hefði
ekki átt þess kost að taka til varna
þótt fallist yrði á kröfuna.“
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
alþingismaður
sagðist fyrir löngu vera
búinn að gera
hreint fyrir sínum
dyrum. Wintris-
málið hefði
sannað að hann
hefði alltaf haft
heildarhagsmuni
almennings að leiðar-
ljósi og jafnvel verið tilbúinn að
fórna hagsmunum eigin fjölskyldu.
Þrjú í fréttum
Hroki, Wintris
og Hæstiréttur
Tölur vikunnar 24.09.2017-30.09.2017
akureyri Unglingaráð körfubolta-
deildar Þórs gagnrýnir bæjarstjórn
Akureyrarbæjar harðlega í yfirlýs-
ingu í gær.
Hættulegt óhapp varð í íþróttasal
Glerárskóla á fimmtudaginn þegar
körfuboltaæfingu var að ljúka.
„Stálvír er heldur uppi annarri
stóru aðalkörfunni í salnum slitn-
aði með þeim afleiðingum að hann
sveiflaðist til með veggfestingunni,
bolta og járni og skall í gólfið með
miklum látum enda um þungt
stykki að ræða,“ segir unglingaráðið.
Iðkendur voru að ganga frá þegar
óhappið varð og féll festingin niður
skammt frá einum þeirra. „Það þarf
ekki að spyrja að því hvernig hefði
farið ef festingin hefði slegist í barn,
þarna hefði getað orðið stórslys.“
Unglingaráðið kveðst hafa kvart-
að árangurslaust undan aðstöðunni
við bæjaryfirvöld um árabil. Hefur
körfuboltadeildin sótt um að fá tíma
í öðrum húsum vegna ástandsins og
fékkst það staðfest á fimmtudag.
Hvetur ráðið foreldra iðkenda til
að láta í sér heyra enda sé aðstaðan
ekki boðleg.
„Þegar öryggi barna okkar er
ógnað er ekki hægt að una lengur
við. Unglingaráð körfuboltadeild-
arinnar mun ekki senda börn og
ungmenni á æfingar í Glerárskóla
meðan öryggi þeirra er ekki tryggt.
Af þeim sökum falla niður allar
æfingar í Glerárskóla á næstunni.“
– þea
Hörð gagnrýni á bæjarstjórn eftir óhapp
Frá leik Þórs gegn KR. Fréttablaðið/eyþór
457.600
voru gistinætur á hótelum
í ágúst. Er það 2% aukning
miðað við ágúst 2016. 53%
gistináttanna voru á höfuð-
borgarsvæðinu.
7,1
200
milljónir króna hefur hópur fjár-
festa lagt íslenska hugbúnaðarfyrir-
tækinu Teatime til. Index
Ventures, sem fjárfesti
meðal annars í Facebook,
Skype, Candy Crush og Clash
of Clans, leiðir fjárfestinguna.
2
frumvörp urðu
að lögum á
síðasta þing-
fundi fyrir
kosningar.
2,5
milljónir króna
greiddi Ríkisút-
varpið Guðmundi
Spartakusi Ómars-
syni í miskabætur
fremur en að láta
reyna á
frétta-
flutning
sinn
fyrir
dóm-
stólum.
16
milljarðar króna var samfélagsleg-
ur kostnaður af umferðarslysum
á helstu stofnæðum í kringum
höfuðborgarsvæðið á árunum
2012 til 2016.
milljarður var
aflaverðmæti
íslenskra skipa í
júní. Það er 21,9%
minna en í júní
2016. Fiskafli
íslenskra skipa í
tonnum talið var
þó 26% meiri en í
júní 2016, eða tæp
53 þúsund tonn.
3 0 . s e p T e m b e r 2 0 1 7 l a u G a r D a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
3
0
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
1
3
6
s
_
P
1
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
1
-7
3
6
8
1
D
E
1
-7
2
2
C
1
D
E
1
-7
0
F
0
1
D
E
1
-6
F
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
3
6
s
_
2
9
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K