Fréttablaðið - 30.09.2017, Síða 16
Abena hjálparvörurnar við þvagleka fást í Rekstrarlandi og
sérfræðingar okkar aðstoða við rétt val á þeim. Þessar
vörur eru af öllum stærðum og gerðum svo auðvelt er
að finna þægilega lausn sem hentar hverjum og einum.
Skírteinishafar geta leitað beint til Rekstrarlands til að
fá Abena þvaglekavörur afgreiddar. Við sjáum um að
koma vörunum beint heim til notenda án aukakostnaðar.
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is
Abena þvaglekavörur eru samþykktar af Sjúkratryggingum Íslands
Svörum fyrirspurnum fúslega í síma 515 1100 eða á heilbrigdi@rekstrarland.is
Verslunin í Vatnagörðum er opin kl. 9–18 alla virka daga.
VIÐ HUGSUM Í LAUSNUM
Fráfarandi stjórn enn sú skammlífasta
Verði stjórnarmyndunarviðræður langdregnar mun ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar verða sú meirihlutastjórn sem styst hefur setið.
Drátturinn þarf að vera fjórir mánuðir svo önnur vinstristjórn Framsóknarmannsins Ólafs Jóhannessonar tapi titlinum.
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, og Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins,
borða lifur á heimili þess síðarnefnda tveimur dögum eftir að stjórn Þorsteins Pálssonar sprakk. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ólafur Jóhannesson og Dóra Guðbjartsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fjórum sinnum hefur það gerst að
minnihlutastjórnir hafa verið við
völd. Þær hafa jafnframt verið þær
skammlífustu. Minnihlutastjórn
Samfylkingar og Vinstri grænna
sat aðeins í tæpar fimmtán vikur
en náði kjöri á ný í kosningunum
árið 2009.
16 vikur
Stjórn Ólafs
Thors, sem
tók við að
loknum
kosningum
1949 er sú
skammlíf-
asta. Stjórnar-
myndunarvið-
ræður gengu illa og á endanum
settist Sjálfstæðisflokkurinn einn í
stjórn. Enginn flokkur varði stjórn-
ina heldur ætluðu þeir að taka
afstöðu til hvers máls fyrir sig.
16 vikur og 4 dagar
Eftir að stjórn Ólafs Jóhannes-
sonar féll árið 1979 tók við minni-
hlutastjórn undir forsæti Bene-
dikts Gröndal.
Tíð þeirrar
stjórnar
lauk þegar
Framsóknar-
flokkurinn,
Alþýðubanda-
lagið og hluti
Sjálfstæðismanna mynduðu
stjórn. Stjórnin var mynduð í trássi
við vilja Geirs Hallgrímssonar, for-
manns Sjálfstæðisflokksins.
47 vikur og 3 dagar
Árið 1958 mynd-
aði átta manna
þingflokkur
Alþýðu-
flokksins
minnihluta-
stjórn og fór
Emil Jónsson
fyrir henni.
Nítján þingmenn
Sjálfstæðisflokksins vörðu hana.
Helsta mál stjórnarinnar var að
breyta kjördæmaskipan landsins
sem fram að þessu hafði verið afar
hliðholl Framsóknarflokknum.
kosningar Líkt og kunnugt er
verður gengið til þingkosninga eftir
tæpan mánuð eftir að ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og
Bjartrar framtíðar lagði upp laupana.
Þetta er ekki í fyrsta sinn og ekki hið
síðasta sem ríkisstjórn springur.
Fréttablaðið ákvað að rifja upp
skammlífustu meirihlutastjórnir
lýðveldissögunnar.
Í slíkri upprifjun verður hins vegar
fyrst að ákvarða við hvaða mæli-
kvarða skuli miða. Er rétt að miða
við þá dagsetningu er ríkisstjórn
tók fyrst við völdum eða líta til þess
tíma sem leið frá kosningum og þar
til hún sprakk? Skal seta í starfsstjórn
talin með?
Í upprifjuninni nú, þar sem stiklað
verður á stóru, verður miðað við
þann dag sem ráðuneyti tók við
stjórn og þar til nýtt ráðuneyti tók
við. Tími í starfsstjórn telst því með.
Að auki verður einblínt á stjórnir
sem hafa haft meirihluta á þingi.
Stjórn Bjarna Benediktssonar
yngri mun sitja í 41 viku hið
minnsta. Miðað við forsendur sam-
antektarinnar hefur engin stjórn
setið skemur. Langar stjórnar-
myndunarviðræður að kosningum
loknum gætu forðað stjórn Bjarna
frá titlinum skammlífasta stjórnin.
johannoli@frettabladid.is
58 VIkuR oG 3 DAGAR
Vinstristjórn Ólafs II
Sú staða sem upp kom nú, að
ríkisstjórn félli svo skömmu eftir
að þing kom saman til funda, er
ekki einsdæmi í Íslandssögunni.
Þann 11. október 1979 var þing sett
en á þeim fundi tilkynnti Ólafur
Jóhannesson, þá forsætisráðherra
Framsóknarflokksins, að hann
hygðist biðjast lausnar fyrir sig og
ráðuneyti sitt.
Stjórn Ólafs samanstóð af hans
eigin flokki, Alþýðuflokki og Alþýðu-
bandalaginu. Tæpri viku fyrr hafði
þingflokkur Alþýðuflokksins sam-
þykkt að slíta ríkisstjórnarsamstarf-
inu en það hafði verið afar skrykkj-
ótt. Efnahagsástand í landinu var
slæmt og átti eftir að fara versnandi.
Ekki var boðað til þingkosninga þrátt
fyrir kröfu Alþýðu- og Sjálfstæðis-
flokks þess efnis.
„[É]g persónulega tel ófor-
svaranlegt að efna til kosninga um
hávetur, í svartasta skammdegi að
kalla. Veðurguðirnir gætu orðið svo
hliðhollir að þetta gæti tekist með
skaplegu móti, en þó alltaf við erfið-
leika að eiga í afskekktum sveitum.
En veðrátta gæti líka orðið slík að
kosningar á þessum tíma væru með
öllu óframkvæmanlegar, og getur
það átt við um kosningaundirbún-
ing, framboðsfundi og kosningarnar
sjálfar. Slíkar kosningar gætu orðið
skrípamynd þar sem fjöldi fólks væri
í reynd sviptur atkvæðisrétti,“ sagði
Ólafur á þingsetningarfundinum.
Það varð úr að minnihlutastjórn
Alþýðuflokksins, varin falli af Sjálf-
stæðismönnum tók við.
64 VIkuR
Stjórnin sem sprakk í beinni
Rúmum tveimur mánuðum eftir
þingkosningar í apríl 1987 náðu
Sjálfstæðisflokkur, Alþýðuflokkur
og Framsóknarflokkur samkomulagi
um að mynda ríkisstjórn undir for-
ystu Þorsteins Pálssonar. Samstarfið
var umdeilt og vildu vestfirskir
Alþýðuflokksmenn ekki styðja
stjórnina. Eftir átök haustið 1988
reyndist banabiti stjórnarinnar vera
tillaga um lækkun matarskatts og
sex prósenta gengisfellingu.
„Við erum hér í afar furðulegum
sjónvarpsþætti. Þessir hlutir gerast
rétt áður en maður er að ganga
hingað inn. Það er afar ógæfulegt
og vitanlega hlýtur sú spurning að
vakna hvort það traust sé til staðar
sem þarf til í ríkisstjórn,“ sagði
Steingrímur Hermannsson, utan-
ríkisráðherra í stjórninni, í beinni
útsendingu á Stöð 2 kvöldið 16.
september 1988. Hann og fjármála-
ráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson,
voru þá gestir í þætti Ólafs Friðriks-
sonar og Helga Péturssonar og gáfu
út dánarvottorð stjórnarinnar.
87 VIkuR oG 4 DAGAR
Þingvallastjórnin
Geir H. Haarde, þá formaður
Sjálfstæðisflokksins, og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, formaður Sam-
fylkingarinnar, mynduðu ríkis-
stjórn 24. maí 2007. Áður höfðu
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur
gengið hönd í hönd í sextán ár.
Ríkisstjórnin hélt velli með eins
manns meirihluta en Sjálfstæðis-
menn slitu samstarfinu og sömdu
við Samfylkinguna.
Efnahagshrunið setti strik í það
samstarf. Óánægja með ástandið
var vægast sagt mikil. Þegar Alþingi
kom saman til funda í ársbyrjun
2009 safnaðist fólk saman á
Austurvelli, barði búsáhöld,
hrópaði slagorð og kveikti bál.
Á endanum, þann 25. janúar,
tæpri viku eftir framhald þing-
funda, afréð Samfylkingin að slíta
samstarfinu og efna til minnihluta-
samstarfs með Vinstri grænum.
Minnihlutastjórnir skammlífastar stjórna
2017
3 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L a U g a r D a g U r16 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
3
0
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
1
3
6
s
_
P
1
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
1
-8
2
3
8
1
D
E
1
-8
0
F
C
1
D
E
1
-7
F
C
0
1
D
E
1
-7
E
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
3
6
s
_
2
9
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K